Víetnam á Austurbrú, spritkørelse og grín


Haraldur
HaraldurS [] gmai1 punktur com


skrípamynd dagsins á jp.dk minnti mig á þessa ljóðrænu ræðu pulsugerðarmannsins í bíómyndinni Grænu slátrararnir sem sýnd var á stöð 1 um daginn:
Pulsur hafa alltaf heillað mig! Það má næstum segja að það sé eitthvað goðsagnakennt við að drepa dýr og svívirða það svo með því að stinga því upp í sinn eigin þarm strax á eftir. Geturðu ímyndað þér nokkuð meira auðmýkjandi en að vera troðið upp í rassgatið á sjálfum þér?
skrifaði
Halli
kl.
23:30
2
blabla
Merkimiðar: bollebolle, heilsa, hygge, matur, teiknimyndir
þetta lag heyrði ég í gegnum portúgalskt-þenkjandi vin.
ath. það fer frekar rólega af stað.
sunnudagsbíltúrnum var að þessu sinni heitið til Bjarkalundar (sbr. fjallabjarkirnar sem vaxa þar í kring, ekki Bjarki Skallagrímsson eða Björk Guðmunds), sem Dagvaktin er að gera að næstu Laugavegs-Shellstöð.
frábær vinur var sóttur þar heim og farið í lítinn bíltúr..jpg)
hótelið lítur ágætlega út, en það er frá 1947 eins og flest annað í Reykhólasveit (að frátöldum fjöllunum og Grettislaug)..jpg)
helstu merkisstaðir í næsta nágrenni eru Geirvörtufjöll (Vaðalfjöll), Þörungaverksmiðjan (og leka heitavatnsleiðslan sem liggur að henni) og Grettislaug (sterka), fyrir utan Bjarkirnar auðvitað..jpg)
annars er Reykhólaþorpið álíka spennandi og Búðardalur, varla þess virði að stoppa nema maður þurfi að nota klósettaðstöðu - þetta er kyrrðarstaður, staður til að slaka á..jpg)
ferðalagið er um 200 km frá höbbósvæðinu, yfir Bröttubrekku, gegnum Sælingsdal og yfir Steingrímsfjörð, en þegar reiknað er með 2x Hvalfjarðarveggjaldi borgar það sig ekki að fara þangað á mjög eyðslusömum bíl, a.m.k. ekki ef um dagsferð er að ræða.
maður sér ekki beinlínis fyrir sér að fara þangað aftur í náinni framtíð, nema ef vera skyldi að aka framhjá á leið eitthvert lengra (miklu lengra, það er talsvert langt í næsta eitthvað, með miklu af engu á milli), nokkurs konar búinn þar - gert það, þart til maður er orðinn gamall..jpg)
myndir:
1) björk, birki, rifhrís (birch) af ust.is,
2) Grein úr Á ferð um Strandir og Reykhólasveit - upplýsingariti frá 2008,
3 og 4) Hótel Bjarkalundur,
5) Grettislaug á Reykhólum,
6) Reykhólar í Reykhólasveit,
7) Geirvörtufjöll,
8) þörungaskip,
9) sama og 2.
fólk þarf stundum að þýða dönsk orð og þá er gott að vita um nothæfa tölvuorðabók.
þeir sem eru tengdir við HÍ-netið eru með ókeypis aðgang að http://edda.is/vefbaekur/ og geta fengið þýðingu beint á hið ylhýra.
aðrir geta notast við Dansk Parlør, sem er einföld vasaorðabók og þýðir yfir á fjölmörg tungumál.
GramTrans er nokkuð öflug, hún leyfir reyndar bara max 10 oversættelser eller 350 ord (ca. 2500 unicode tegn) per dag ókeypis.
- reyndar býður sú ágæta vél upp á Firefox udvidelse (e. plugin) sem þýðir vefsíður yfir á pig-english og ég sé ekki að nein takmörk séu á þeirri notkun.
