GAY! a gay musical

2. sería IT Crowd byrjar fjári vel.

Haraldur
HaraldurS [] gmai1 punktur com

2. sería IT Crowd byrjar fjári vel.

skrifaði
Halli
kl.
23:53
0
blabla
Merkimiðar: happy talk, sjónvarp


þátturinn hér að neðan var sýndur í gærkvöldi á DR1, Egill Helgason að tala um partý sem kláraðist og hvernig fólk muni núna einungis geta starfað í ál- og fiskiðnaði, fjallað er um húsnæðislán sem hækka um fleiri þúsundir á milli mánaða, þá staðreynd að allir Íslendingar (með tölu!) tóku lán í frönkum og jenum, allir keyptu sér bíl á lánum og eyddu langt um efni fram, atvinna sé af mjög skornum skammti en þeir sem fengið geta séu í þremur vinnum, engir peningar séu eru eftir á landinu og bölsýni ríki, svört eins og nóttin - þetta er draumurinn sem breyttist í mareridt.
Island - et land på kanten af bankerotFørst lignede det et økonomisk mirakel, men nu advarer den islandske statsminister om, at landet kan gå fallit. Var det grådighed, der ramte det lille land i Atlanterhavet? Og hvordan kan det gå til, at et helt land løber tør for penge?
Den islandske økonomi er nu gået så meget i i baglås, at de betalingskort som Visa/dankort ikke længere kan bruges på øen.
skrifaði
Halli
kl.
22:04
0
blabla
Merkimiðar: blóðsugur, end of the world, heimildarmyndir, köben, sjónvarp
gömul kenning og umdeild meðal okkar femínista:
"Call us crazy, but we’re not so sure that this lack of women at the top is such a slight. Maybe—just maybe—women have figured out that a job that requires 3000+ hours a year, robs you of a social life, and likely won’t net you much more than you’d make per hour as, say, a decent massage therapist, isn’t necessarily a gig worth sticking around for. We’re just sayin’."
skrifaði
Halli
kl.
13:42
0
blabla
Merkimiðar: femínistar, frjálshyggjuplebbar, sjónvarp
minn er búinn að verða sér úti um 4. seríuna af Klovn á DVD - kostaði skid og íngentíng.
það er ekkert vit í því að láta sýningartímana á RÚV stjórna Klovn-áhorfi sínu, fyrir utan að þar á bæ er verið að sýna 2. seríu, á meðan sú 5. er til sýningar í Drottningarinnar Danmörku.
skemmst er frá því að segja að Mia hans Frank er að slá í gegn í þessari seríu, hún er algjört megakvendi, farin að sýna sitt rætna hugarfar svolítið.
Frank er auðvitað samur við sig, alltaf að koma sér í þvílík vandræði. eða hver læsir sig inní apabúri yfir nótt með g-streng ókunnugrar djammgellu í vasanum, eða skeinir salmonellu-lurt sinn með dönskum fána sem nota átti daginn eftir til að heiðra gamlan hermann? tala ekki um að verða til þess að stoma-poki ungrar stúlku springur í sundlaug og sitja eftir í lort-mengaðri sundlaug?
enn skemmra er frá því að segja að Casper er eitthvert mesta fúlmenni sem sést hefur lengi á skjánum, í þessari seríu. ég vissi hreinlega ekki hvort ég átti að brosa þegar hann pantaði "H.C. Andersen" leigubíl (Hvid.Chaufor, Andersen= fæddur í DK), af þeirri ástæðu að menn fæddir í Kongó vita ekki hvar Kronprinsessegade er.
skrifaði
Halli
kl.
02:20
0
blabla
Merkimiðar: köben, ljótt og bannað, sjónvarp
jess, loksins er íslenskt lögfræðidrama komið [aftur] fram á sjónvarpsskjáinn.
Rétturinn er nýjasti þátturinn á hinni vinsælu stöð ÍNN og skartar þeim Vilhjálmi Rey og Braga Dór stórsnillingum í aðalhlutverkum.
Matt Damon er frekar leiðinleg týpa held ég, en hann er svolítið fyndinn í þessu myndbandi Söruh Silverman (úr þætti kærasta hennar, feita gæjans úr ManShow): youtube.com/watch?v=wnVJZkDuVBM
hún er svo fyndin að það er kynæsandi.
endalausir teaserar SkjásEins vegna tvöfalda TopGear þáttarins þar sem Jeremy og félagar reyna að komast fyrstir manna á N-Pólinn á bílum urðu til þess að ég gafst upp og kveikti á YouTjúb.
þættirnir tveir sem fjalla um pólferðina eru þar í 8 pörtum, þannig að ef maður vill fá SkjáEinn fílinginn þá
getur maður horft á auglýsingar á milli parta.
til þess að gera þetta spennandi fóru tveir þáttarstjórnendanna á bíl (ásamt tökuliði og tveimur íslenskum ArcticTrucks gæjum) og einn reyndi að vera á undan þeim á hundasleða sem stýrt var af utanaðkomandi hörkukvendi.
besta skemmtun.
skrifaði
Halli
kl.
23:29
0
blabla
Merkimiðar: auglýsingar, netið, sjónvarp
fín bresk heimildarmynd "um lífið á jörðinni fyrir komu risaeðlanna", þar sem gefur að líta 2 m margfætlur, drekaflugur með vænghaf á borð við erni og köngulær sem hefðu borðað ketti, hefðu þeir verið á matseðlinum.
ég lærði það m.a. að þeim mun meira súrefni sem við dælum út í umhverfið með trjám, þeim mun stærri verða skordýr - að því gefnu að maður trúi á þetta "fucking Darwin búllshit", eins og gamli herbergisfélagi minn Amin tók til orða (hann var langt kominn í læknisfræði, snillingurinn).
Út að labba með skrímslin (Walking with monsters), 90 mín. BBC-sería á Gúglvídeo:
partur eitt og tvö og þrjú.
mér sýnast þættirnir Út að labba með risaeðlunum, vera framhald af skrímslaþáttunum, sjá hér á Jútúb.
skrifaði
Halli
kl.
23:31
0
blabla
Merkimiðar: dýrakynlíf, heimildarmyndir, sjónvarp
kannski Egill Helgason?
þetta var altént á þeim árum er hann drakk bjór í stykkjatali og angraði okkur hin á Austurvelli.
Egill hélt eflaust þá eins og nú að miðbærinn væri upphaf og endir alls og að þeir og það sem hann skildi ekki væri bara afbrigðilegt. Íslendingar væru einstakur hópur, sem kynni ekki að drekka eða gera neitt, og hann væri einn þeira. hann er það ekki lengur heldur hangir á hóteli innanum hina plebbana London og heldur að hann sé sérstakur.
gaman væri að vita hvort barnið, sem nú er 12 ára, gangi enn um án þess að vita deili á líffræðilegum föður sínum? ... eins og Egill gengur um glórulaus, en það er annað mál. vei okkur að vera að fara að borga nefskatt til að púkka upp á þennan smásálarrúnkara.
#1: What is your worst fault?
"Actually, they're all pretty bad."
#2: What are you looking for in a job?
"Senseless drudgery and money."
#3: Where do you see yourself in ten years?
"Sleeping in your bed, and having your kids call me 'Dad'."
#4: You're overqualified
"I assure you, exactly the opposite is true."
#5. No, it's not your age
"Well, then, it must be my skin colour."
þennan tékkneska bjór þykist íslenska liðið "Club" Lögberg, sem nýlega lauk keppni í Norrænu málflutningskeppninni með glæsibrag, hafa keypt og drukkið í sænskri efnahagslögsögu (í ferju) - jákvætt væri ef farið yrði að flytja til Íslands venjulegan meðaldýran og -góðan tékkneskan og pólskan bjór. af hverju er maður ekki einkaframtakssamari?
ég mæli með Önnu Pihl, sem Rúv byrjar að sýna mánudaginn 18. júní. hún er mikið kjarnakvendi og gæti rústað Erninum með fætur bundna fyrir aftan bak.
ljóskan er stödd á sólarströnd. aftan á henni er maður, þau eru að gera það bak við runna.
pálmatréð sem notað er til viðstuðnings hristist, og alltíeinu: blamm!
einhvernvegin svona er söguþráðurinn í myndbandi danska utanríkisráðuneytisins, Sikker sex med rejseforsikring, sem ætlað er að hvetja fólk til þess að kaupa sér ferðatryggingu áður en farið er út í heim.
skrifaði
Halli
kl.
16:06
3
blabla
Merkimiðar: femínistar, ferðalög, sjónvarp
áður en ég flý Baunaland má ég til með að deila þessu skaðræðislagi með öllu internetinu. það er nefnilega bráðfyndið.
Danmark er et dejligt sted
her kan alle være med
lever sammen i ro og fred
det er ægte kærlighed
du skulle tage og komme forbi
tage en tur i Tivoli
syng så denne melodi
så får du venner over det hele
OMKVÆD:
La-la-la-la-la-la
her kommer dronningen forbi
la-la-la-la-la-la
med Prins Henrik inden i
la-la-la-la-la-la
her kommer Danmarks politi
la-la-la-la-la-la
dem kan vi jo alle li'
Hvis du ingen penge har
får du nogle af skattefar
han er nemlig sød og rar
han skulle ha' en stor cigar
vi har også fin natur
villavej og haveskur
tynde piger på slankukur
en hindbærsnittel med glasur
OMKVÆD x1
La-la-la-la-la-la
DANMARK
la-la-la-la-la-la
hullabulla!
la-la-la-la-la-la
DANMARK
la-la-la-la-la-la
hullebulla!
La-la-la-la-la-la
La-la-la-la-la-la
La-la-la-la-la-la
La-la-la-la-la-la
La-la-la-la-la-la
DANMARK
la-la-la-la-la-la
hullabulla!
la-la-la-la-la-la
DANMARK
la-la-la-la-la-la
hullebulla!
hver man ekki eftir laginu Spaceman eftir Babylon Zoo? (sjá jtúbvídjó) - spaceman, I always wanted you to gó, intú speis man! Intergalactic cræææ.
talandi um rokk, hér er bútur úr Snilldarævintýrum Bills & Ted, skartandi Sókrates, Betóven, Freud og Jóhönnu af Örk (konunni hans Nóa ;) - sígilt jtúbvídjó.
Jane Wiedlin er þar flott sem Jóhanna, en hún spilaði á einhvers konar gítar í 80's stúlknabandinu The Go-Go's - margir kannast eflaust við smellinn þeirra We got the beat (jtúb) - sannarlega tónlistarleg snilld þar á ferð.
þess utan virðist hljómsveitin, sem mun vera fyrsta fyrsta alkvenvædda rokkbandið, hafa gefið út alveg ægilega tónlist. margt af því sem gerðist á þessu tímabili í tónlist ætti ekkert að vera að grafa upp.
konurerukonumbestar.blogspot er skemmtilegur vefur um konur í tónlist. The Go-go's virðast þó hafa gleymst í umfjöllun umsjónarmanna hans.
fyrsti maðurinn sem ég vil hylla opinberlega er Hercule Poirot, hýran belga sem hafði svo gott lag á því að leysa glæpagátur. um leið er það auðvitað hylling á höfundi Poirots, Agöthu Christie. mikið hefur verið skrifað um hann á Wikipediu, þeirri paradís nördanna, þaðan sem eftirfarandi er fengið.
belgískt þjóðerni hans er talið stafa af breskri samúð með belgum, sem voru hersetnir af þjóðverjum þegar Agatha Christie byrjaði að skrifa um ævintýri hans 1916.
fyrsta bókin var gefin út 1920 og öðlaðist spæjarinn með egglaga höfuðið frægð árið 1926, með útgáfu bókarinnar The Murder of Roger Ackroyd, sem er ein frægasta spæjarasaga sem gefin hefur verið út. sagan er m.a. fræg fyrir það að sögumaðurinn var sjálfur afvegleiddur í sögunni, og undir lok hennar kemur í ljós að hann er morðinginn sem leitað var að.
Poirot yfirgaf belgísku lögregluna í fyrra stríði og flúði yfir til Bretlands, þar sem hann starfaði sem spæjari - enda þótt hann hafi starfað fyrir bresku leynilögregluna um tíma og m.a. komið í veg fyrir brottnám breska forsætisráðherrans. ferðaðist hann síðan um Evrópu og Mið-Austurlönd.
aldrei fór hann vestur og er talið að það hafi stafað af því að hann þjáðist af sjóveiki. var hann mikill magamaður, eins og fram kemur í þessari frásögn um hann:
"Always a man who had taken his stomach seriously, he was reaping his reward in old age. Eating was not only a physical pleasure, it was also an intellectual research."
var hann m.a. frægur fyrir að taka lögin í eigin hendur - ætli hann eigi það ekki sammerkt með mörgum öðrum frægum spæjurum og löggumönnum?
er hann lést í bókinni Curtain árið 1975, ári á undan höfundi sínum, var hann hættur að lita hár sitt svart og farinn að bera hárkollu og gerviskegg, auk þess sem hann er talinn hafa þjáðst af gigt.
mynd: David Suchet sem Hercule Poirot, sem ég smellti af í tölvunni í gær.
