Hvað er að gerast:

Sýnir færslur með efnisorðinu Landlæknir. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Landlæknir. Sýna allar færslur

fimmtudagur, júní 26, 2008

ruglaður, þreyttur eða sljór?

ég held að þessi hengingarlampi sé málið.

annars er ég að reyna að gera upp við mig hvaða ofnæmislyf ég ætti að prufa í staðinn fyrir hin vita gagnslausu og ólyfseðilsskyldu Lóritín og Clarityn (sem bæði innihalda loratin).

valið stendur á milli

1. Kestine
(sem inniheldur ebastin), sem er eitt sterkasta ólyfseðilsskylda ofnæmislyfið og meðal aukaverkana þess eru skapgerðarbrestir, rugl og svefntruflanir.
- ég er nú þegar með svefntruflanir vegna ofnæmisins.
- Baggalútur mælir með Kestine.

2. Telfast
(sem inniheldur fexófenadín), sem er lyfseðilsskylt og meðal aukaverkana er sljóleiki og höfuðverkur, en ekkert rugl.
- ég er nú þegar með hausverk og sljóleika vegna ofnæmisins.
- allir svölustu ofnæmissjúklingarnir í kringum mig virðast vera á Telfast.

3. þriðji kosturinn væri svo Aerius (sem inniheldur deslóratadín), sem er lyfsseðilskylt og meðal aukaverkana er þreyta og gula (!?!).
- ég er nú þegar þreyttur, sbr. svefntruflanirnar.
- það stendur að það hafi ekki róandi eða sljóvgandi áhrif, en verður maður ekki svolítið rólegur og sljór þegar maður er þreyttur?

annars eiga öll ofnæmislyf það sameiginlegt að þau "hindra áhrif histamíns í líkamanum, en histamín er það efni sem veldur helstu einkennum ofnæmis" - það virðist bara mjög einstaklingsbundið hvað þarf til að hindra áhrif histamíns.

þriðjudagur, mars 04, 2008

stærra jang!

ég fæ svo mikið magn af typpastækkunartölvupósti að ég get efnisflokað hann:

1. byssu- og kraftamyndlíkingar:
Your cannon is everything. Women simply LOVE a man with a big weapon between his legs!

Ram your new found longer gun into her and hear her moan

Male power will be mush harder


2. alþjóðlegur baráttudagur kvenna (þessi kom mér á óvart):
8th march is almost here, be ready for women desire
Less than 2 weeks till womens day. get ready

international women holiday almost here. Be strong!
Show all your power, for your girlfriend on 8 march

make luv all night on 8th
get your friendy up. best for your woman on 8 march


3. slæmt sjálfsálit:
It ups to you what to do to lengthenn or to be a looser with small size.

How can you give your lady pleasure if your equipment is like a matchstick??

Change your entire bedroom experience today.

Don't let her sleep with other men because she's not satisfied with your performance

Your chick loves enormous instrumennt but the problem is that you have small one.
Don't worry! You have astonishing chance to solve this trouble.


4. vondi strákurinn:
You'll be a giant of bad.

Ever heard the sound of a huge one slapping against a tight woman's butt?

Do you like having wild, sensual sex? Make sure your tool is up to the job.

Girls will be queueing up to stroke your shaft.


5. aukin kvenhylli:
Get wall to wall women, and twice as many nubile(*) breasts

Your measurement of success is by the INCH.

Your >!ck will win all women's admiration

(*) Nubile þýðir marriageable: of girls or women who are eligible to marry

miðvikudagur, febrúar 13, 2008

hversu tanaður er meðalmaðurinn?


í dag svarar Vísindavefurinn spurningunni um kjörþyngd meðalmannsins, miðað við æskilegt Body Mass index:

Meðalhæð íslenskra karlmanna er nú 180,6 cm og kvenna 170,6 cm.

Kjörþyngd meðalmannsins er því á bilinu 60-81 kg og meðalkonunnar 54-72 kg. Eins og sjá má er þetta nokkuð vítt bil, en bent hefur verið á að BMI í kringum miðbikið eða aðeins nær hærri
mörkum, til dæmis í kringum 22-24, sé tengt hvað minnstri heilsufarslegri áhættu.
um leið og ég gleðst yfir því að vera meðalmaður á hæð og breidd, get ég ekki annað en velt því fyrir mér hversu tanaður meðalmaðurinn er.

er hann tanaður í rusl, tanaður í drasl, fölur eins og nár, fölur og gulur, beisaður ...???

sjálfur er ég fölur og gugginn.

föstudagur, september 14, 2007

ertu með heilablóðfall, eða?

Heilablóðfall: ÞRJÚ atriði (eða þar um bil)

(fyrst Madeleine fjöldapósturinn skilaði svo góðum árangri, af hverju ekki að berjast gegn sjúkdómum líka?)

Hvernig þekkir maður heilablóðfall (án þess að sjá inn í heilann á fólki eins og á þessari mynd)

Vinkona einhvers einhversstaðar sem var að fá heilablóðfall hrasaði við og datt. Hún sannfærði viðstadda um að það væri allt í lagi með sig, hún hefði bara hrasað út af nýju skónum sínum. Síðar um kvöldið hringdi eiginmaður hennar og sagði að hún hefði látist og dánarorsökin væri heilablóðfall (ekki sáttur). Hefðu þeir sem voru með henni þekkt einkenni heilablóðfalls þá hefði kannski verið hægt að bjarga henni.

(Ef þú trúir ekki þessari sögu þá eru miklar líkur á að þú verðir étinn af ljóni eða annars konar ljósu kattardýri.)

Heilablóðfall dregur suma til dauða en lamar aðra. Taugasérfræðingur ku geta snúið við afleiðingum heilablóðfalls ef hann fær sjúklinginn nógu fljótt, galdurinn sé að greina blóðfallið og koma sjúklingnum á sjúkrahús innan þriggja klukkustunda.

HVERNIG HÆGT ER AÐ ÞEKKJA HEILABLÓÐFALL – ca. þrjú mikilvæg atriði sem gott er að miða við:

1. Biddu viðkomandi að BROSA.

2. Biddu manneskjuna að TALA, SEGJA EINFALDA SETNINGU Í SAMHENGI (sólin skín í dag en í gær var rigning)

3. Biddu hana að LYFTA BÁÐUM HANDLEGGJUM UPP.

[Ath.: enn eitt merkið um heilablóðfall: Biddu viðkomandi að reka út úr sér tunguna og ef hún (tungan) er bogin til annarrar hliðarinnar getur það líka verið merki um heilablóðfall.]

Ef viðkomandi á í vandræðum með eitt eða fleiri af þessum fyrirmælum hringdu þá í 112 og lýstu einkennunum.

fimmtudagur, desember 21, 2006

Vinstrivon

hvernig er hægt að vera á móti breytingum á þessu?


Áfengisgjöld á Íslandi í samanburði við ESB-lönd og
önnur lönd sem hafa sótt um aðild.

(5. apríl 2004.)

Sterkt (kr.)
lítri 40%
Vín (kr.)
lítri 11%
Bjór (kr.)
lítri 5%
Austurríki 342 0 22
Belgía 568 46 18
Búlgaría 88 15 3
Bretland 1.066 239 81
Danmörk 667 92 40
Eistland 317 65 15
Finnland* 970 207 86
Frakkland 496 3 11
Þýskaland 447 0 8
Grikkland 323 0 12
Holland 609 57 21
Írland 1.348 263 85
Ísland 2.646 462 161
Ítalía 220 0 15
Kýpur 71 0 19
Lettland 316 49 9
Litháen 317 42 9
Lúxemborg 356 0 8
Malta 829 0 8
Pólland 369 32 18
Portúgal 302 0 13
Rúmenía 37 6 5
Slóvakía 205 0 8
Spánn 254 0 8
Svíþjóð 1.891 208 69
Tékkland 263 0 0 ,4
Tyrkland 1.183 123 54
Ungverjaland 235 2 16
*Tekið er tillit til lækkunar áfengisgjalds 1. mars.

frv. til laga um breytingu ýmissa lagaákvæða sem varða sölu áfengis og tóbaks var lagt fram 5. okt. sl.
eftirfarandi þingmenn flytja:
1. Guðlaugur Þór S
2. Ágúst Ólafur Sf
3. Birgir Ármannsson S
4. Bjarni Benediktsson S
5. Sigurður Kári S

6. Arnbjörg Sveinsdóttir S
7. Pétur Blöndal S
8. Birkir J. Jónsson F
9. Einar Már Sigurðarson Sf
10. Katrín Júlíusdóttir Sf

11. Guðrún Ögmundsdótti Sf
12. Gunnar Örlygsson S
13. Ásta Möller S

14. Sigurrós Þorgrímsdóttir S
frumvarpið gengur mjög stutt í frjálsræðisátt og því skrítið að sjá að flutningsmenn þess eru annarsvegar "stuttbuxnastrakár" Sjálfstæðisflokksins og hins vegar fólk sem lítið hefur farið fyrir / illa hefur fallið í kramið á þinginu sem er að líða. undir hvoruga flokkunina fellur þó Katrín Júlíusdóttir, sem er bæði hörkudugleg og án efa myndarlegasti þingmaður aldarinnar hingað til.

á listanum er enginn VinstriGrænn. þarf að segja meira um hófsemi VG?
ég bind þó vonir við upprennandi VinstriGræna á borð við Auði Lilju.

"To be young, really young, takes a very long time."

sunnudagur, september 24, 2006

frægasta fatlaða rokkstjarnan, fötluð smáauglýsing

má til að deila með ykkur laginu "what a waste" eftir Ian Dury, þann mikla snilling sem gaf upp öndina um aldamótin síðustu.

:::::þessi dreifing á höfundarréttarvörðu efni er í kynningarskyni og í anda markmiðs höfundaréttarlaga, þ.e. að stuðla að menningarstarfsemi og listsköpun, með því að kynna þá sem hingað villast fyrir lítt þekktum og illfáanlegum lögum manns sem þrátt fyrir að hafa verið með mænusótt/lömunarveiki lagði mikið af mörkum til rokkheimsins:::::::::

smá trivia af wikipediu:
His 1981 song "Spasticus Autisticus," intended to mark the International Year of the Disabled, was banned by the BBC despite having been written by a disabled person. The lyrics were uncompromising:

So place your hard-earned peanuts in my tin
And thank the Creator you're not in the state I'm in
So long have I been languished on the shelf
I must give all proceedings to myself

fleiri frí lög eftir Durarann hér; lög og myndbönd hér og kallinn er líka á youtube - þar má m.a. finna 2 frægustu lögin hans sex and drugs and rock and roll og hit me with your rythm stick, auk áðurnefnds spasstikus autistikus.

*************
mikil snilld þessi hrekkur Leibbans - smáauglýsing í fréttablaðinu:
18. September
Tek að mér ýmiskonar smáaðgerðir t.d draga endajaxla, fjarlægja hálskirtla og fjarlægja tvíburabróðir. Er með ágætis aðstöðu. Upplýsingar gefur Helgi Valberg í síma 895 8479
sagt er að jafnvel Landlæknir hafi fallið fyrir þessu djóki! fjarlægja tvíburabróður? haha ... kannski takmarkað fyndið fyrir Valberginnahh?