Hvað er að gerast:

mánudagur, september 18, 2006

öppdeit

ég kom til "borgar múranna" (sbr. grein í sl. sunnudgasblaði moggans) miðvikudaginn 6. sept., og er því búinn að vera hér í tylft daga þegar þessi orð eru skrifuð.

báðar stúlkurnar sem ég bý með fengu cpr-nr. (kt.) á föstudaginn. ég fór með þeim í folkregistret og var m.a.s. búinn að sækja um 2 mín. á undan þeim. bíð enn eftir mínu cpr!

hins vegar hef ég fengið símanúmer (enda þarf maður ekki að treysta á hið opinbera upp á það): sonofon númerið mitt er +45 2566 8679.

************

eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, hjóla ég langa leið á hverjum degi - ég er í pólsku í húmanísku fakúltíunni 4 daga í viku, og í lagadeildinni 2 daga í viku. verð kominn með stinnan neðri búk á engum tíma! spurning með hvað verður með ofan mittismáls.




mikið eru röskvustrákarnir á ordid.blog.is miklir fávitar. jújú, það koma mjög skemmtileg skúbb frá þeim, en rólegir á 2 fyrstu færslunum í dag, mánud. 18. sept.

::::sú fyrri er um að framkvæmdastjóri 365 eigi ekki annarra kosta völ en að segja af sér, taki Jón Ásgeir fyrir hendurnar á honum. ég fetti nú bara miðfingurinn út í þessa drengi .!.

::::sú seinni er færsla um hið landsfræga kristilega tímarit Tadds, sem jafnan stendur með frjálshyggjuarmi ungra reykvískra sjálfstæðismanna þegar blásið er til kosninga í Heimdalli. ok, þeir gera lítið úr lesendum sínum með því að segja að þetta sé mjög lókal húmor (lókal - eru þeir þá að meina Rvk / háskólafólk / ...?) það sem slæmt er við fréttina er blörraða myndin sem fylgir með. hvað kemur fram í urlinu, þegar maður hægri smellir á myndina og velur "view image"? eru menn heimskir?







Jón Bjarnason er þingmaður VG. hvernig getið þið kosið svona fífl? mér finnst bara engir þingmenn neins flokks komast með tærnar þangað sem sést í hælana á þessum snillingum, þótt margir séu þeir vitlausir.

skemmtilegur bútur sem tengist þessu svoldið (veit ekki alveg hvernig samt), af heimasíðu Hallgríms Helgasonar (rifið úr samhengi):
Minnisvarði
mosavaxinn,
að hálfu sokkinn
í sængurjörð
og öllu búinn að gleyma.


************

rosalega er ég langorður þessa dagana. eitt enn, mig langar rosalega mikið að sjá þessa mynd
- mitt innra nörd öskrar.

Engin ummæli: