good news, that is good news, good news
segðu þetta nógu oft og þá rætist það:
Haraldur
HaraldurS [] gmai1 punktur com
segðu þetta nógu oft og þá rætist það:
skrifaði
Halli
kl.
11:21
0
blabla
Merkimiðar: draumar, flokkurinn


Ekstra Bladet er vild med Björk, gejsere, varme kilder, heste i små størrelser og alt andet, der bare lugter en smule af vulkanø.Derfor drog vi i går ud på en mission. Islands økonomi skulle reddes, og der blev derfor lynhurtigt arrangeret en indsamling til fordel for vore venner mod nord, som er hårdt ramt af den økonomiske krise.
Ekstra Bladet tog opstilling foran Magasin i København – et af symbolerne på det islandske finanseventyr, der nu er ved at blive et mareridt.
myndirnar og vídeoið af vef ExtraBlaðsins.
nú eru bráðum 10 ár síðan ég hætti að æfa fótbolta með Víking, 6 ár síðan ég hætti í framhaldsskólaleikfimi, 3 ár síðan ég og hundurinn fórum síðast út að hlaupa og 1 ár frá því ég fór að taka eftir smávegis aukaþyngd um mig miðjan.á þessum tímamótum liggur fyrir manni að velja líkamsræktarstöð til þess að kaupa árskort hjá, stunda í mánuð eða svo og hætta svo fljótlega að hafa tíma til þess að fara í ræktina.
í nágrenni við mig eru tvær Nautilus stöðvar, í Sundlaug Kópavogs og í sundlauginni Versölum í Salahverfi - árskort hjá þeim kostar þessa dagana 28 þúsund kall.
í Kórahverfi er nýopnuð heilsuræktarstöðin H10, en hún er því miður aðeins úr leið, alveg lengst upp á Vatnsenda.
Sporthúsið er á Breiðablikssvæðinu, það fer misjöfnum sögum af því, en mér hefur sýnst það vera alveg ágætt - ég þarf að gera það upp við mig hvort það sé 45 þúsund króna virði að svitna þar.
11. febrúar opnar svo World Class nýja stöð á 15. hæði í Smárastórhýsinu, það er eiginlega næst mér ef frá er talin dekurstöðin MeccaSpa á Nýbýlavegi (79 þúsund fyrir að láta stjana við sig þar).
World Class er 'the place to be' skilst mér.
á dögunum fór ég í vettvangsferð í WC Laugum - þeir bjóða ekki upp á prufutíma og því lét ég mér nægja að kíkja inn í sal úr kaffiteríunni.
mér er alls ekki illa við að vera eins og maur í risasal eins og þar var, en lyktin sem var alltumlykjandi bæði í afgreiðslunni og kaffistofunni var hreinn viðbjóður, ég er ekki frá því að ég finni hana enn þegar ég loka nefinu.
þegar á allt er litið sé ég hreinlega ekki hvað maður fær aukalega fyrir þennan 55 þúsund kall sem kostar að vera óvirkur meðlimur í WC, er þessi augnskanni svona æðislegur? annars sýnist mér verðið á WC-kortum hafa komist næst því að vera mér boðlegt fyrir sex árum síðan, sjá verðþróun í WC:World Class rukkar mann um 1500 krónur fyrir að prófa pleisið, og þar með eru þeir búnir að stimpla sig úr leik hjá mér - það er prinsippmál að láta ekki gera sig svona að fífli, og skiptir þá engu hversu hipp og svalur staðurinn er.
skrifaði
Halli
kl.
18:14
1 blabla
Merkimiðar: draumar, líkamsrækt
stundum dettur maður niður á stjörnuspá mbl, þegar krabbinn er á forsíðunni.
í dag sagði krabbinn mér að ég tilheyrði draumum mínum, ekki öfugt.
Leyfðu þeim að leiða þig áfram. Ekki efast um að leiðin sem þú dattst niður á sé sú rétta.fyrst las ég reyndar leiðin sem þú drattast niður, það væri í takt við tilveruna.
#1: What is your worst fault?
"Actually, they're all pretty bad."
#2: What are you looking for in a job?
"Senseless drudgery and money."
#3: Where do you see yourself in ten years?
"Sleeping in your bed, and having your kids call me 'Dad'."
#4: You're overqualified
"I assure you, exactly the opposite is true."
#5. No, it's not your age
"Well, then, it must be my skin colour."
