Hvað er að gerast:
þriðjudagur, júlí 15, 2008
mánudagur, desember 10, 2007
þeim er ég verstur sem mér þykir bestur
já! eftir vinnu var skundað til Tríer í lest, til að skoða jólamarkaðinn - að vera í Lúx í desember án þess að kíkja þangað er eins og að vera í París án þess að tékka á Sigurboganum.
rosalega er ég líka hrifinn af bindingsverkshúsum.
föruneytið var yndisleg fjölskylda vinnufélaga míns, sem sá aum á mér og bauð mér að fylgja þeim - milli okkar 5 voru töluð jafnmörg tungumál, íslenska, enska, franska, þýska, og gott ef letzembürgiska var ekki einhversstaðar inn á milli.að sjálfsögðu var drukkið Glühwein, og vúú það var sterkt - miklu sterkara en það sem er selt hér - og úff hvað þýska jólaglöggið er framar því skandinavíska og íslenska.
útþynnt sykursull, segi ég og skrifa.
(það kom í svona stígvélaglösum eins og á myndinni fyrir neðan, stúlkuna þekki ég ekki)ég tók myndir en hef engan kubb, sönnunargögnin verða sett á þessa síðu við heimkomu, detti ég ekki í netleiða - þær sem hér fylgja eru af inter netinu.
"þið verðið að trú'okkur við segjum það satt ..."
þetta var brilljant, betra verður en hér í bankaborg (það er búið að rigna evrópskri rigningu í allan desember!), og stemmari!
***
í lestinni las ég í Hotel du Lac, og hún hefur sitthvað til síns máls finnst mér, rithöfundurinn, þegar aðalpersónan segist dæma konur harðar, því hún skilur þær - í það minnsta mun betur en karla.
sjálfur dæmi ég gillsíniggara, franska metrólúða, útlenska hurðaopnandi graðnagla, gígalóa, ístrukarla og sjálfskipaða aumingja mun harðar en trukkakellingar, spánverjamellur (og mellur almennt), feitabollur, konur sem fatta mig ekki (84%) og heimskar og/eða geðíveikar konur.
ég get sett mig í spor þeirra fyrrnefndu og séð fyrir mér hvernig ég myndi koma lífinu á réttan kjöl og hætta í sólbaðsstofunum, smástelpunum, "töffara"skapnum og typpabílunum, en á stundum erfiðara með að ímynda mér hvað er að gerast í hausnum á konum með aumingjum og öðrum furðulegum kvenskepnum.
laugardagur, nóvember 17, 2007
Beaujolais og pepperóní
franska vínið Beaujolais, úr fyrstu raisin-uppskeru ársins, hefur verið fyrirferðarmikið í öllum verslunum síðan sl. fimmtudag (3. fimmtud. nóvembermánaðar - sjá t.d. mbl frétt).
það er ódýrt, ferskt og skemmtilegt á bragðið, og við erum í þessum töluðu orðum að dreypa á flösku nr. 2.
helvítis bölvun að hafa áfengi í matvörubúðum - ef það væri ekki svona aðgengilegt þá væri ég núna að drekka salmonellumengað kranavatn en ekki sólunda laugardagseftirmiðdegi í að deyfa líkama og sál.
ögn minna kúltiverað er uppáhaldssnakkið mitt hér í landi - Bifi pepperóní mínísalamí.
ég gæti étið þetta eingöngu, kannski með bjór eða tebolla - m.a.s. á jólunum.
jólin mín byrja í nóvember - bara til að koma því að.
helst mættu jólin vera 4 mánuði á ári, með glöggi og gjöfum, ljósum og þvingaðri lífsgleði.
og þetta heimatilbúna myndband við lag franska tvíeykisins Daft Punk Harðar, betur, hraðar sterkar er stórskemmtilegt.
skrifaði
Halli
kl.
16:58
1 blabla
Merkimiðar: bjór, vinstri grænir
mánudagur, október 22, 2007
franskur ... bjór?
ég hálf skammast mín fyrir það, en um helgina drakk ég tvo biére blonde, sem framleiddir eru í Frakklandi.
ég hefði auðvitað aldrei keypt þá, vitandi að þeir væru franskir, enda hef ég óbeit á öllu frönsku.
þessir tveir voru hins vegar ágætir, líklega bruggaðir svona nálægt Þýskalandi - sérstaklega get ég mælt með biere de l’agriculture biologique bjórnum Haute Yutz frá Ueberach.
mjög milt bragð en rík fylling, ekki of sætur og skilur ekki eftir þetta súra bragð sem oft vill verða með hvítbjóra.
hún stendur upp úr liðinni helgi vínsmökkunin hjá Alice Hartmann í Wormeldange, Lúxemborgsmegin í Mósedalnum á laugardaginn. http://www.alice-hartmann.lu/alice/en/div/kontakt.php
(gæjinn vinstra meginn á myndinni var með kynninguna)
vínkynningin var reyndar á frönsku, en góðir vinnufélagar snöruðu henni jafnóðum yfir á skiljanlegri tungumál.
til smökkunar var hreint prýðilegt freyðivín og nokkrar tegundir af vino blanc, allt frá all súrum vínum úr bestu brekku Mósedalsins (fyrir neðan kapelluna á myndinni - heitir Chapelle) og upp í dísæt eftirréttarvín.
við Lilja fórum milliveginn og keyptur tvær flöskur af hinu mjög fína Terrasse, sem ræktað er í syllunum neðst á myndinni.
***
athyglisvert: þeir sem vinna með skóla fá betri einkunnir skv. jp.dk, grensan er við ca. 20 tíma á viku.
ég held að það sé varla orsakasamband þarna á milli - fólk sem ekki vinnur með námi er einfaldlega latara almennt.
skrifaði
Halli
kl.
07:17
0
blabla
Merkimiðar: bjór, ljótt og bannað, stuð
fimmtudagur, október 18, 2007
Coca Cola Blāk
mmm, la fusion unique de Coca Cola et d'extraits de café - snilldar hugmynd myndi maður halda.
nei, goslaust kók með kaffilíkiskrafti er ekki að gera sig, útlitið á álflöskunni er kannski það skásta við þetta.
botninum er vonandi náð í þessum orkudrykkjum.
***
hins vegar er jólabjórinn kominn í búðir, mmm noël.
btw, hér búa og vinna samtals um 130 þúsund manns - úrvalið í matvörubúðunum er með mestu ágætum, álagningin frekar lág, og lítið um að fólk sé blindfullt allan daginn, ekki einu sinni krakkarnir.
skrifaði
Halli
kl.
17:55
0
blabla
Merkimiðar: bjór, kaffi, ljótt og bannað, vinstri grænir
laugardagur, október 13, 2007
Trier og Metz
í dag var það Metz, klukkutíma í burtu.
það var skref 2 í því að reyna að sættast við íbúa Frakklands, það fyrsta var eiginlega stigið við það að koma hingað til Lúx, því hér talar hver maður og hundurinn hans frönsku.
borgin kom ágætlega á óvart - þótt þar hafi verið lítið að sjá nema verzlunargötur og frakkar, og þessi venjulega íburðarmikla kirkja sem allsstaðar er að finna.
margir af þeim sem ég talaði við voru hins vegar mjög almennilegir - ýmist sættu sig við frönskubullið mitt, eða áttuðu sig á því að ég væri þýskur(!) (ein kona hélt reyndar að við værum englendingar og fannst það alveg rosalegt).
í gangi var fést de la Octobre í Metz, einhvers konar bjórdrykkjuhátíð. á dauða mínum átti ég von, en ekki því að drekka eins líters bjór í stóru bjórdrykkju-tónleikatjaldi í Frakklandi.
ég varð svolítið hugfanginn af skyndibitamenningunni þarna. fyrir utan öll paníníin og bagúettin, má helst nefna O'kebab - kebab McD's style, og ítalskan stað sem seldi þessa fínu pastarétti, ódýrt, snyrtilegt og fljótlegt í litlum boxum.
ég væri alveg til í að geta keypt mér kebab á jafnódýru verði og á jafn snyrtilegan hátt og McDonalds (þá er ég að tala um útlenskt McD's verð) og snögglegan 3 fromage pastarétt eftir djammið á Íslandi.
***
síðasta helgi tókum við dag í Trier - elstu borg Þýskalands, þar sem stór hluti vinnandi manna í Lúx býr (restin verslar í matinn þar - korter í burtu).
þýskarar eru alltaf elskulegir, brosa og segja tsjúts, drekka ekki bjór úr litlum glösum, og eru ekki jafn mikið fyrir málalengingar og kurteisishjal og frakkarar. ahh, gaman að alhæfa.
semsagt, lífleg borg með ágætlega fallegum húsum og tiltölulega rólegum þjóðverjum (ekki of svissneskir).
annars erum við búin að fá fleiri heimsóknir hingað en maður átti von á. hingað flykkjast gamlir Erasmusfélagar úr Tékklandinu (heilir tveir hingað til) og auk þess hafa hingað komið 3 íslenskir októberfestarar úr lagadeildinni og ein uppkomin bankalögfræðigella, í bankalögfræðiferð.
***
það sem ég mun seint jafna mig á er þessi helvítis lokunartími á öllu í Evrópu. á morgun verður ekkert opið.
Lilja keypti hins vegar krossjant í niðursuðudós sem maður getur bakað sjálfur, 6 stk. á € 2,2.
sunnudeginum bjargað! 
mánudagur, september 17, 2007
le triangle
þá er þríhyrningurinn allur, Brno, Köben Lúx.
segja má að maður dansi í kringum Þýskaland.
sit hér í risasmáu íbúðinni í miðbæ Lúx, með þarlendan Mousel bjór í hönd. allt í kring eru fínar götur, með fínum búðum og fínum fötum.
samleigjandinn sem bjó hér á undan passaði upp á að okkur myndi ekkert vanta og skildi eftir allt frá lánsryksugu og örbylgjupoppi til símkorta og bjórs í ísskápnum.
að vera í Lúxemborg er eins og maður gæti ímyndað sér að Ísland væri ef menn hefðu verið undirgefnari dönskunni - hér er töluð franska á sunnudögum og flesta aðra daga, en lúxemborgískan ástkæra ylhæra einkum í eldhúsinu.
fimmtudagur, ágúst 30, 2007
deep thoughts by men while fishing
föstudagsbrandarinn í vinnunni:
Two men are out ice fishing at their favourite fishing hole, just fishing quietly
and drinking beer.
Almost silently, so as not to scare the fish, Bob says, "I think I'm going
to divorce my wife - she hasn't spoken to me in over 2 months."
Earl continues slowly sipping his beer, then thoughtfully says, "You better
think it over - women like that are hard to find."
skrifaði
Halli
kl.
10:24
0
blabla
Merkimiðar: bjór, femínistar, smásögur
sunnudagur, júní 10, 2007
atvinnuviðtöl
#1: What is your worst fault?
"Actually, they're all pretty bad."
#2: What are you looking for in a job?
"Senseless drudgery and money."
#3: Where do you see yourself in ten years?
"Sleeping in your bed, and having your kids call me 'Dad'."
#4: You're overqualified
"I assure you, exactly the opposite is true."
#5. No, it's not your age
"Well, then, it must be my skin colour."
þennan tékkneska bjór þykist íslenska liðið "Club" Lögberg, sem nýlega lauk keppni í Norrænu málflutningskeppninni með glæsibrag, hafa keypt og drukkið í sænskri efnahagslögsögu (í ferju) - jákvætt væri ef farið yrði að flytja til Íslands venjulegan meðaldýran og -góðan tékkneskan og pólskan bjór. af hverju er maður ekki einkaframtakssamari?