Stúdentakjallarinn á sunnudaginn kl. 20:
Að lokum sínum [sic] við tékknesku óskarsverðlaunamyndina Obchod na Korze (The Shop on Main Street, 1965) e. Jan Kádar og Elmar Klos. Þetta er tragikómísk mynd um hálfgerðan aula sem er skipað að gerast arýskur [sic] "yfirmaður" búðar sem gömul gyðingaekkja rekur. Myndin endurspeglar yfirráð kúgunarstjórnar nasista en hún er einnig gerð á hápunkti sovéskrar stjórnar í A.-Evrópu. Myndin fékk ekki bara óskar sem besta erlenda mynd, heldur einnig tilnefningu fyrir bestu leikkonu (Ida Kaminska sem gamla ekkjan).
þetta er reyndar slóvakísk mynd, ekki tékknesk (tékkóslóvakísk ef menn vilja vera nákvæmir) - hún gerist í smábænum Sabinov, sem ég heimsótti í júní sl., ég var plataður til að sjá leikrit sem gert er eftir myndinni þegar ég var þar - þá voru 40 ár liðin frá því myndin fékk óskarsverðlaun og hátíðarhöld í bænum. ég skildi leikritið ágætlega þrátt fyrir slakan skilning á slóvakísku, falleg og átakanleg saga.
Sabinov er annars þekktur fyrir einstaklega gott jógúrt, og þess má geta að búðin sem myndin gerist í var nýlega breytt aftur í leðurvöruverslun, líkt og var þegar myndin var tekin þar upp.
***
The LB
ég er búinn að vera á Lögbergi í gær og í dag - æðislegt að hitta gömlu vinina, manni líður strax eins og heima hjá sér.
í kvöld er stefnan jafnvel tekin á laganemakokkteil.
***
smá entrapment grín
State v. Powell ‘86: Drunken decoy – lögreglutálbeita lagðist í fósturstellingu á jörðinni og þóttist vera áfengisdauð, með veski hangandi út úr rassvasa – skapaði að mati Hæstaréttar Hawai “a substantial risk that [theft] would be committed by persons other than those who [were] ready to commit it”.
nörd:
ég fíla StarTrek, og þori að viðurkenna það. þótt í grunninnn sé þetta f.o.f. vísindaskáldskapur þá er gaman að horfa á hvernig þættirnir takast á við hugtök á borð við stríð og frið, forræðishyggju, heimsvaldastefnu, mannréttindi, kynþáttafordóma, stöðu kynjanna o.fl.
þótt BattleStar Galactica séu sínu mun óvitsmunalegri þættir, þá hef ég mjög gaman af sögunni endalausu um þessa mennsku eftirlifendur stríðs sem þurrkað hefur út stærstan hluta mannkyns (í þeirra stjörnukerfi) og leit þeirra að plánetu sem kölluð er "Earth".
í þáttunum, sem eru endurgerð seríu frá 7. áratugnum, er trúarlegur undirtónn og áhugaverðar spurningar eru teknar fyrir, t.a.m. um tilfinninga- og trúarlíf vélmenna. í upprunalegu seríunni var mikið um hasar, karllægni og ameríkanisma og frá þessu hefur lítið verið brugðið. hins vegar hafa framleiðendurnir tekið upp á því að hafa jafna hluti kynjanna í
þáttunum, þannig að mörg aðalhlutverkin, þ.á m. hlutverk drykkfellda, vindlareykjandi aðaltöffarans Starbuck, eru í höndum kvenna.
ég hafði hugsað mér að kaupa seríu 2 af þáttunum, en þegar ég komst að því að verðið væri 700 DKK þá var ekki annað í stöðunni en að verða sér úti um tölvutækar upptökur af þeim frá öðrum áhugamönnum.
bara til að taka það fram þá er StarWars mesta drasl í geimi - vitsmunasnautt tyggigúmmífyrirbæri, útþynnt kjaftæði um baráttu góðs og ills, prinsa og prinsessur í geimnum og í stuttu máli algert prump.
sérstakt:
þannig er að ég er í hópi þeirra afar fáu sem vita ekkert betra en hálf-poppuð popp-maískorn (maísbaunir). kornin eru stökk undir tönn og þétt í sér - mun betri en maís sem hefur poppast.