þennan tékkneska bjór þykist íslenska liðið "Club" Lögberg, sem nýlega lauk keppni í Norrænu málflutningskeppninni með glæsibrag, hafa keypt og drukkið í sænskri efnahagslögsögu (í ferju) - jákvætt væri ef farið yrði að flytja til Íslands venjulegan meðaldýran og -góðan tékkneskan og pólskan bjór. af hverju er maður ekki einkaframtakssamari?
ég mæli með Önnu Pihl, sem Rúv byrjar að sýna mánudaginn 18. júní. hún er mikið kjarnakvendi og gæti rústað Erninum með fætur bundna fyrir aftan bak.
úr eftirsótta Nordíska kollegíinu hér rétt hjá berast ljúfir minningartónar lagsins Call on me. mjaðmirnar á manni byrja bara ósjálfrátt að hnyklast (hnyklast mjaðmir?).
það er reyndar gamalmennablokk á milli blokkarinnar sem ég bý í og kollegísins, ég vona að gamla fólkið hafi munað að slökkva á heyrnartækjunum.
ég myndi krassa partýið ef ég væri ekki að fínpússa íslenskar dómareifanir í ritgerðinni minni. hún mun auðvitað marka þáttaskil, eins og flest annað sem ég skrifa.
í minni famílíu er okkur stundum sagt að fara nær, hann sé ekki eins langur og við höldum.
***
í framtíðinni ætla ég að tala um að berja á bakkafullnum læknum. það er alveg jafn mikil geðveiki að berja á honum eins og að bera (vatn?) í hann.
***
ég ætla nú ekki að ganga svo langt að segja að íslenskir lögfræðistórlaxar séu eins og risaeðlurnar forðum, vel vopnum gæddir en með of lítinn heila. en myndin er góð.
alveg er ég áhyggjulaus yfir fegurðarsamkeppnum. ég hef jafn gaman af fegurð kvenna og næsti maður. ég er líka áhugamaður um fallega myndlist og byggingar, skemmtilegar bíómyndir og bækur.
ef fólk hefur þörf á því að láta horfa á sig eins og hvern annan sýningargrip, má það gera það.
stelpurnar sem taka þátt í þessu fá hins vegar ekki háa einkunn frá mér fyrir gáfnafar. ég veit það best sjálfur að gaman er að vera fallegur, og enn skemmtilegra að sýna öðrum það. en að þurfa að fara í keppni við aðrar manneskjur til þess að fá viðurkenningu á því - er ekki í lagi heima hjá fólki?
en, mér er sama hvaðan gott kemur. stelpur sem taka þátt í fegurðarsamkeppnum hafa væntanlega ekki vitsmunalegan þroska til að skemmast að neinu marki af þessu. kannski verst með ljósabekjaböðin - rosalega er þetta ristabrauðslúkk orðið þreytt.
ég vil þó viðra þá hugmynd að setja á fót keppni um flottasta rassinn. hún gæti jafnvel verið nafnlaus. keppendur gæti gengið um með poka á efri hluta líkamans og sýnt á sér afturendann í nær ósýnilegum þveng. ekkert áhugamála- og framtíðarplanayfirvarp, bara hreint og beint hver er með mest aðlaðandi rass.
fyrst menn vilja hafa gripasýningar á mönnum, af hverju ekki að ganga alla leið?
Kylie þarf engar viðurkenningar á aldraðri fegurð sinni, en er óhrædd við að græða á henni með aðstoð H&M:
ég er gáttaður. sumarið komið og það er barasta búið að breyta tímanum. klukkan er núna 2 klst. meira en heima og enn erfiðara að lifa á íslenskum tíma.
í gær var borðað og drukkið á Jónshúsi í annað sinn í þessum mánuði. í þetta skiptið var ívið stærra hlutfall af karlmönnum en á baráttudegi kvenna. í gangi var gleðskapur einhvers konar íslendingafélags í DTU - skólanum hennar Lilju. þar voru m.a. mættir 5 gamlir verzlóbekkjarbræður mínir, snældu klikkað lið.
en hvítvínsdrykkjan virðist hafa haft þau áhrif á Lilju að hún snar minnkaði, eins og sést á þessari mynd sem var tekin á Ameríka plads áðan:
I think Ill call you appetite
ahh, hver man ekki eftir fyrsta skiptinu sem hann kveikti í sínum eigin absinth-skotum?
eða Blueberry-klúbbnum sem var opinn í heilan mánuð á nám. Svobody 17 í Brno vorið 2006, en aðeins heimsóttur á brit-pop mánudögum?
skrifaði
Halli
kl.