ég mæli með Önnu Pihl, sem Rúv byrjar að sýna mánudaginn 18. júní. hún er mikið kjarnakvendi og gæti rústað Erninum með fætur bundna fyrir aftan bak.
fimmtudagur, maí 10, 2007
smugler på toldmuseum
héðan af svölunum sé ég yfir á Nordhavn og Löngulínu.
eins og ég hef áður minnst á er Nýja (ljóta) Hafmeyjan staðsett í nýju íbúðarhverfi, rétt við skipalægi hafnarinnar.
það var þó ekki fyrr en í dag sem ég áttaði mig á því að ToldSkat safnið er staðsett við hliðina á hafmeyjunni og abstrakt vinum hennar. ekki veitir heldur af, því safnið er varla þess virði að gera sér sérstakt far um að heimsækja það.
gamlar mainframe skatt-tölvur, sveitatollbúðir, smyglvarningur, leikfanga-gámagegnumlýsingarbíll og annað semi-athyglisvert prýðir þetta safn, sem ótrúlegt en satt virðist halda uppi tveimur hálfum stöðugildum (ég náði að hanga þarna í hálftíma, með því að skoða allt þarna inni þrisvar, en var eini gesturinn á meðan). myndir
reyndar þótti mér mjög góðar blaðaúrklippurnar af atviki sem átti sér stað á safninu fyrir einum 16 árum síðan. þarna rétt hjá safninu leggjast gjarnan að bryggju skip frá Póllandi.
einn daginn stígur 33 ára pólverji frá borði
hann er með áfengi og nokkur karton af smyglsígarettum
hyggst selja góssið í næstu sjoppu
hann fer inn í eina, en er bent á að prufa frekar húsið við hliðina
í einfeldni sinni labbar hann inn á Tollsafnið
og reynir að selja starfsmönnum þess smyglvarning
en var í staðinn handtekinn
sýningin fannst mér ekki kalla á að heilt safn væri byggt yfir það, þessir munir væru betur geymdir bara í anddyri Skatt- og Tollbygginganna.
***
ég er hægt og hægt að falla frá öllum fordómum mínum gagnvart Þýskalandi, sérstaklega Munchen. Paulaner Hveitibjórinn er virkilega mjúkur og góður. þessi lýsing af netinu nær honum ágætlega:
Taste: nice banana sweetness is creamy up front, but light on taste at the finish when slight acetic lemon zest overpowers.eftirbragðið er vissulega sítrónusýrukennt, er samt varla bragðanlegt. easy drinking þegar maður er latur.
***
lögreglan á Íslandi gerði sig að algeru fífli með því að kaupa undir roma fólkið flug til Rúmeníu, Hr. Gunni á orðið.
skrifaði
Halli
kl.
14:02
0
blabla
Merkimiðar: bjór, köben, ljóð, ljótt og bannað, vinstri grænir
mánudagur, maí 07, 2007
privat badebro
ýmislegt sem gera má sér til dundurs.
grænir og fallegir almenningsgarðar, strendur þar sem drekka má bjór, svo er hægt að drekka bjór á kaffihúsum, á hjólinu, úti á svölum ...
maður þarf þó ekki að húka í köben til þess að stunda strendur, sólböð og bjórþamb. í stundarfjarlægð eru fleiri strendur, garðar, bekkir og þar frameftir. hef verið að skoða enn betur vesturbrú, íslandsbryggju, hellerup og charlottenlund, og ég er rétt að byrja. 
þriðjudagur, mars 27, 2007
Chocolate Stout og Franziskaner
stundum kaupir maður kött í sekk. bjórinn Black Chocolate Stout frá Brooklyn NY er dæmi um slíkan kött. hann fékk ég í einhverskonar bland-í-kassa díl hjá Netto, ásamt belgískum og tékkneskum ofjörlum hans.
duftkennt súkkulaðibragðið og rammsterkt og ale-legt eftirbragð skora ekki hátt hjá undirrituðum. mér liggur við að úrskurða hann ódrekkandi, en ég er nú einu sinni Íslendingur og áfengi verður að bragðast andskoti illa svo ég klári ekki það sem ég byrja á.hins vegar er aldrei öll nótt úti, eigi maður flösku af vini mínum frá Munchen, honum Franziskaner (Franzi).
þessi bjór er tilvalinn fyrir okkur sem erum að boycott-a belgíska Hoegaarden hveitibjórinn. jafnvel bara miklu betri (hef ekki smakkað Hórugarð í smá tíma).
fyrir þá sem ekki vita keypti hið illa alþjóðlega auðveldi InBev (áður InterBrew) í Leuven Hoegaarden framleiðsluna, og færði bruggun bjórsins til Jupille árið 2006. þar með misstu Hoegaarden-búar tákn hins rúmlega 6000 manna bæjar, hjarta hans og stærsta vinnuveitanda.
til að gera þetta ennþá verra, er Jupille í frönskumælandi hluta Belgíu, þar sem "franskir" aumingjar og auðnuleysingjar búa. ímyndið ykkur til samanburðar að mjólkurframleiðsla á Íslandi væri færð til Danmerkur.
ákvörðunin um að flytja bruggunina til aumingjalands kemur vinsældum Hoegaarden ekkert við, hann hefur selst eins og heitar ömmur undanfarin ár.
InBev á jafnframt Stellu, Beck's og Leffe - sem eru allt bjórar sem ég get verið án (þótt sárt sé að missa Leffe). en Hoegaarden snerti ég ekki, sem ég er meðvitaður neytandi!
skrifaði
Halli
kl.
17:25
3
blabla
Merkimiðar: belgía, bjór, ljótt og bannað, piss, öfgasinnaðir unglingar, öryggisverðir
sunnudagur, mars 18, 2007
skamm, þú, geysigrænn!
Vinstri grænir lögðust hins vegar gegn málinu og á fundi þingflokksformanna gaf Ögmundur Jónasson til kynna að það myndi kosta geysimikla umræðu ef menn reyndu að ná því í gegn.
áfengi.
undir 22%.
úr einkasölu.
það er svona flókið! þetta er það sem sumir telja að útheimti geysimikla umræðu.
ummælin á myndinni eru eru úr umræðum um breytingartillögu á áfengislögum fyrir ári síðan.
skrifaði
Halli
kl.
19:36
1 blabla
Merkimiðar: bjór, draumar, ljótt og bannað, vinstri grænir
laugardagur, mars 17, 2007
höttaður köttur
gefum honum orðið:
I'd like another drink i think
Another drink to make me pink
I think I'll drink until I stink
I'll drink until I cannot blink
Perhaps I'll have a shot of rye
The rye I spy with my own eye
Some rye to make me fly so high
I think that I can touch the sky
Or baybe I will have some rum
It's not so dumb to want some rum
I'll drink and fall upon my bum
Or maybe contemplate my thumb
Some vodka would be very nice
Or wine, or maybe scotch on ice
Perhaps Kahlua would entice
I'll drink it once, I'll drink it twice
Perhaps some gin to make me grin
It's not a sin to want some gin
A 26 will make me spin
And the I will again begin
I want some beer to make me cheer
Hurray! Hurrah! A cheer for beer!
I will not stick it in my ear
Hurrah! Hurray! I'm here for beer!
I'll drink with my friends Jack and Ron
I'll drink until my liver's gone
I'll invite Sam and Bud and you
And Captain Morgan can come, too
I'm loaded now, I have to go
My brain is working very slow
There's just one thing I need to know:
Where is the can? I have to go!
ein klassísk svo til að komast í gegnum helgina:
mánudagur, mars 12, 2007
rétturinn til þess að vera reikistjarna
24. ágúst 2006 samþykkti Alþjóðasamband stjarnfræðinga nýja skilgreiningu á reikistjörnum, og fellur stjarnan sem áður var þekkt sem reikistjarnan Plútó ekki undir hana. telst Plútó því dvergreikistjarna í dag.
ég er á því að Alþingi ætti að samþykkja þingsályktunartillögu þess efnis að íslenska ríkið lýsi því yfir við alþjóðasamfélagið að Ísland fallist ekki á hina nýju skilgreiningu, og muni áfram telja Plútó til reikistjarna.það er ömurlegt hvernig hið íslenska vísindasamfélag beygir sig alltaf fyrir heimskulegum alþjóðlegum samtökum, stöðlum, sáttmálum og samböndum.
fari stuðningur eða andstuðningur við Íraksstríðið fjandans til, þetta er þjóðþrifamál!
Bjarni Moggablogg Magnússon og Björn Þorn Guðmundsson (hic) eru eftir minni bestu vitund helstu sérfræðingar okkar í geimrétti og réttindum stjarnfræðilegra fyrirbæra. gætu þeir því leitt þetta þjóðþurftar starf með myndarbrag.
(þar sem þessir tveir koma saman, þar verður súr stemmning og mikið drukkið)
***
geturðu sagt Rechtswidrigkeit 4 sinnum hratt?
Tastrafrecht, þ.e. að refsing sé í réttu hlutfalli við sekt sakbornings. sé hann aðeins hálfsekur, ber auðvitað að nýta einungis helming refsirammans.
því má þó ekki rugla saman við Rechtswidrigkeit - þ.e. meðvitund um að verknaður sé ólögmætur og refsiverður.
Geständningsprozeß - þ.e. játningarmeðferð, hvernig játning er fengin frá sakborningi. þegar játning var skilyrði refsingar varð auðvitað að fá hana fram með hverjum þeim hætti sem mögulegt var.
ofantalið er að hluta byggt á bók Heikki Pihlajamäki: Evidence, crime, and the legal profession: the emergence of free evaluation of evidence in the Finnish nineteenth-century criminal procedure. að hluta er um grín að ræða.
í bókinni er ágætis umfjöllun um hvernig notkun sönnunargagna fór úr því að vera fastmótuð og reglubundin, til þess fallin að konungur gæti hæglega stjórnað meðförum sakamála og hvernig franska byltingin fæddi af sér frjála sönnunarfærslu og frjálst sönnunarmat, stundum kallað “théorie morale des preuves”.
***
skrifaði
Halli
kl.
09:33
2
blabla
Merkimiðar: bjór, laganemar, ljótt og bannað, myndir, skot, vinstri grænir
mánudagur, febrúar 19, 2007
Hvítur
neeei, ekki Hviid's Vinstue, heldur Hvid Turborg.
keypti í fyrradag 2 hvíta og 4 bláa tuborg (og 24 græna að auki til að hafa sambanburð).
sá hvíti er mjög góður - svolítið súr ávaxtakeimur sem gerir ágætis hluti. auðveldur í munni (eflaust fínn fyrir þá sem finnst venjulegur bjór ekki nógu góður) og svalandi. ekta bjór til að drekka útá svölum þegar kuldaboli er farinn. hann er ekki bruggaður úr hveiti en kemst í áttina að hveitibjórum í bragði. innihaldslýsingin er bygg, humall og aróma.
samkvæmt tuborg.dk er ætlunin að bjórinn sé mjúkur með sætu eftirbragði, og er hann sagður 'fusion' milli ljóss ensks ale-aroma og amerískra lagerbjórs-humla. ekki hljómar það nú vel, amerískur lagerbjór og enskt ale?sá blái - enn meira bragð og ekki jafn súr. sá hvíti er örlítið vatskenndur en þessi gefur góða fyllingu. ennþá meira aróma, og búið er að bæta karamelfarve e150C - ég hugsaði þegar ég smakkaði hann að það sem helst væri dökkt við þennan bjór væri liturinn - en samt, hann hefur þykkari 'áferð' heldur en hvítur og grænn.
samkvæmt tuborg.dk er ávaxtabragðið komið af þýskum og tékkneskum humlum. sagt er að hann hafi góða fyllingu án þess að vera þungur - því sé létt að drekka hann "som vi godt kan lide det i Denmark".
niðurstaða: ég mun halda áfram að drekka þessa nýju bjóra, þennan bláa líklega meira en hvíta. nýja framleiðslan hjá Túborg er sett til höfuðs smábrugghúsunum, sem hafa verið að spretta hér upp eins og gorkúlur (sem er algengur sveppur af Físisveppaætt), og fyrir okkur sem höfum takmörkuð ráð til að kaupa þann bjór er þetta ágætis valkostur.
báðar státa nýju tegundirnar af 4,6% alkahólinnihaldi líkt og sá græni.
það er hægt að fá ódýrari bjór, allt niðrí 2 kr., en mér finnst satt að segja sullbragð af þeim öllum (mismikið) - vatnskenndir með vondu eftirbragði svo helst þarf að drekka þá frosna svo bragðlaukarnir dofni. svo virðist sem bjór verði "ásættanlegur" við 6,5 kr. markið.
það sama var uppi á teningnum í Tékklandi - bjórinn kostaði frá 2 Koruny, en Gambrinus (frá framleiðanda Pilsner Urquell) og fleiri "alltílagi bjórar" kostuðu 6-8.
(hér í DK er margfaldað með 12 til að fá íkr., en í TK með 3 ... those were the days ...)
Tuborg Classic Gylden er einnig fínn í hófi, með hungangi og læm, svolítið of súr - en eins ótrúlegt og það kann að virðst smakkast hann í alvöru eins og gull.
grænn, blár og hvítur kosta allir 6,5 kr. í SuperBrugsen (án pants). ég tók reyndar eftir því rétt í þessu að ég fékk 9 kr. rabat af hvítu flöskunum tveim - þær kostuðu því aðeins 2 kr. stykkið - sem útskýrir af hverju þetta voru síðustu hvítu flöskurnar í búðinni)
að lokum: ekki falla fyrir tælenska bjórnum Singha. mæli ég þá 58 sinnum meira með Saigon bjórnum frá Víetnam sem Hrannar bloggaði um fyrir nokkru síðan.
eldri færsla um bjór í dk/tk.
mánudagur, febrúar 12, 2007
heimsborgarar á ferð
heimsborgari 1*
klukkan 0:30 aðfaranótt sunnudags hringir Stefán Bjarni góðvinur minn og fasteignasali í mig. "ertu kominn til köben?" spurði ég í gríni - og hann játti því, sagðist vera í miðbænum.
fullur efasemda klæddi ég mig í og hjólaði niðrí bæ, þar sem strákurinn var mættur, nýkominn frá Spáni hafandi keyrt bíl foreldra sinna þangað (og þá með). sátumst við að sumbli fram eftir morgni og komum við á helstu ölkrám.
heimsborgari 2
í miðbæjarrúnti okkar Stebba var eðlilega komið við á Moose, sem var troðinn að laugardagsvenju af siðprúðum ungmennum í happy-hour fíling. hvern sé ég þá ganga á móti mér annan en Boga Guðmunds, eins og ekkert væri eðlilegra!
Bogi, sem er búsettur í Brussel, með starfstöð í Leuven þar sem hann leggur stund á ritgerðarskrif við lagadeild HÍ var nýkominn frá París og var í Baunalandi að heimsækja bróður sinn. var hann að ganga út úr háskólabókhlöðunni við Fjólustræti í þessum skrifuðu orðum, og eftir sit ég fullur af anda, innan um minni spámenn.
heimsborgari 3
fyrst hér er rætt um heimsborgara þá er ekki úr vegi að nefna að hinn mikli ferðalingur H. hefur stofnað þverfaglegt matar- og sælkerablogg á slóðinni sælkeri.blog.is. í sinni fyrstu umfjöllun gerir hann einmitt skil uppáhalds víetnamska veitingastaðnum mínum í Khöfn og gerir það vel.
hann er reyndar óvenjulega mikið gefinn fyrir froskalappir. lappagefinn. 
