Hvað er að gerast:
fimmtudagur, júlí 31, 2008
þriðjudagur, apríl 15, 2008
þriðjudagsgrínið - ein rússnesk
tölvupóstsþriðjudagsgrínið er að þessu sinni í formi gátu (og með svona skemmtilegu letri).
þekkir þú þessa?

Hún er rússnesk!
Gefstu upp?
OK, sjáðu svarið...

skrifaði
Halli
kl.
15:25
0
blabla
Merkimiðar: dýrakynlíf, matur
sunnudagur, janúar 20, 2008
heimildarmynd um ævafornan risavöxt
fín bresk heimildarmynd "um lífið á jörðinni fyrir komu risaeðlanna", þar sem gefur að líta 2 m margfætlur, drekaflugur með vænghaf á borð við erni og köngulær sem hefðu borðað ketti, hefðu þeir verið á matseðlinum.
ég lærði það m.a. að þeim mun meira súrefni sem við dælum út í umhverfið með trjám, þeim mun stærri verða skordýr - að því gefnu að maður trúi á þetta "fucking Darwin búllshit", eins og gamli herbergisfélagi minn Amin tók til orða (hann var langt kominn í læknisfræði, snillingurinn).
Út að labba með skrímslin (Walking with monsters), 90 mín. BBC-sería á Gúglvídeo:
partur eitt og tvö og þrjú.
mér sýnast þættirnir Út að labba með risaeðlunum, vera framhald af skrímslaþáttunum, sjá hér á Jútúb.
skrifaði
Halli
kl.
23:31
0
blabla
Merkimiðar: dýrakynlíf, heimildarmyndir, sjónvarp
föstudagur, nóvember 16, 2007
kynlíf án reiðhjóls
ég man eftir að Leno gerði þennan glæp að umatlsefni fyrr nokkru - það er greinilega búið að dæma í málinu:
Dømt for sex med cykel
51 árs maður hefur verið dæmdur í þriggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir að stunda kynlíf á hótelherbergi - með hjólinu sínu.
Tvær þernur fengu áfall, þegar þær opnuðu hótelherbergi hins 51 árs gamla skota Robert Stewart síðasta sumar.
Í miðju herberginu stóð Róbert, í stuttermabol einum fata, haldandi á reiðhjóli.
[...] when the women opened the door he paused only to ask, "What is it, hen?", before continuing to "move his hips back and forth as if to simulate sex".
hann játaði sig sl. miðvikudag sekan um "sexually aggravated breach of the peace by conducting himself in a disorderly manner and simulating sex" fyrir rétti í Ayr, Skotlandi.
þetta er auðvitað fyndið, en sorglegt um leið, því maðurinn hefur verið settur á opinberan lista yfir kynferðisafbrotamenn í Skotlandi og hefur þurft að flytja þrisvar síðan atvikið kom upp.
ýmsar spurningar hafa vaknað hjá almenningi vegna málsins um þetta grófa brot gegn saklausum fararskjótanum:
---
Has the bicycle in question been taken into protective custody, asked one?
---
herre eller damecykel?
---
Var det for- eller baghjulet?
---
Det er da ikke noget at blive forarget over - sålænge det ikke er en barnecykel, det går ud over.
---
http://www.telegraph.co.uk/news/main.jhtml?xml=/news/2007/11/14/nbikesex114.xml
http://avisen.dk/doemt-sex-cykel-151107.aspx
mynd: http://www.helleantonsen.com/pages/pencil.html
skrifaði
Halli
kl.
10:18
0
blabla
Merkimiðar: dýrakynlíf, hestar, refsingar
fimmtudagur, mars 08, 2007
the voices
maður veit stundum ekki hvort rétt sé að hlæja eða gráta þegar fólk sér skrattann í hverju horni. nú er klámskrattinn vinsæll.
stundargeðveiki og móðursýki eiga ekkert skylt við hugmyndina að baki femínisma. það er leiðinlegt þegar veikir einstaklingar gefa slíkt í skyn með skoðunum sínum.
hér eru nokkrar klámmyndir*:
skrifaði
Halli
kl.
13:39
1 blabla
Merkimiðar: dýrakynlíf, femínistar, ljótt og bannað
þriðjudagur, febrúar 06, 2007
viltu vera Ben?
í takmarkaðan tíma eingöngu: professional myndir af híbýlum vorum, að ógleymdum panorama (360°) myndsýningum. einkum sniðugt fyrir þá sem eru að leita sér að íbúð á Austurbrú, já eða bara fyrir venjulega gluggagægja.
líka hentugt fyrir þá sem ætla í heimsókn að geta kynnt sér hvar allt er, hvernig afstöðu klósetts og vasks gagnvart hvort öðru er háttað, stærð stofu (uppá að dansa o.fl. - hvað er betr'en að dansa?), eldunaraðstöðuna o.s.frv.
***
frá ónefndum grínista:
... mun grínið aldrei stanna?
***
í dag eru tónleikar með einhverjum Ben .. Pésa Ben. þangað ætla aaaalllir íslendingar á aldrinum 15-37 ára búsettir á Sjálandi. nema ég. held ég.
þetta er eitthvað svo úú, vinsælasta platan á Íslandi (pfft - þeirri smáey!), svo er þetta Ben nafn ... Ben? Bjarni Ben? Sigga Bentens? á Benu brautinni? hljómar, líkt og tónlistarbrotið sem ég hef hlustað á með tónlistarbeninu, sem eitthvað tyggigúmmípoppkorn. með fullri virðingu fyrir þeim sem ætla að fara.
skrifaði
Halli
kl.
21:43
1 blabla
Merkimiðar: dýrakynlíf, köben, ljótt og bannað, mummi, netið, refsingar, tónlist
miðvikudagur, september 20, 2006
ein textaskrá er allt sem þarf, svín eru góð
Belgar
Dirk Voorhoof, belginn sem kennir mér MediaLaw, sendi nemendum sínum enska samantekt dóms sem féll á hendur Google á fyrsta dómstigi í Belgíu þann 5. sept. sl., vegna Google News þjónustunnar. þýðingin er hér(pdf), ef einhver hefur áhuga.
nú, ef menn vilja ekki að leitarvél leiti á heimasíðu eða afriti efni af henni, geta menn sett eina litla textaskrá á lénið sitt, robots.txt. þessi skrá segir leitarvél nákvæmlega hvað hún má og má ekki gera, t.d. hvort hún megi leita á léninu, afrita efni, hvar má leita og hvar ekki o.s.frv. þetta er þannig svona "opt-out" kerfi - allt sem sett er á netið á í hættu að lenda á skrám leitarvéla, og menn verða að útbúa umrætt skjal vilji þeir ekki vera með.
öppdeit: las skjalið til enda og er enn gáttaðari á þessum belgum eftir. bitbeinið var að notendur gátu lesið afrit google af frétt, eftir að lokað hafði verið fyrir ókeypis aðgang hjá belgísku fréttaveitunum. það er nefnt að google hafi gert afrit, þrátt fyrir að skilaboð væru á síðunni um að efni þar væri varið höfundarétti. þeir semsagt höfðu fyrir því að setja þau skilaboð inn á síðuna, en gátu ekki útbúið þetta litla skjal sem ég nefndi. þetta er auðvitað eyðilegging á internetinu og verður eflaust snúið við í áfrýjuninni.
honk honk
24timer heldur í dag áfram umfjöllun sinni um dýraníð. nú er röðin komin að svínum:
skrifaði
Halli
kl.
15:16
2
blabla
Merkimiðar: dýrakynlíf, köben, netið
laugardagur, september 16, 2006
Mbl., Fbl., vísir, sæðingarmenn ungliðar og ganga-sjón
*******fjölmiðlar:
halló?
efni síðustu færslu varð að forsíðufrétt hjá Fréttablaðinu 2 dögum seinna, þ.e. í gær (auðvitað var ekki vitnað í mig, melirnir). færslan fékk hinsvegar ekki eitt einasta komment hjá ykkur (meintum) lesendum, eruði svona fáir, eða bara ill-sjokkeraðir?
í dag er sagt frá því í blöðunum að í gang sé að fara samnorræn samvinna í því að gera kynlíf við dýr ólöglegt. eins og á Íslandi virðist hér aðeins mega refsa fyrir að meiða dýrin líkamlega, en viðbjóðsháttur virðist geta viðgengist svo lengi sem þau eru ekki limlest. íslensku lögin um dýravernd segja að óheimilt sé "að hrekkja dýr eða meiða" - og ef ekki er hægt að sýna fram á að dýrin fái meiddi, þá þarf að sanna að kynlíf manna við dýr sé hrekkur. eru dýr ekki leidd saman af bændum á hverjum degi? er dýrum af báðum kynjum ekki nauðgað á hverjum degi af sæðingameisturum? er sæðingarmaður ekki að stunda kynlíf með dýri, nema hann fái eitthvað kynferðislegt útúr vinnu sinni? er þessi danski 'Peter' nokkuð annað en "frjótæknisóbermi" (-s h. óhræsis sæðingarmaður) ... pæling ...
muna: fólk er til að stunda kynlíf með, dýr eru til að drepa og borða.
samfélagið leyfir ekki að maður snúi þessu við og borði annað fólk eða stundi kynlíf með dýrum.
(** smá tónlist:
í samræmi við 11. gr. höfundalaga vil ég dreifa til þeirra (augljóslega) örfáu sem lesa þessa síðu, til einkanota, laginu blú velvett í skemmtilegri framsetningu slóvakíska stúlknabandsins Tornádo Lue.)
Mogginn sagði í dag frá því að systir Litlu Hafmeyjunnar hafi nýverið verið sett upp rétt hjá þeirri gömlu (í 2 mínútna hjólatúrsfjarlægð frá okkur hér á Holsteinsgötu). fyrirsögnin og textinn eru beinar þýðingar úr dönskum fjölmiðlum, en samt náði náunginnn sem þýddi fréttina að breyta nafni myndlistamannsins sem skapaði þessa styttu úr Bjørn Nørgaard í Bjørn Nørregaard.
fyrir neðan hverja frétt á mbl. eru tenglar á borð "prenta frétt", "blogga frétt" og "senda frétt". ég held að það þyrfti að bæta þar við "leiðrétta frétt", því fólkinu sem skrifar fréttinar á síðuna er bara ekki nógu vel treystandi. það er kannski á svona lágum launum eða undir miklu álagi?
eru þetta ekki allt laganemar annars?
myndir teknar héðan. á sömu síðu er listi yfir svívirðingar sem litla haffrúin hefur mátt þola í gegnum tíðina.
reyndar er nýja lúkkið á fréttablaðinu á visir.is bara ótrúlega flott, miðað við að þetta er Vísir - nú er spennandi að sjá hvort þeir taki ekki veftívíið í gegn, það er eitthvert mesta rusl sem maður hefur komist í kynni við, ég man ekki hvenær ég gat síðast horft á fréttir 365 miðla í gegnum netið. annað en rúv, sem stendur alltaf fyrir sínu, og skjár einn stendur sig m.a.s. betur en vísir.
þeir sem stjórna vísi eru nefnilega ótrúlega slungnir í að breyta öllu sem þeir snerta í hrossatað. hvort sem það eru vefblöðin (sem maður hefur aldrei getað dánlódað beint, eins og mogganum, heldur þarf að skoða í vafra), bloggsíður (fólk.is var fyrst, síðan keyptu þeir blog.central af Edda og gjörsamlega drápu stærsta blogkerfi landsins með auglýsingum og fleiru) eða sjónvarp í gegnum netið.