11:09
0
blabla
Merkimiðar: draumar, happy talk

***
ég gafst upp á þessari auglýsingu á msn. bæði Björgúlfsbanki og Kalli kókómjólk voru farnir að bögga mig með hreyfimyndum sem skáru mig í augu og særðu fegurðarskyn mitt og sálarró.
þótt ég væri með msn á dönsku, í Danmörku og skráður með heimili í Þýskalandi á msn.com, fékk ég samt áfram þessar íslensku óværur.
þannig að ég bara fjarlægði óþverrann endanlega, með litlu sniðugu forriti sem heitir A-patch, mjög auðvelt, mæli með því.
leiðbeiningar: kveikir á því, next, next, remove ad, next, close
ég hafði hingað til umborið þessar auglýsingar, en með því að bjóða mér upp á svona yfirgengilegar hreyfi-flash-myndir yfirgaf messenger mig.
auglýsingar þurfa ekki að hreyfa sig eins og flogaveik börn eða öskra á mig til þess að ég veiti þeim athygli. mætti ég þá frekar biðja um femínista-taugaveikjandi kók Zero auglýsingu.
***
þessi mynd af Ungeren-mótmælunum finnst mér flott. hún er úr myndbandi á jútjúb.
skrifaði
Halli
kl.
08:58
0
blabla
Merkimiðar: draumar, femínistar, köben, ljótt og bannað, myndir, netið, öfgasinnaðir unglingar, öryggisverðir
Vinstri grænir lögðust hins vegar gegn málinu og á fundi þingflokksformanna gaf Ögmundur Jónasson til kynna að það myndi kosta geysimikla umræðu ef menn reyndu að ná því í gegn.
áfengi.
undir 22%.
úr einkasölu.
það er svona flókið! þetta er það sem sumir telja að útheimti geysimikla umræðu.
ummælin á myndinni eru eru úr umræðum um breytingartillögu á áfengislögum fyrir ári síðan.
skrifaði
Halli
kl.
19:36
1 blabla
Merkimiðar: bjór, draumar, ljótt og bannað, vinstri grænir
við lestur á ársskýrslu stjórnar Orator í 4. tbl. 58. árg. Úlfljóts rann/rifjaðist upp fyrir mér að hafi verið umsjónarmaður tölvuvers og auk þess, ásamt henni Dabbý corporate lawyer bi$#, námsráðgjafi Orator, skólaárið 2004-5.
umsjónarmaður tölvuvers, er það ekki (ó)bein leið til þess að kalla mig tölvunörd?
... hver segir svo að ég hafi ekki verið félagsmálatröll...
***
við Lilja fórum á Viet Nam, veitingastaðinn hér rétt hjá sem Hrannari þykir svo vænt um. fengum okkur m.a. nautakjöt á teini, vafið utan um ananasbita. þegar þetta var snætt með hrísgrjónum og rosalegri kókossósu varð úr þessi svakalega veisla í munninum. tvímælalaust þess virði að prufa.
***
ég keypti nýverið bókina Behind Enemy Lines: WWII Allied/Axis Propaganda á 30 kr. danskar. margar skemmtilegar myndir og textar. þessari sem birtist hér var t.a.m. ætlað að draga úr þrótti breskra hermanna á vígstöðvunum með því að telja þeim trú um að kanarnir væru að punda konurnar þeirra heima í Bretlandi.
áður hafði frönskum hermönnum verið sagt það sama um bresku félaga sína.
í dag verður hylltur prófessor Dr. iur. Stefan Trechsel
fæddur 1937 , varð lögmaður 26 ára og dr.iur 3 árum seinna.
fór síðan í nám til BNA og snéri aftur 1971 til þess að gegna stöðu saksóknara í heimabæ sínum Berne.
frá 1979 hefur hann verið prófessor í lögfræði, frá 1999 til dagsins í dag við háskólann í Zurich í Sviss.
Trechsel sat í Mannréttindanefnd Evrópu frá 1975, var varaforseti hennar 87-94 og síðan forseti þar til nefndin var aflögð.
hefur starfað við uppbyggingu í þróunarlöndunum og hefur áhuga á tónlist, bókmenntum, listum og íþróttum að einhverju leyti.