* undirritaður er að sjálfsögðu heimsborgari nr. 1, tölusetningin hér að ofan er aðeins til að aðgreina aðra heimsborgara sem koma við sögu í færslunni.
neðri myndin tengist umfjöllunarefni ritgerðar minnar með beinum hætti.
sunnudagur, febrúar 04, 2007
Willy Libero

ég var beðinn um að drekka fyrir ónefndan stjörnulaganema á meðan ég er hér úti og það er um að gera að gera það þá með stæl.
jólabjórinn er enn á útsölu og fyrir stuttu festi ég kaup á 2 slíkum.
1. White Christmas frá míkróbrugghúsinu BB. alveg einstaklega góður og ferskur hveitibjór, en svo man ég ekki meir.
2. Greenland White Ale - melirnir hafa tekið jólabjórinn og smellt á hann nýjum umbúðum. nú má kaupa Greenland white og brown ale í lókal súpermarkaðnum.
þrátt fyrir að orðið ale kæmi fyrir í nafninu (minnir mig á enskt ale, sem er hreinn viðbjóður) prufaði ég þann hvíta og hann slapp vel fyrir horn. það er eitthvað við vatn sem hefur verið frosið á meðan á iðnbyltingunni hefur staðið, sem ég fíla.
annars er maður orðinn ónæmur á gott vatn vegna kalkdrullunnar sem lekur úr krönunum hér í borg.
***
hér eru svo þrjár myndir.
a) mynd sem Hrannar tók af húsvegg stutt frá Meistara- völlum í Písa, þar sem stendur WILLY LIBERO (Free Willy).
b) mynd af mér og auglýsingu fyrir bók sem prýdd er mynd af mér og naflanum mínum. við sáum hana er við lentum á Hovedbane.
c) mynd af pottloki sem Hrannar tók eftir er við gengum heim frá Hovedbanestation meðfram Söen.
skrifaði
Halli
kl.
19:09
1 blabla
Merkimiðar: bjór, ferðalög, heimsóknir, hygge, vinstri grænir
sunnudagur, janúar 21, 2007
the cat ate my computer mouse
jæja við fórum loksins á Glyptotekið og Hviids Vinstue, 2 merkustu staði borgarinnar, áðan.
15 söfn eftir á listanum, og nokkrir barir. sérstaklega langar mig á fílinn og músina á Nörregade - minnsta bar Hafnar.
í öðrum fréttum er að ég drakk í gær grænlenskan jólabjór, úr vatni sem hafði verið frosið í 180.000 ár áður en bruggað var úr því. hann var virkilega góður og alveg þess virði að pung'út 35 kr. fyrir honum á útsölu í Nettó (sjá fyrir og eftir myndir). þetta var dökkur 5% bjór með ávaxtakeim, minnti mikið á belgískan "munkabjór" - mér er það algerlega óskiljanlegt að Grænlendingar ætli að binda framleiðslu hans við jólavertíðina eingöngu.
hér er annars farið að kólna, og því gott að þurfa að hanga inni við ritgerðarskrif.
það er í raun búið að vera haustveður í Khöfn síðan um miðjan október og hefur verið tilvalið að fara í rómantíska hjólatúra um borgina - hér eru garðar út um allt í nágrenninu, í görðunum vötn og á vötnunum endur, sem þiggja brauð gærdagsins með þökkum.
vil deila með ykkur fallega laginu Kóngulóarinnar Vefur e. Kötu Melúa.

skrifaði
Halli
kl.
17:42
0
blabla
Merkimiðar: belgía, bjór, fegurð, happy talk, kakkalakkar, köben, tónlist

