Hvað er að gerast:

Sýnir færslur með efnisorðinu k. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu k. Sýna allar færslur

mánudagur, desember 29, 2008

lítið nýtt

það er ákveðið millibilsástand á þessari síðu.


hérna punkta ég hjá mér það sem ég sé merkilegt á veraldarvefnum hverju sinni, að öðru leyti vísast bara til hinnar alltumlykjandi fésbókar.

fimmtudagur, maí 08, 2008

aldrei of mikill Halli

í "ástandinu" eins og það er kallað í dag er gjarnan talað með neikvæðum hætti um Halla.

þessvegna var ánægjulegt að lesa eftirfarandi línu á landbunadur.is:

"Halli á heilum gólfum eykur hreinlæti, ..."

reyndar sagði neðar á sömu síðu:
"Minnt skal á að gólf eiga ekki að vera með meiri halla en 6%."


þetta minnti mig á eftirfarandi orð Árna Johnsens úr ræðustól Alþingis:

"... sérfræðingar í kynlífsspeki á Íslandi höfðu forgang um að stýra skoðanakönnun hérlendis varðandi fjölda þeirra sem teldu sig vera kynvilltir. Þetta var 1.500 manna úrtak, þar sem 7% töldu sig haldna kynvillu. Það að mínu mati er innan eðlilegra skekkjumarka sem er í hverjum og einum manni"
ég held að 6% Halli sé á sama hátt hæfilegt magn fyrir hvern og einn.

(myndir af ja.is og keli.blog.is)

þriðjudagur, maí 06, 2008

svarið við spurningunni sem er ekki til

eitt allra áhugaverðasta svar Vísindavefsins frá upphafi birtist í dag:

Þetta er prufa.

Þessi spurning hefur ekki verið birt.

henni má þó ekki rugla við þetta svar:
Þessi spurning er ekki til.

mánudagur, maí 05, 2008

hress á mánudegi




Lundi er franska og þýðir mánudagur.
að vera léttur í lundi er eflaust komið af því að vera hress á sálinni á mánudegi (bon esprit sur un lundi).

gaman væri að vera trúðslegur fugl sem er léttur á sálinni á mánudegi í lítilli borg í Svíþjóð.

(Lundi léttur í lundi á lundi í Lundi.)

sunnudagur, apríl 20, 2008

heimsending

ég passa mig á því að biðja aldrei um heimsendingu þegar ég panta mér mat og mér finnst satt að segja stórfurðulegt að vera boðin ragnarök í hvert skipti sem ég t.d. panta mér pitsu.

myndin hér að ofan hefur lengi fylgt einu af mínu uppáhalds internet-orðtiltækjum: að rífast við fólk á internetinu er eins og að keppa á Ólympíuleikum fatlaðra.... sama hver vinnur, þú ert áfram þroskaheftur.

mánudagur, mars 17, 2008

hænan eða eggið?


spurningin hvor kom á undan? (pól: Co było pierwsze, sk: Čo bolo skôr, sp: qué fue primero, sl: Kaj je bilo prej) hefur plagað mannkynið frá örófi alda.




hænan eða eggið?
(d: Die Henne oder das Ei, sp: El huevo o la gallina, f: de l'œuf et de la poule, it: dell'uovo e della gallina, fi: kumpi oli ensin, hol: Kip-en-ei)








samkvæmt Wikipediu er spurningunni í raun ósvarað, enda þótt Mogginn sé á öðru máli og telji eggið hafa verið á undan.



Vísindavefurinn er á því að í heildarsamhengi hlutanna þá hafi eggið komið á undan.


mánudagur, mars 10, 2008

hvað getur maður verið lengi í kaffi?

fyrr í dag svaraði Vísindavefurinn spurningunni Hvað getur minkur verið lengi í kafi?

ég var með mánudagsgláku þegar ég las fyrirsögnina og sýndist standa Hvað getur maður verið lengi í kaffi?það finnst mér miklu betri spurning, hvað sé almennt viðurkennt að starfsmenn geti verið lengi í kaffi, t.d. eftir starfsstéttum og vinnutíma.

það minnir mig á það, ég þarf að fara að ná mér í kaffi.

föstudagur, febrúar 29, 2008

jörðin mun farast




í gær ætluðum við félagarnir að hringja á pezzu og höfðum afráðið að hringja í Pezzuhöllina - númerið hjá fyrirtækinu hafði eitthvað skolast til og enduðum við á að hringja í 5 626262.

nema hvað, þar svaraði símsvari sem endurtók í sífellu töluna "74" á ensku, seventífor, seventífor, seventífor.

ég var auðvitað viss um að þetta væri einhverskonar leynileg niðurtalning og hringdi því aftur í dag til að athuga hvort símsvarin myndi segja "73".

"UNICEF, góðan daginn" sagði vinaleg kona þegar ég hringdi rétt í þessu - ansi er það gott cover fyrir dómsdagssamtök.