átti stórgott sérálit í áliti nefndarinnar í máli Schenk g. Sviss frá 12. júlí 1988 og ekki munaði miklu að hann næði að snúa meirihluta dómsins á sveif með sér. í álitinu notaði hann frasann 'a la carte', sem hlýtur að teljast afrek út af fyrir sig í lögfræðitexta:
“Réttinn til þess að reiða sig á málsmeðferðarreglur er ekki hægt að veita à la carte, með öðrum orðum eftir eðli brots og réttarfars”nauðsyn” þess að ákæruvaldið geti notað sönnunargögn til þess að “sanna” sekt sakbornings. Hvernig er það, ennfremur, mögulegt að réttlæta meðferð sem ekki er í samræmi við lög í því augnarmiði að koma rétti yfir ólöglegt framferði? Staðhæfingin “ex iniura ius non oritur” hefur ekki aðeins lagaleg áhrif, heldur tekur einnig til valds, trúverðugleika og virðingar þeirra stofnana sem ábyrgð bera á því að beita lögunum.”
þótt hann hafi lotið í lægra haldi í þeirri orustu þótti honum stríðið ekki tapað og hefur barist áfram með útgáfu greina og rita. sérstaklega er hægt að mæla með bókinni Human Rights in Criminal Proceedings sem kom út árið 2005.
ég er þakklátur fyrir:
- að vera ekki með húðjúkdóm, kynlífssjúkdóm, frunsu, flensu eða offitu;
- að vera ekki með mígreni, magakveisu, dyslexíu eða þroskahömlun;
- að vera laus við hverskonar mataróþol, athyglisbrest og einmannleika;
- að hafa fæðst í þjóðfélagi sem hefur veitt mér tækifæri til að mennta mig, ferðast og vera ég sjálfur, kynnst skemmtilegu fólki og leiðinlegu fólki. æ blessaða leiðinlega fólkið.
heimalandið mitt hefur reyndar sína galla, það virðist stundum uppfullt af fordómafullum fávitum með hor, en skemmtilega skýra fólkið sem kann að hlæja og kveikja í manni með áhugaverðum umræðum bætir það alveg upp ef maður spáir í því. svo mætti sólin skína meira og appelsínur vaxa á trjánum - og hvað er málið með allar þessar brekkur?
ég hef líka einn eða tvo galla - get t.d. verið svolítið óþolandi, en það truflar mig lítið. svo væri ég til í að vera grænmetisæta - set mér það sem langtímamarkmið.
held það sé ágætt að lifa - hef reyndar aldreið prófað dauðann.
... fólk nöldrar ekki nógu mikið yfir því sem það er ánægt með ...
---------
... en Arngrímur Ísberg dómari sagði: "Það verður ekki deilt við dómarann, [...]" - gott svar.

Og konan var skrýdd purpura og skarlati, og var búin gulli og gimsteinum og perlum. Hún hafði í hendi sér gullbikar, fullan viðurstyggðar, og var það óhreinleikur saurlifnaðar hennar. Og á enni hennar var ritað nafn, sem er leyndardómur: Babýlon hin mikla, móðir hórkvenna og viðurstyggða jarðarinnar.... ég ætti kannski að senda þeim á heimssýn.blog.is þessa speki? ætli Steingrímur J. viti af þessu?
skrifaði
Halli
kl.
11:53
0
blabla
Merkimiðar: draumar, end of the world, fegurð, vinstri grænir
Cheeseshop úr Monty Python's Flying Circus (Jútjúb vídjó):
MOUSEBENDER: It's not much of a cheese shop, is it?ég er enn á fullu í ostunum eftir að Hrannarsheimsóknina og Ítalíuför okkar kumpánanna.
WENSLEYDALE: Finest in the district, sir.
MOUSEBENDER: Explain the logic underlying that conclusion, please.
WENSLEYDALE: Well, it's so clean, sir.
MOUSEBENDER: It's certainly uncontaminated by cheese.
öðrum eins ostakalli hef ég aldrei kynnst - skrítið að hann skuli ekki vera með stærri eyru.
ég fékk ekki nóg af. kannski er það þessi heiðarlegi dónakallshugsunarháttur í manninum ... það er svo skemmtilegt hvernig hann virðist bara skrifa það sem hann er að hugsa, og skrifa svo um það af hverju hann hugsar að hann sé að hugsa það.