Hvað er að gerast:

laugardagur, september 30, 2006

"that women have smaller brain then men"

yndislega fyndinn þessi Borat, sjá myndir og vídeo hjá Sky. Kazakhstan er svolítið stórt land! samkvæmt andrésar andarblöðunum sem ég las í æsku eru grannríki þess Úzbékistan, Fjarzkistan og Langtíburtistan. 2 myndir:









***
annars var ég að bæta mér á facebook, sem er svona myspace fyrir fullorðna. ég hlýt að vera orðinn rosalega mikið gamalmenni því mér hefur alltaf fundist útlit og innihald myspace vera svakalega gelgjulegt. "takk fyrir addið 'skan ú'rt svo æðisler hehe"
á facebook er hægt að hlaða inn ógrynni af myndum, komast í samband við fólk og allt það blabla. það er að mér skilst gert fyrir háskólafólk, og ég held maður þurfi háskólaaddressu til að skrá sig inn á þetta og sjá aðra. voða sniðugt allt. íslensku háskólarnir eru nýkomnir inná síðuna.

***
deiglu/auðvalds Ásgeir er verðugur fulltrúi "hins háskólans" í Rvk hér í kóngsins KU, og hann býður senn í innflutningspartý. skál/prost/nazdraví fyrir því!

Engin ummæli: