Hvað er að gerast:

laugardagur, febrúar 25, 2006

á endanum, eftir að einn af fire-starterunum hafði pissað svolítið á eldinn, komu starfsmennirnir með slöngu, og fóru að sprauta á eldinn. mínir menn byrjuðu að sjálfsögðu að reyna að sparka í og hrækja á gæjana með slönguna, þannig að það var bara sprautað á þá.














þetta var annars fínn leikur, jaftefli 1:1, svolítið kalt, en góðar pulsur og bjórinn á þokkalegu verði, 23 Kz.














það þykir mjög eðlilegt að vera með læti á íþróttaviðburðum. á íshokkíleik í gær fór t.d. einn áhorfendanna inná ísinn og fór að berja dómarann. honum var bara vísað aftur í sætið sitt og leiknum haldið áfram :P















... minni ykkur á að byrja á neðstu færslunni í dag, til að fá alla söguna. bið að heilsa. Posted by Picasa

þetta er eiginlega í öfugri röð, þar sem ég get bara sett inn fjórar myndir í einu enn sem komið er.
hér eru vallarstarfsmenn að reyna að slökkva eldinn, en gaurarnir eru að halda hliðinu föstu svo þeir komist ekki til að gera það.














loks hleyptu þeir einum gæja inn, en hann gerði nú ekki mikið.














...














"þið komið skoekki hingað helvítin ykkar" Posted by Picasa

það má semsagt ekki koma með áfengi eða hluti sem hægt er að kasta inn á völlinn, inn á leiki. hinsvegar eru flugeldar og blys meira en velkomnir. í fjarska eru Pragverjar, innilokaðir í búri.










gæjarnir í stúkunni við hliðina fóru að brenna rusl.












úr varð ágætis eldur, sem m.a. náði til 2 plastsæta. lyktin var góð.













áfram strákar, þið getið þetta.
 Posted by Picasa

fleiri myndir og etv einhverjar sögur

hér gefur að líta megnið af búsáhöldunum mínum. vatnshitari til að sjóða vatn, ílát fyrir túnfiskasalatið mitt og litlu sætu brauðin sem kosta 1,5 Kz (Korunan var að hækka uppí 2,8 ísl.kr.- helvítis krónan)








hér er útsýnið þegar gengið er inn í íbúðina. klósetthurð og eldhús til vinstri, svalahurðin þarna útí enda.










María á góðum degi, eftir að við fórum í fyrsta lögfræðitímann.













hér er kallinn mættur á fótboltaleik, FC Brno gegn Sparta Prag. Þetta eru Hollendingar sem eru hér bara til þess að skrifa lokaverkefnin sín, einmitt. í bakgrunni má sjá bandvitlausa áhorfendur Brno, sem áttu eftir að gera allt vitlaust  Posted by Picasa

fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Erfiður miðvikudagur

Dagurinn byrjaði með því að ég fór með Maríu og Marcusi í kennslustund. hún gekk vel, skemmtilegt að hafa 2 samnemendur og einn kennara, og við erum öll jafn léleg í ensku. kennarin mundi eftir mér frá því ég kom í heimsókn f. 2 árum, tók í höndina á Marcus og sagði you are Haraldur? í mötuneytinu í Nýja-Lögbergi er bjórinn seldur á 10 Kz, sem er næstum sama verð og út í búð. svo fórum við María á living, sem er sport bar, og pöntuðum borð fyrir 8 fyrir undanúrslitin í íshokkíinu á ólympíuleikunum, fyrir föstudag.

eftir að við komum heim var klukkan orðin margt og bara tími f. einn bjór áður en við fórum á fyrsta country presentationið fyrir þesa önn. nú voru það tékkland og slóvakia sem kynntu sig, og ohhh boy voru þessir krakkar að skíta í brækur. spiluðu fyrir okkur þjóðsöngvana sína, dönsuðu eins og fífl og spiluðu gömul kommunistastef. ég lærði líka nýtt saying: you can tell a lot about a country by their toilets - tékkneskt beint í æð.

talaði betur við frk. Bubbles frá Oklahoma, sem heitir víst Taliana. held ég hafi fundið dezu þar, og sagði henni það. hún ætlar að ferðast um alla evrópu ein þessa önn, því hún vill ekki hafa annað fólk í kringum sig sem dregur sig niður ... haha, ég sagði henni að hun hefði rangt fyrir sér :) samt auðvitað á mjög elegant hátt, eins og mér er lagið.

spilaði ég fussball lengi lengi, milli þess sem ég þottist dansa á þessum skemmtistað sem heitir Mix, og er eini staðurinn í bænum sem er með turn-table (það eru btw 400 barir í Brno, sem telur 400 000 íbúa). svona er týpískur dagur, vaknað, reynt að gera eitthvað sniðugt eða praktískt, farið á barinn með e-m hópi og etv reynt að kynnast fleira fólki. hér tala flestir rassmussarnir small talks ensku, maður er orðin mjög góður í henni.

á morgun er ammælispartý hjá erika the amarican, hún og valborg búa saman og ég spanderaði 120 kr. isl. í hvítvínsflösku fyrir hana. hún verður nebblega nógu gömul til að drekka á morgun, þ.e. i ameríku.

jæja sakna ykkar þarna heima. er samt að reyna að finna tímabundna staðgengla, læt ykkur vita ;)

þriðjudagur, febrúar 21, 2006

Fleiri myndir!!

þetta er nýji fararskjótinn minn, tram númer eitt. hann er yfirleitt frekar fullur. hlakka ýkt til þegar sumarið kemur og svitalyktin og hitinn fylla vitin.  Posted by Picasa

tramstjórarnir hafa oft gaman af því að gefa í og sjá hvort einhver dettur. nað er nú samt meira í næturstrætóunum, þegar unga fólkið kemur skjögrandi inn með gyrosana sína. ég verð að fá mér svona tram. Posted by Picasa

farið var á íshokkýleik, Brno Kometas á móti einhverjum vitleysingum. Kostaði heilar 60 Kz inn, bjórinn kostaði 20 og pulsan held ég líka.

þarna eru Heiða og María frá Finnlandi ýkt spenntar. Heiða er búin að skora á mig í drykkjukeppni :)

fyrir aftan eru þýsku stelpurnar. þær eru ekkert skemmtilegasta fólk í heimi, en jú sumar þeirra eru ágætar. Posted by Picasa

Spennan var rafmögnuð. Brno Kometas komust yfir, síðan jöfnuðu hinir. þá endurtók sagan sig, en rétt undir lokin skoruðu Brno menn, og allt varð vitlaust (menn búnir að vera að sötra allan leikinn nottla). leikurinn unninn 3:2, teik theettt

Náði fjórum bjórum og ekta hokký-pulsu, svo var auðvitað farið á barinn eftir leikinn. Posted by Picasa

 Posted by Picasa

 Posted by Picasa

mánudagur, febrúar 20, 2006

íbúðin á móti. held ég sé á svona miðausturlandahæð hér á 3. hæð Posted by Picasa

svona býr herbergisfélaginn, þetta er útsýnið úr rúminu mínu. teppið á stólnum er til að biðja með, stundum læðist ég til að biðja með því þegar hann er úti ... einmitt .. úmmallolaha heyyy Posted by Picasa

Útsýnið úr íbúðinni, þetta er blokk A2 Posted by Picasa

María frá finnlandi og Marco slóveni, hér erum við að labba um Nýja-Lögberg, að reyna að finna bókasafn. held að hún minni mig á bæði Dabbý og IAK aka Phatmama Posted by Picasa

hópmynd, allir að horfa á Finnland taka Ítalíu í hitt gatið. Posted by Picasa

frá vinstri: TJ aftur, og þjóðverjarnir Daniel sem er íþróttafrík, og Klemens. Posted by Picasa

Michael frá þýskalandi. hann talar flat-þýsku, og við höfum komist að því að hún er mjög lík íslensku, og tölum því mikið saman á eigin tungum. Posted by Picasa

frá vinstri: Aaro frá finnlandi (hann vann veikasti hlekkurinn í finnlandi, vel sérstakur) og T.J., kani sem var í stríðinu.

myndin er tekin á santana, staður neðar í götunni sem lyktar af myglunni sem er í loftinu. En Gambrino kostar 18 koruny, sem er fínt. Posted by Picasa

Valborg, hollenska útgáfan. að tala við kærastann heima í djúffelboll, eða hvað sem þessir hollensku bæir heita Posted by Picasa