**********hægri kratar og öfgafólk ýmiskonar:
ótrúlega gaman að sjá að Kletturinn er endanlega kominn út úr skápnum sem dyggur sjálfstæðismaður, og jafnframt að hann er réttu megin skynsemismarka innan ungliðahreyfingar flokksins.
skemmtilegt líka hversu margir laganemar eru með honum Árna í því að reyna að tryggja flokknum farsæla framtíð, greinilega gott fólk sem stundar lögfræðinám, sem vill bæta hag landsins.
ég vil lýsa eftir því að UVG taki núverandi stjórn Heimdallar sér til fyrirmyndar og reyni að stýra VG í meiri skynsemisátt.
ég skil vel að menn geti verið ungir vinstri grænir, því hugmyndin er ágæt. en að kjósa þessa rugluðu dalla sem sitja á þingi fyrir flokkinn hef ég aldrei getað skilið. ég þoli bara ekki menn sem eru með svona "tunnel vision", að vera algerlega á móti öllum iðnaði sem gefur frá sér einhverja mengun, öllu raski á náttúrunni, allri einkavæðingu, öllum her o.s.frv. finnst mér svo ægilega heimskuleg. ekki láta svona menn (takk f. linkinn ÞHG) eyðileggja framtíð þessarar hreyfingar.
við í þögla meirihlutanum erum búnir að fá okkur fullsadda af öfgamönnum beggja megin borðsins, sem öskra og öskra eins hátt og þeir geta. þeir eiga rétt á því að hafa geðveikar skoðanir, en leiðinlegt er þegar þeir láta eins og þær séu samhljóma skoðunum okkar í þögla meirihlutanum.
skrifaði
Halli
kl.
16:20
1 blabla
Merkimiðar: dýrakynlíf, fréttamiðlar, öfgasinnaðir unglingar
miðvikudagur, september 13, 2006
myndir, íslenskir hestar, sól
ég ætla ekki að segja söguna af því hvernig flottu myndavélinni minni var stolið úr slóvakískum bíl í Tékklandi í júní.
Lilja á myndavél og ég fæ hana kannski lánaða, ef einhver hefur áhuga.
á meðan:
"Hvar er Valli" bækur hafa sumsstaðar verið bannaðar vegna mynda á borð við þessa hérna. sjáiði klámið? (strákurinn með ísinn)
talandi um teprur, þessi mynd er svolítið lýsandi...
*****************
tvennt áhugavert í 24timer í dag:
1. blaðamaður frá fríblaðinu fór öndercover og hafði sambandi við 'Peter', sem leigir út íslensku hestana 'Max' og 'Mille', til fólks með annarlegar þarfir. "I hverdagen er han familiefar, om natten lejer han heste ud til sex" .. kynlíf við dýr er að þeirra sögn ekki ólöglegt hér, en hefur undanfarið verið bannað í löndunum í kringum dk.
kemur þar fram að hinn þriggja ára foli Max hafi þegar verið seldur til 26 kúnna, þetta hálfa ár sem Peter hefur verið í business.
ekki kom fram hversu vinsæl hryssan
Mille væri.
ætli landbúnaðarráðherra hafi vitað af þessum skuggaheimum, þegar hann sagði fyrir hálfu ári síðan um tollasamning milli Íslands og ESB: "Þessi samningur hefur gríðarlega þýðingu, ekki síst fyrir íslenska hestinn, ... Nú eru þessir erfiðu tollar sem hafa hindrað töluvert viðskiptin [með hesta] og gert þau dýrari að fara, þannig að það liðkar mjög fyrir og auðveldar viðskipti, ..." (mbl)? maður spyr sig!
2. spáð er 22 stiga hita amk fram til mánudags. 25° í dag voru líka full mikið af hinu góða. frábært að sumarið sé hérna, stuttbuxur og hjólamenning.
skrifaði
Halli
kl.
18:48
0
blabla
Merkimiðar: dýrakynlíf, glæpamenn, teiknimyndir






