eitthvað nýtt á hverjum degi

í dag lærði ég ýmislegt nýtt, en þegar langt var liðið á kvöldið stóð upp úr:
Haraldur
HaraldurS [] gmai1 punktur com

í dag lærði ég ýmislegt nýtt, en þegar langt var liðið á kvöldið stóð upp úr:
fann nýlega óútgefna stílabók með nafninu Ljóð '97 eftir Harald Stþ., 9. KJ.
í bókinni eru samtals 3 frumsamin ljóð, það hefur greinilega verið skylda að yrkja þau.
athugasemdir skrifaði að líkindum Anna Kristín Þórðardóttir íslenskukennari. ljóðin lýsa viðhorfum 15 ára drengs til lífsins og tilverunnar, samtímans og alls sem er, fyrir 10 árum síðan.
---
Fæðing sólarinnar
Þá úr guði vellur:
Já
Varð þá mikill hvellur
Sólin fæddist ný og smá
Guðirnir fengu hellu
. Frumlegt Ágætt
Þykka bókin & námið
Bókin ógeðslega þykk
henn'ætlar aldrei að ljúka
Kannski ég geri öllum grikk
Og láti námið fjúka
. Gott
---
Ísland
Hrikaleg’er Veldið stórt
Hagkaup er all’að gleypa
Og núna ætlar Stöð mín tvö
Alla aðr’að sneypa
. Gott
það var óákveðinn ungur maður sem sumarið 2002 innritaði sig í lagadeild HÍ, eftir að hafa skoðað þær námsbrautir sem í boði voru innan skólans.
ekki datt honum í hug að tæpum fimm árum seinna myndi náminu ljúka, jafnsnögglega og það hófst. með einu pennastriki. einu 'send' í tölvunni.
ca. 42.000 orð, 376 neðanmálsgreinar, 116 bls. af efni, skreyttu með hugtökum á borð við Beweisverwertungsverbot, théorie morale des preuves, probations non sunt coartandae, bevisumiddelbarhedsprincippet, shocks the conscience, överskottsinformation, area ‘par excellance’, rammi laganna, o.s.frv., o.s.frv.
ritgerðin er out of my hands.
allt byrjaði þetta þegar ég fékk loks inn í leikskólann Hálsakot í Seljahverfi. eða var það þegar ég stundaði nám við gæsluvöllinn á Seljabraut?
ehh, það er seinni tíma pæling - ég er farinn að fá mér bjór. maður verður þyrstur af rúmlega 20 ára samfelldri skólagöngu.
undirritaður berst nú fyrir hugmyndarfræðilegu lífi sínu vegna metnaðarstols.
þá er bara að leita á kunnug mið ...
a) reyna að fókusa á það sem skiptir máli:
b) finna eitthvað til að hlæja að (þessi hjólastólamynd sem hengur í Lögbergi fær mig alltaf til að brosa út í annað, því beint fyrir neðan hana er ... teppi):c) skoða eitthvað færeyskt - í Foroyjum búgva Foroyingar og tann ungdómur, ið her býr, eru eisinni Foroyingar:
það er til meistaranám, við Júníversití of London, í mannréttindum.
lögfræðitengt grunnnám er greinilega ekki nauðsynlegur undirbúningur fyrir þetta nám. né heldur virðist það gera nemendum kleift að átta sig á innanlandslöggjöf í mannréttindum. jah, eða virkni alþjóðlegra mannréttindasáttmála.
það eru amk þær ályktanir sem ég dreg af grein sem lesa má á vísi, eftir mastersnemanda í umræddu námi.
þrátt fyrir góðan vilja, telur nemandinn að Mannréttindasáttmáli Evrópu hafi aðeins gildi "alþjóðalaga".
er nemandinn það vel að sér í stöðu sáttmálans á Íslandi að hún telur Evrópudómstólinn dæma um hvort íslenska ríkið hafi gerst brotlegt gegn sáttmálanum.
ætli það væri dónalegt að segja henni frá því að Evrópudómstóllinn sé dómstóll ESB og að Ísland sé ekki í ESB?
eða að dómstóllinn sem settur var á fót með Mannréttindasáttmálanum heiti Mannréttindadómsóll Evrópu?
eða að sáttmálinn sé hluti af íslenskum lögum, sem íslenskir dómstólar dæma eftir?
ætli það myndi ekki sær'ann of mikið. en guð hjálp'onum ef hann er að borga peninga fyrir þetta nám.
nú kemur Dato ekki lengur út. enda síst af fríblöðunum þremur sem borin eru í hús, og minnst lesið.
þetta þýðir að ég fæ bara 24timer heim til mín, því Nyhedsavisen hefur einhverra hluta vegna sniðgengið blokkina mína, að undanskildum nokkrum dögum í nóvember. nú verður ennþá erfiðara að vakna á morgnanna og sækja blöðin.
ætli maður sé með Stokkhólmseinkennið ef maður vill helst ekki hætta að vera í skóla?
tjah!
sú löngun er a.m.k. mjög almenn. hins vegar bý ég yfir sérstökum vilja til þess að a.m.k. klára þessa ritgerð.
og þið vitið hvað sagt er:

skrifaði
Halli
kl.
11:19
0
blabla
Merkimiðar: femínistar, fólk, happy talk, laganemar, skóli, skrif
stundum, þegar maður er að skrifa lokaritgerðir, lendir maður á stíflu.
ég hef verið að byggja upp ágætis ritstífluvegg. það er að byggjast upp lón sem ég hef nefnt Hal's-lón.
á eftir geng ég kannski niður Strikið og mótmæli því að stíflan hafi orðið til, "vi er ikke ligeglad"
ps.: það er solarium / thai massage sem er opið á næturnar rétt hjá þar sem ég bý. það var m.a.s. sýnt frá því í sjónvarpsfréttum um daginn, í umfjöllun um fyrirhugað hjálpiprógramm fyrir þolendur vændisfíknar í borginni. hver sagði svo að það gerðist aldrei neitt á Austurbrú?
óska ykkur öllum happy ending!
ritgerðarskrif eru byrjuð á fullu. við heimildavinnu rekst maður oft á mikla gullmola, hér eru tveir úr bókinni Understanding Evidence sem ég tók á bókasafninu í gær:
ahh, alveg að verða búið í bili. what a gloooorious feeling, I'm happy again - verða lokaorðin mín í munnlega prófinu mínu á morgun.
European Court of Human Rights - Tuesday 12 December 2006
Examination at 12.30 pm in CSS 2.0.16, Øster Farimagsg. 5, Bygn. 2
All students must be present 10 minutes before the time stated above
mér finnst deildin hérna aftarlega á laganáms-merinni í marga staði. fyrir utan að hafa lesstofuna opna til 9 á virkum dögum og lokaða á sunnudögum, þá eru prófin ekki alltofvel skipulögð:
... og ekki heldur hér í Evrópu.
blessuð rigningin ætlar ekki að breytast í snjó. það er þó snjór í Tívolí, þaðan sem þessi mynd er tekin.
þessi færsla er aðallega til að síðasta blogg blasi ekki við fólki þegar það
slysast hingað inn, enda er hún ósmekkleg með eindæmum.
hér er mynd af skyri.dk - það er verra en íslenskt skyr.
jólapróf áðan, meðaleinkunn - grét aðeins inní mér því ég var farinn að halda að ég væri svo klár. neibb, minn innri meðalmaður er greinilega enn öflugur - vildi bara að ég hefði eytt minni tíma í að læra fyrir það ... dúdúdú
fyrsti tyrkneski neminn sem komið hefur í skiptinám hingað við deildina var felldur í prófinu. menn eru vanalega ekki felldir í svona Erasmus nema málefnaleg ástæða sé fyrir hendi, t.d. ef menn svindla, kunna ekkkkkert, eða eru frá Tyrklandi. æ hún er frekar heimsk greyið - og talaði svo lélega ensku að við héldum að hún væri Frakki. hún tók þessu með miklu jafnaðargeði - ég var eiginlega leiðari yfir þessu en hún - en ég er hræddur um að hún hafi bara ekki fattað þetta.
við skötuhjúin verðum túristar hér yfir hátíðarnar - munum vera í hygge. ég kem heim 10. jan og fer aftur út stuttu seinna. ritgerðarsmíð í Danmörku ... mmm ...
prufaði að drekka aðeins af koníakinu sem Hrannar gaf mér hér um árið fyrir prófið áðan, en það virkaði ekki. þannig að fyrir næsta próf: læra lítið, drekka ennþá minna, hlakka til prófloka.
jólaOratoría Kaupmannahafnadeildar verður haldin 19. des. á NASA - þó ekki við Austurvöll heldur í litlum hafnarbæ kendum við Kaup.
hver kemur með?
Muscatel hvítvín frá Ungverjalandi er einkar milt fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í drykkju. það mætti fást á Íslandi. mætti líka fást í Danmörku.
ég á eina flösku eftir frá Tékklandsförinni í október - verð greinilega að fara þangað aftur.
veit ekki hvort madur á ad hlæja eda gráta:
Tucker "You won't have to worry about getting pregnant."
[...]Tucker "Everyone's doing anal. It's the new black."
[...]
Tucker "It's the preferred method in Europe. Especially with the runway models. Don't you want to do runways in Europe?"
[... ...]
The combination of synthetic AstroGlide and rancid stench of raw fecal matter combined to turn my stomach, which was full of seafood, veal and wine, completely over.
- öll sagan. Hr. XY benti mér á hana, annadhvort tví hann vildi hlæja mig eda skemma, tú veist hver tú ert :P
***
tetta er eitt af tví sem ég á ad læra fyrir prófid á morgun:
excellent exam sagði Dirk Voorhoof, belgíski kennarinn minn í MediaLaw, þegar hann kom út til að segja mér einkunnina mína áðan. hafði hann útskýrt fyrir hollensku stelpunni á undan mér (sem fékk 9) að 8 væri average og 10 mjög gott. á undan mér höfðu verið gefnar sexur, áttur, níur og ein tía. 13: is given for the exceptionally independent and excellent performance *) 11: is given for the independent and excellent performance 10: is given for the excellent but not particularly independent performance 9: is given for the good performance, a little above average 8: is given for the average performance 7: is given for the mediocre performance, slightly below average 6: is given for the just acceptable performance
spurt var út í ritgerðina mína, Matter of General Interest, þar sem ég fjallaði m.a. um Von Hannover dóm MDE, og prófspurningin var um Schmidberger v. Austria - dóm ED um fjórfrelsið og freedom of assembly / expression.
fyrsta skipti sem ég fæ 10 fyrir frammistöðu á prófi í lögfræði. á Íslandi hafði ég hæst fengið 9,5 og í Tékklandi A. það eina sem skemmir fyrir er að einkunnir eru frá 0-13, sem þýðir að á íslensku fékk ég 7,7. hins vegar virðist það vera rétt sem var í blöðunum að kennararnir hérna kunna ekki að nota skalann á réttan hátt - t.d. veit ég ekki um sálu sem fengið hefur hærra en 10 hér í KU.
útskýring á danska kerfinu:
For den usædvanlig selvstændige og udmærkede præstation
For den udmærkede og selvstændige præstation
For den udmærkede, men noget rutineprægede præstation
For den gode præstation, der ligger lidt over middel
For den middelgode præstation
For den ret jævne præstation, der ligger lidt under middel
For den netop acceptable præstation
*) The grade 13 is used very seldom and then only for an extraordinary performance.
The grade 6 is the lowest pass grade for examinations where a pass grade is required.
(þetta er ekki Örsted-kerfið, eins og sumir hafa haldið fram, heldur heitir það 13-skala kerfið).
tad virdist til sids ad brosa gódlátlega til fólks af hinu kyninu tegar laganemar mætast, hér vid Kaupmannahafnardeild Lögbergs Group. annadhvort tad, eda ad kvenlaganemum finnist ég broslegur. ætli tad sé mynd af mér hangandi hér e-stadar uppi?
madur reynir ad brosa á móti - en tad er ikke svo audvelt ad vera ligeglad tegar prófin vofa yfir. danskir laganemar eru líka miklir eftirbátar teirra íslensku í tví ad læra frameftir, hér eru flestir farnir um kveldmatarleydit.
ég ætla ad byrja ad flytja hingad inn Íslenskt STRESS, adeins ad koma hjólunum af stad. äääfram med tetta, vitidi ekki ad KB´Banki var byggdur á einum degi!
hættid svo ad missa ykkur í athugasemdunum, mér langar ekkert ad heyra í neinu ykkar!
Visions of Ecstacy (1989) e. Nigel Wingrove. skemmtileg mynd, listræn og ögrandi 18 mín stuttmynd.
St. Teresa frá Avila sýnd í "lesbískum" athöfnum (brjóst, læri læri) og fer líka í sleik við Jesú á krossinum.
var neitað um flokkun í Bretlandi vegna trúlasts og afturhaldsseggirnir (miðaldra hvítu karlarnir) í MDE, þ.á m. okkar eigin Mr. Thór Vilhjálmsson töldu það bara flott hjá Bretunum að banna myndina.- uppáhalds setningin mín úr dómnum: "Indeed, [Mr. Wingrove] acknowledged that as the video stood, it could have been called Gay Nuns in Bondage"
við getum verið stolt af okkar manni - þetta var minna trúlast heldur en Sálin hans Jóns míns í uppfærslu Spaugstofunnar, en þeir eru auðvitað annálaðir Porno-dogs!
myndin var sýnd í tíma í MediaLaw og þar sem ég er svo listrænt þenkjandi, las ég allskyns líkingar og tilvísanir úr henni. aðrir í bekknum, f. utan eina ástralska stelpu, voru á því að þetta væri ósmekklegt rusl, en auðvitað ekkert sem þyrfti að banna með öllu.


tjellingin sem sýndi okkur myndina tjáði okkur reyndar að myndin myndi líklega fá +7 rating hér í DK, vegna Stigmata sára sem Teresa gerir á sig í trúarvímunni (sjá mynd).
þegar maður les undir próf þá gerist ekki margt áhugavert á meðan. þessvegna er nauðsynlegt að detta í drykk, eða í mat eins og ég lenti í áðan - æðislegt að vera rifinn úr dómi læris yfir í kássu.
ég fékk einu sinni að sjá hjá fyrrum rekstraraðila central.is hvernig traffík á bloggsíðum eykst rooohoosalega þegar líður að prófum. það er einfaldlega vegna þess að allt verður athyglisvert og skemmtilegt þegar maður er límdur við bækurnar.
í dag í Júrahúsinu:
- bananar sem hafa fengið að sitja of lengi geta farið að gerjast - það sveif á mig af bananaáti í dag.
- gamall grískur (?) maður sem situr oft á lesstofunni en horfir aðallega út í loftið. fer stundum í tölvustofuna og það kemur fyrir að konan hans sé með honum og þau tala og tala á grísku (?). mig grunar ekki gvend.
- hommalegi (metro?) gæjinn sem er alltaf að líta til mín. hvað á maður að gera - líta illilega á hann? heldur hann þá að ég sé að spila hard tú get? taka með sér klámblöð í skólann? óþægilegt!
... Gústi? (ekki orð frá þér Hrannar!)
súrleikinn að éta mann:
* peanut butter? penisbutter and jelly (hoho fyndið);
* the death row phenomenom? something like a phenomonem ...
* ban against torture? turtles! teenage mutant ninja torture! (vissuði að það kæmi Turtles mynd í mars? trailer)
- símafyrirtækið mitt (Sonofone - so-no-fón-4-u) rukkar mig fyrir að hringja þótt það svari ekki! þarf að betala fyrir 30 sek. símtal án þess að segja stakt orð!
svo ég tali ekki um þessa konu sem segir: dú har nú minna en fimm og túve króner tilbage på din kontor áður en símtalið byrjar - so what? f**in bids.
- hér er hjólaljósaskylda frá 16:00-7:49, sharp! ekkert múður. ég er með drulluflott hjólaljós - ætli það sé jólahjól, damm damm damm?
- jafnvel ruslpóstshólfið mitt er áhugavert þessa dagana. það hefur lengi verið í kringum 700 stk. (póstar eldri en 30 dagar eyðast sjálfkrafa) - en jólaspamið er komið upp í 1302 and counting. það eru 43 á dag! æðislegt!.
verst að þetta er mestallt sama draslið, og mér langar ekki í neitt af því, og þó:
Don't let your partner leave you because of being unhappy with the duration of your acts. She won't want to get out of your bedroom, hoping other girls don't find out about you.
það er alltaf eitt hvað að gerast
- tengdó nýfarin - tívolí, tívolílílí (ágætt)
- mamm'og pabbi koma á morgun í 2 nætur - maður reynir að finna tíma til að gera e-ð skemmtilegt með þeim.
- systir mín kom líka líka um daginn, gleymdi að þakka heimsóknina.
- mér skilst það sé brauðrist á leiðinni... mmm brauðrist.
ps. það er hér með staðfest, það er til heimilistækjaklám: kynlíf með brauðrist (varúð, myndin inniheldur typpi).
skrifaði
Halli
kl.
21:49
0
blabla
Merkimiðar: draumar, end of the world, fólk, happy talk, hestar, köben, laganemar, skóli

ef einhver þarna úti þjáist af prófleiða eða öðrum almennum leiðakvillum, þá bendi ég á
(Andy) Warhol-it: thomasonrails.com/warholit/
Hafnar úr gufu hér
heim allir girnumst vér
þig þekkja að sjá;
glepur oss glaumurinn
ginnir oss sollurinn,
hlær að oss heimskinginn :P
Hafnar slóð á
Leiðist oss fjalllaust frón,
fær oss oft heilsutjón
þokuloft léð,
svipljótt land sýnist mér
sífellt að vera hér,
sem neflaus ásýnd er
augnalaus með
Bjarni Thorarensen - Íslands minni (ort á Elers Kollegium, Store Kannikestræde 9)
***
en það er allt gott héðan af flatlendinu.
- ritgerðin mín um Closed-shop agreements og neikvætt félagafrelsi skv. 11. gr. mse er orðin 11.705 stafir - 5 stöfum of stór.
- af 8 borgarstjórnarfulltrúum borgarinnar sem búa í Asturbrú eru 7 konur - ætti ég að vera reiður og heimta fléttulista? VG? meikar það sens? bleh!
- Metro-byggingin þar sem flestir tímarnir fóru fram á önninni er víst byggð á grunni elsta skóla DK, Metropolitan skólans. hún er gömul, en ljót.
- Júrahúsið er líka þokkalega gamalt. lyktin uppúr klósettunum er líka eftir því, þangað hefur margur júradískur þankagangurinn runnið niður. helvítið er opið til 9 á kvöldin, 5 á laugard. og lokað á sunnud.! erðiggi að fokking grínast? ekki vissi ég hvað átt hafði fyrr en ...
I) flott hjá mér að koma í ECHR-tíma í morgun og vera sagt að það hafi verið auka tími í gær.
"The session on art. 11 and partly on art. 10 will be rescheduled together with the class on Thursday and will be held asap."
- þetta skildum við íslendingarnir (nema einn) sem svo að
a) tími um 10. og 11. gr.,
b) ásamt tímanum sem vera átti á fimmtudegi
=> yrðu settir á dagskrá síðar, og það asap!
en neiiii... bara 10. og 11. gr. tíminn verður seinna, tíminn á fimmtudegi var óhreyfður.
ég segi nú bara eins og Vala: stúbbid f*'in bel^^bean!
II) seinna um daginn mætti ég í tíma í MediaLaw og var þá minntur á að skila ætti blessaðri synopsisinni 21. nóv, ekki 27. eins og mig hafði minnt.
en varðandi þessar blessuðu sínópsur hér við deildina, þá er engin lin-kind sýnd...
úr leiðbeiningum f. synopsis við lagadeild KÚ:
Sub-clause 4: According to the Curriculum clause 20, sub-clause 2, no. 3, a written synopsis cannot exceed more than:
1 (one) student: Maximum 11.700 characters (space bar not included)
[...]
Sub-clause 5: If the mentioned page maximum exceeds the given curriculum standards for a written thesis and written papers presented as substitution for part of an examination, the Law School Administration may turn down the paper[!!!]. Furthermore, the examiner may turn down the student from the oral examination if the synopsis exceeds the given standards.
ps. fínt veður hérna í Evrópu, 11°C, aðeins farið að hausta ... vona að það sé jafngott veður heima. ^-^ djók!