---

þessi sami félagi er með stærðarinnar áblástur á munni, ojojoj, og fylgdi ég honum í apótek til þess að kaupa Zovir.

miðað við að tveggja gramma pakkning kosti rúmar 1200 krónur, reiknast mér til að kílóverðið sé um 600.000 kr.

sama pakkning kostar rúmar 50 danskar krónur, eða um 670 íkr. ... það er alveg ljóst hverju ég ætla að birgja mig upp af næst þegar ég fer til útlanda.

innflutningur fíkniefna er líka voðalega 2004 eitthvað, nú er komið að samhliða innflutningi okurlyfja til að kenna lyfjafyrirtækjunum smá samkeppnislexíu!

þriðjudagur, febrúar 26, 2008

lántakendakvóti

það þarf bara að setja kvótakerfi á íslenska neytendur, til að tryggja undirstöður íslensks viðskiptalífs.

bönkunum og helstu verslunarrisum verður úthlutaður kvóti til þess að veiða, verka og gera viðskiptaafurðir úr íslenskum almenningi.


annars benti frændi minn mér á að John Cleese hefur nýlega verið ráðinn til þess að bjarga pólskum banka, eftir að hafa tekist svona líka vel upp með Kaupthing

Í fréttinni segir í lauslegri þýðingu að það hafi verið

non-difficultly ... to convince comedian to advertising financial institution in Poland, having weighed, that earlier stepped out already in the advertising of banks, of Icelandic among others Kaupthing.
sjá "Banku Zachodniego WBK" vídeo á Jútúb.

miðvikudagur, febrúar 20, 2008

miðvikudagsgrínið - lógó

tölvupósturinn með miðvikudagsgríninu bar að þessu sinni yfirskriftina "betra að passa sig við logogerðina":





þriðjudagur, febrúar 19, 2008

troðnar kvennaslóðir

í dag skráði ég mig inn á http://www.kvennaslodir.is/


... ég á von á því að fá boð um setu í stjórn einhvers stórfyrirtækisins hvað úr hverju.

miðvikudagur, febrúar 13, 2008

hversu tanaður er meðalmaðurinn?


í dag svarar Vísindavefurinn spurningunni um kjörþyngd meðalmannsins, miðað við æskilegt Body Mass index:

Meðalhæð íslenskra karlmanna er nú 180,6 cm og kvenna 170,6 cm.

Kjörþyngd meðalmannsins er því á bilinu 60-81 kg og meðalkonunnar 54-72 kg. Eins og sjá má er þetta nokkuð vítt bil, en bent hefur verið á að BMI í kringum miðbikið eða aðeins nær hærri
mörkum, til dæmis í kringum 22-24, sé tengt hvað minnstri heilsufarslegri áhættu.
um leið og ég gleðst yfir því að vera meðalmaður á hæð og breidd, get ég ekki annað en velt því fyrir mér hversu tanaður meðalmaðurinn er.

er hann tanaður í rusl, tanaður í drasl, fölur eins og nár, fölur og gulur, beisaður ...???

sjálfur er ég fölur og gugginn.

miðvikudagur, febrúar 06, 2008

aldrey með y

maður á aldrei að segja aldrey.

nema átt sé við málmblönduna Aldrey (99% ál, 0,5% magnesíum, 0,5% silícium).

svo getur maður líka verið bleslyndur.

mánudagur, febrúar 04, 2008

pratar du IKEA?


þetta vissi ég ekki og e.t.v. þurfti ég ekki að vita það - nafnareglur IKEA:

Sofas, coffee tables, bookshelves, media storage and doorknobs are named after places in Sweden (Klippan, Malmö); beds, wardrobes and hall furniture after places in Norway; carpets after places in Denmark and dining tables and chairs after places in Finland [halló, vantar ekki eitthvað hér?]. Bookcases are mainly occupations (Bonde, peasant farmer; Styrman, helmsman). Bathroom stuff is named after lakes and rivers.

Kitchens are generally grammatical terms, and kitchen utensils are spices, herbs, fish, fruits, berries, or functional words such as Skarpt (it means sharp, and it's a knife). Chairs and desks are Swedish men's names (Roger, Joel); materials and curtains are women's names. Children's items are mammals, birds and adjectives (Ekorre is a set of children's toy balls; it means squirrel). So now you know.

Guardian.

þriðjudagur, janúar 29, 2008

af hverju að slá lán?

aldrei hef ég skilið af hverju fólk er alltaf að slá lán fyrir hinu og þessu.

væri ekki miklu eðlilegra að slá þann sem lánar?

mánudagur, janúar 28, 2008

geðhvörf sængurkvenna

á Vísindavefnum var í gær svarað spurningu um fæðingarþunglyndi.

í svarinu er greint á milli þrenns konar fæðingarraskana og sagt frá helstu einkennum þeirra:

i) Sængurkvennagrátur - óútreiknanlegar skapsveiflur, önuglyndi, grátköst, almennur kvíði og truflanir á svefni og matarlyst.

ii) Fæðingarþunglyndi - áhugaleysi, þreyta og sektarkennd.

iii) Fæðingarsturlun - eirðarleysi, önuglyndi og svefntruflanir.ég spyr nú bara hver hefur ekki verið fæðingarsturlaður?