í neyð má leita í:
í dag byrjaði ég á 10 tíma dönskunámskeiði í vinnunni, sem er mikil snilld.
ég líka að fara til köben í maí, þá mun ég aldeilis slá um mig með starfstengdum dönskuslettum.
hér eftir verður ekkert annað í útvarpinu en hin danska P3, det du hörer er dig selv!
daninn Johnson er einmitt í útvarpinu núna, hann er eini rapparinn sem ég fíla því hann er svo krúttlega reiður.

þetta vissi ég ekki og e.t.v. þurfti ég ekki að vita það - nafnareglur IKEA:
Guardian.Sofas, coffee tables, bookshelves, media storage and doorknobs are named after places in Sweden (Klippan, Malmö); beds, wardrobes and hall furniture after places in Norway; carpets after places in Denmark and dining tables and chairs after places in Finland [halló, vantar ekki eitthvað hér?]. Bookcases are mainly occupations (Bonde, peasant farmer; Styrman, helmsman). Bathroom stuff is named after lakes and rivers.
Kitchens are generally grammatical terms, and kitchen utensils are spices, herbs, fish, fruits, berries, or functional words such as Skarpt (it means sharp, and it's a knife). Chairs and desks are Swedish men's names (Roger, Joel); materials and curtains are women's names. Children's items are mammals, birds and adjectives (Ekorre is a set of children's toy balls; it means squirrel). So now you know.

Vanessa Paradís er búin að vera lengi að, og hún er með eitt svaðalegasta frekjuskarð poppheimsins.
einskonar frönsk Madonna.
lagið Dès que j'te vois (Þegar ég sé eða e-ð) er að gera það gott á frönsku tónlistarrásunum.
flestir sem ekki eru frönskuþenkjandi þekkja líklega lagið hennar Be my baby, en fyrsti hittarinn hennar Leigubílstjórinn Joe er mun svalara.
Est-ce que si on l'avait fait,
On se ferait l'effet
Que l'on se fait chaque fois
Si on l'avait fait
On se ferait l'effet que l'on se fait
í nótt dreymdi mig að ég væri í einhverri endurmenntun, ásamt stofnanda reglugerð.is.
samkvæmt samtali mínu við hann byrjaði þetta bara sem áhugamál hjá honum og félaga hans, á simnet.is/reglugerdir.
þeir væru nú forstöðumenn hinnar miklu stofnunar reglugerð.is, en hann þyrfti að ná sér í menntun sem hæfði titlinum.
það versta við drauminn var þó þessi mikla gleði sem helltist yfir mig þegar maðurinn tjáði mér að til stæði að gera stórtækar endurbætur á reglugerð.is, setja þangað inn auglýsingar og reglur, umburðarbréf og almennilegar reglugerðir með breytingum.
nú væri gott að hafa eitthvað stórt og viðamikið verkefni fyrir höndum, til að dreifa huganum frá lögfræðum.
i) slóvakísk vinkona mín var að kynna mig fyrir tékkneska rokkbandinu Trabant og laginu þeirra Katarína. skemmtilegt lag, hægt að hlusta hér.
ii) það er kannski ekki ósvipað laginu María með íslenska rokkbandinu Trabant? eða nei.
þess má þó geta að The One er besta lag þeirrar hljómsveitar - sjá og heyra hér á jútúbi. þar segja þeir að þeir hafi aldrei viljað vera the one. ósk þeirra virðist uppfyllt hvað nafnið á bandinu varðar.
iii) þriðja og líklega sísta Trabant hljómsveitin er ungversk nýaldar rokkhljómsveit (eða hvernig sem maður þýðir new wave). hérna er eitt hresst lag á júbtúbb, fyndið að bera saman klæðaburðinn á þessum Trabant og þeim íslenska. hér svo er þriðja lagið og fjórða.
það var ekki fyrr en 3 mánuðum eftir að ég flutti frá Tékklandi sem ég lærði af honum Hauki í horni að tékkneska orðið fyrir snúra væri šňúra og að akkúrat væri þar skrifað akurát. grund vallar atriði.
***
mér líst ekkert á að Starbucks sé að hefja innreið sína til Dk (og seinna kannski til hinna norðurlandanna). þeir koma illa fram við bændur, sbr. Eþíópíufíaskóið. svo er ein viðskipta aðferðin þeirra víst að opna nokkrar búðir á einu svæði og reka þær með tapi þar til keppinautarnir flæmast í burtu af svæðinu.
CoffeeHeaven er kaffihúsakeðja sem ég kynntist út í Tékklandi, byggir á sama konsepti og Starbucks (konseptið er ekkert slæmt, stórir bollar, mikið úrval, nýsköpun, jadajada).
en kannski eru þeir bara sömu melirnir. þeir eru þó frá A-Evrópu og hljóta að vinna sér inn nokkur traust-stig fyrir það, ha?
annars eru það Finnar sem drekka allra þjóða mest af kaffi skv. rannsóknum. spurning hvort litla klakaeyjan hafi verið tekin þar með í reikning.
***
loksins. loksins er búið að sýna fram á að fólk sem alltaf er með allt snyrtilegt í kring um sig hafi minni framleiðni og séu minna skapandi en við sem erum með allt (niðrum okkur) í drasli.

ég var beðinn um að drekka fyrir ónefndan stjörnulaganema á meðan ég er hér úti og það er um að gera að gera það þá með stæl.
jólabjórinn er enn á útsölu og fyrir stuttu festi ég kaup á 2 slíkum.
1. White Christmas frá míkróbrugghúsinu BB. alveg einstaklega góður og ferskur hveitibjór, en svo man ég ekki meir.
2. Greenland White Ale - melirnir hafa tekið jólabjórinn og smellt á hann nýjum umbúðum. nú má kaupa Greenland white og brown ale í lókal súpermarkaðnum.
þrátt fyrir að orðið ale kæmi fyrir í nafninu (minnir mig á enskt ale, sem er hreinn viðbjóður) prufaði ég þann hvíta og hann slapp vel fyrir horn. það er eitthvað við vatn sem hefur verið frosið á meðan á iðnbyltingunni hefur staðið, sem ég fíla.
annars er maður orðinn ónæmur á gott vatn vegna kalkdrullunnar sem lekur úr krönunum hér í borg.
***
hér eru svo þrjár myndir.
a) mynd sem Hrannar tók af húsvegg stutt frá Meistara- völlum í Písa, þar sem stendur WILLY LIBERO (Free Willy).
b) mynd af mér og auglýsingu fyrir bók sem prýdd er mynd af mér og naflanum mínum. við sáum hana er við lentum á Hovedbane.
c) mynd af pottloki sem Hrannar tók eftir er við gengum heim frá Hovedbanestation meðfram Söen.
skrifaði
Halli
kl.
19:09
1 blabla
Merkimiðar: bjór, ferðalög, heimsóknir, hygge, vinstri grænir
ferðin til Svíþjóðar heppnaðist jyttevel.
Skánverjar tala mun betri útgáfu af íslensku en K'hafnarbúar, og svo er að finna Subway í Malmö. ég er miklu mun hrifnari af Subway heldur en fallafel.
Steina vinkona tók á móti okkur í Ystad með glæsibrag og við skemmtum okkur vel við að skoða gömul sæt hús, Grábræðraklaustur (sbr. torg kennt við sömu bræður hér í K'ben) og líta í búðir. sáum þó ekki ströndina í Ystad, enda var ekki alveg veðrið til þess.
eftir 6 daga, 10. jan, verður haldið í vikuferð til Reykjavíkur - þangað hefur mig alltaf langað að koma.
***
sá í fréttum fyrir nokkru að Akureyrarbær hefur ákveðið að gera almenningssamgöngur fríar innan bæjarins.
mér finnst þetta yndisleg hugmynd. þetta var rætt í blöðunum hér í K'höfn fyrir nokkru, en snögglega komu upp gagnrýnisraddir, hvers handreipi var rannsókn sem benti til þess að slíkar aðgerðir hefðu m.a. þær afleiðingar að hjólreiðafólk hætti að nota hjólin sín, en minni áhrifa myndi gæta meðal þeirra sem kjósa að nota bílinn sinn.
á Íslandi hjólar auðvitað enginn, vegna veðurs og brösótts landslags. fólk sem myndi kjósa að nýta sér hjólhesta, væri landið flatt og veðrið þolanlegt, notar því einkabílinn.
í Rvk er risastór ónýttur markaður af fólki sem myndi leggja bílnum ef til væri raunverulegur valkostur. frír strætó í nokkur ár myndi leysa hænu/egg vandamálið (of fáir farþegar -> of fáar ferðir -> of fáir farþegar ...) og álagið á vegakerfið myndi snaaaarminnka.
ókeypis almenningssamgöngur fara líka einkar vel saman við hugmyndir mínar um lestarkerfi á allstór-höfuðborgarsvæðinu, með viðkomu í Herstöðvarbæ og á Leifsstöð.
***
mæli með snjómannagallerýi Kalvins og Hobbes, fyrir þá sem hafa góðan húmorkirtil.
skrifaði
Halli
kl.
17:37
0
blabla
Merkimiðar: andrés önd, Breiðholt, ferðalög, flug, fréttamiðlar, heimsóknir, hygge, jólin, kirkja, lestir, veður, vindsæng, vinstri grænir
... og þau eru risastór! rugl töff* að það sé gríðarinnar bláberjalyng** utan á blokk. ég held að þetta sé evrópskt sósíalistalyng - berin eru fyrir alla en þau letja mann til vinnu og eru því eitruð.
þynnkan í dag er afrakstur prófloka og er þess valdandi að mér langar í feitan kebab og ódýra klippingu - af hverju bý ég ekki á Nörrebro. ætli fjallið verði ekki að koma til Múhammeðs***.
allir meðlimir Kaupmannahafnardeildar Orators hafa lokið prófum í dag og af því tilefni ætlum við í ekta danskt hlaðborð á víetnömskum veitingastað. Ásgeir Reykfjörð hefur verið gerður að heiðursfélaga og mun vígsluathöfnin fara fram í DIB**** í kvöld.
Gúglemail býður manni að skoða viðhengi sem html. kemur stundum skemmtilega út:
Svoviðóskumeftirsvarisemfyrst
ES. prófið í gær gekk bara alltílagi, nía var svarið en ég veit ekki hver spurningin var. eftir prófið var ég allt að því sakaður um að hafa ekki vitað að reglugerðin í Sigurjónsson v. Iceland hafði ekki lagastoð. "HALLÓ veistu ekki hver ég er? ég FANN UPP Framadóminn!" sagði ég við sjálfan mig þegar ég hjólaði heim að prófi loknu.
en þetta er búið, aldrei nokkurntíman***** fleiri próf - héðan í frá verð ég eingöngu fræðimaður.
* það mun vera í tísku að nota orðið rugl til að lýsa því yfir að eitthvað sé mjög - skv. Írisi, sem fylgist rugl vel með.
** (lyng/ling? komið af löngun, langt eða Ling il Chong?) Google sagði lyng, með epsiloni. umræddar plöntur eru samt meira í áttina að trjám.
*** If the mountain won't go to Muhammad ...:
This expression is based on a tale that Muhammad once sought proof of his teachings by ordering a mountain to come to him. When it did not move, he maintained that God had been merciful, for if it had indeed moved they all would have been crushed by it. - Wikipedia
**** um er að ræða skammstöfun.
***** í bili
skrifaði
Halli
kl.
13:29
3
blabla
Merkimiðar: draumar, happy talk, hygge, laganemar, öfgasinnaðir unglingar