það var ekki fyrr en í dag, á meðan ég horfði á BSG og reyndi að veiða þennan ópoppaða, opnaða fagnað uppúr skálinni, sem mér datt í hug að gúgla fyrirbærinu. það hlytu að vera fleiri sem þætti þetta gott.
og viti menn, á netinu fann ég bæði verslanir sem selja þetta í pokavís og myndband sem sýnir hvernig má búa til heilu bílfarmana af ópoppuðum maís! því ber að fagna!
það þarf sterkar hreðjar til að horfa á þetta íslenska Herbalife myndband til enda. ég gafst upp eftir aðeins örfáar mínútur. þessu fólki, sem svo ómaklega er uppnefnt hin íslenska Borat fjölskylda, er mikil vorkunn.
***
af 7 málum sem framkvæmdastjóri VG nefndi áðan á póstlista femínistafélagsins sem hluta af stefnuskrá flokksins, svelgdist mér einungis á við lestur tveggja:
"[3] heimildir jafnréttisstofu til að far [sic] inn í fyrirtæki og afla upplýsinga um kynbundinn launamun,"
haha hoho ... já ... ég veit ekki hvort eitthvað þarf að segja um þetta? ég sé fyrir mér dómarann sem fær þessháttar húsleitarheimild inn á borð til sín.
er virkilega til fólk í heiminum sem heldur að það þurfi að brjóta með þessum hætti gegn fyrirtækjum og starfsfólki þess til þess að sannleikur um launagreiðslur fyrirtækisins verði leiddur í ljós? af hverju hefur ekki verið gert meira grín að þessum flokki - með fólk sem skrifar svona innanborðs?
"[7] bætt verði starfsumhverfi kvennahreyfingarinnar á Íslandi"
hvaaað er þetta lið að reykja? við gúgl má finna þingsályktunartillögu Kollu Halldórs og Þuríðar Batmansdóttur um þessar bætur á "starfsumhverfi kvennahreyfinga", sem þrátt fyrir nafnið virðist ekki einskorðað við "kvennahreyfingar":
a) hún gengur að sjálfsögðu út á að eyða peningum, þ.e. stofna sjóð, væntanlega á hann (kvennasjóðurinn) að koma úr ríkis-sjóði - til að styrkja allt* það starf sem "miðað getur að jafnari stöðu kynjanna" og senda þetta sama fólk til útlanda.
b) í öðru og síðasta lagi á með tillögunni að koma á "beinum tengslum" allra* þeirra sem hafa starfa sem "miðað getur að jafnari stöðu kynjanna" við íslensk ráðuneyti.
{* hvers konar starf félagasamtaka, hópa og einstaklinga}
þetta finnst mér svo mikið bull að ég trúi því ekki að fullorðin manneskja geti látið svona lagað fara frá sér. af ræðu Kolbrúnar virðist sem tekið hafi verið með jákvæðum hætti í þessa tillögu þegar hún hefur verið lögð fram áður - væntanlega vill enginn vera sakaður um rembu eða karllægni, en ég vil bara ekki trúa því. þetta er svo heimskulegt á allan hátt að þetta gæti verið brandari - lélegur skets hjá Spaugstofunni.
hin málin voru ágætra gjalda verð - en það er erfitt að líta fram hjá svona bilun.
ég get ekki beðið eftir að VG losi sig við þetta útúrklikkaða pakk - mér líst nefnilega vel á flest yngra fólkið sem hefur fundið sér bólfestu þarna. ég myndi samt þurfa að fullvissa mig um að peningunum mínum yrði ekki sólundað með hlutum eins og stofnun kvennasjóðs áður en ég kýs VinstriGrænt.
skrifaði
Halli
kl.
13:54
0
blabla
Merkimiðar: sjónvarp, vinstri grænir
Blackbooks, sjónvarpsþáttur um eiganda bókabúðar og vini hans frá 2000 - þessi upphafning á alkahólisma og aumingjaskap hefur eflaust haft mikil áhrif á mig í æsku (þ.e. þegar ég var 18). aðalpersónunni Bernard, leikinn af Dylan Moran, er lýst sem svo á wikipediu:
His hobbies are drinking, smoking, reading and insulting people. hmm, gæti verið kennari í lögfræði ...
tilvitnanir úr þáttunum:
