Hvað er að gerast:

Sýnir færslur með efnisorðinu öfgasinnaðir unglingar. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu öfgasinnaðir unglingar. Sýna allar færslur

þriðjudagur, nóvember 18, 2008

2 danskar og ein sæt

lögreglan í Hellerup lýsir í dag eftir 3 ungum stúlkum sem börðu og rændu 58 ára konu síðastliðinn laugardag.


gamla konan gat gefið löggunni greinargóða lýsingu á árásarmönnunum: 
Den første er ca. 14 år, dansk, ca. 160 cm, lidt kraftig af bygning, mørkt pagehår, markeret ansigt, mørke øjne, grov stemme. 

Den anden pige er dansk, 13-14 år, ca. 160 cm, normal af bygning, kommunefarvet hår, formentligt iklædt rødt tøj. 

Mens den sidste beskrives som 13-14 år, ca. 155 cm, blonde striber i mørkt hår, slank, mørk lød i ansigtet og meget smuk.

fólk sem statt er í Kaupmannahöfn og nágrenni er beðið um að hafa samband við lögreglu sjái það þrjár stelpur á ferð, eina danska og feita með bólur, aðra danska og venjulega með músabrúnt hár og þá síðustu granna og mjög sæta með ljósar strípur, en lítur ekki út fyrir að vera dönsk.

fimmtudagur, september 04, 2008

brekbrotinn

íslenskt mál er í stöðugri þróun nú á tímum, enda gefur alþýða þessa lands út texta af öllu tagi í meira mæli en nokkurn tíman fyrr.

það sem menn telja til orðskrípa í dag getur hæglega orðið að almennri málvenju á morgun - það er bara spurning um að koma sér saman um merkinguna.

neðangreind orð gúgglast t.d. nokkuð vel, þótt þau kunni að koma mörgum spánskt fyrir sjónir:

1. fólk af erlendu breki (brotið)
- brek í merkingunni smábrellur, brögð eða svik?
- eða breka, þ.e. kvabba og láta ófriðlega?
- útlensk læti og brek? flóttamenn stríðsátaka.
- hádegisbrek (sbr. 'break')? afsakið brek!

2. jáhvæðni
- hvæðni í merkingunni hvjæja/hvína? hljóðin í meðvindi.
- hvæs, sbr. hvás og más? láta móðann mása á jákvæðan hátt.
- hvöss hæðni = hvæðni? uppbyggileg hvöss hæðni.

3. auðlyndir (þjóðarinnar)
- að láta sér lynda við auð(menn)? algjör nýlunda þessi auðlunda og miklar glaðlindir þessar glaðlyndir!
- frjálslyndi í garð auðs? Auðlyndi flokkurinn...

sunnudagur, maí 25, 2008

hrákaldur veruleikinn í formi nýstúdents

ónefndur vinur minn og jafnaldri var staddur á Prikinu núna um helgina. eitt sinn er hann stóð í röðinni á klósettið óskaði hann stúlku með stúdentshúfu til hamingju með árangurinn, minnugur gleðinni sem umlék útskriftardaginn okkar vorið 2002.

"ert þú ekki full gamall til þess að vera hérna inni?" svaraði hún.

hann brosti bara að því, en félögum hans þykja þetta stórar fréttir, þar á meðal mér.

ég er semsagt kominn á þann aldur...

miðvikudagur, febrúar 20, 2008

sólbaðsstofa - sprengihætta


ég var að sjá frétt um að sólbaðsstofa á Austurbrú, við Parken og ekki langt frá íbúðinni sem maður leigði á sokkabandsárum sínum í Köben (kort með frétt Jótlandspóstsins) hafi verið sprengd í loft upp rétt í þessu.

eins og einn segir í ummælum við fréttina:

Det er muhammedtegningernes, politivoldens, Foghs, PETs DFs, afklædte damers og samfundets skyld - det hele!


myndir af jp.dk, avisen.dk og berlingske.dk

þriðjudagur, janúar 22, 2008

kristileg kynhegðun

samkvæmt þessari rannsókn [Berlingske] stunda sænsk ungmenni í auknum mæli kynlíf með einstaklingum sem þau kynnast, sama kvöld.

37% 16-17 ára stúlkna játa á sig slíka hegðun í rannsókninni, samanborið við 21% ári áður og hjá drengjum fer hlutfallið úr 23% í 35%.

að sögn Vivecu Urwitz hjá enheden for hivprævention i Socialstyrelsen í Svíþjóð kallar þetta á aukna kynfræðslu og betri einstaklingsbundna ráðgjöf.

mér sýnist kynfræðslan vera að bera mjög góðan árangur í Svíþjóð, samkvæmt þessu - a.m.k. fylgir ekki fréttinni að þetta unga fólk sé að leika sér án þess að nota réttar forvarnir.

að mínu mati getur kynfræðsla leitt til þess að fólk viti betur hvað felst í kynlífi, fólk verður sjálfsöruggara og nýtur þess jafnvel betur.
smokkanotkun er síðan forsenda þess að stunda "skyndi"kynlíf af þessu tagi.

það er helst að menn geti haft áhyggjur af hnignun trúarlegra gilda - þetta er greinilega mál fyrir Óla Tynes, en hann er sérstakur áhugamaður um kynlífshegðun skandinava, kynlíf utan hjónabands, afbrigðilegheit í ástarlífinu og kynþokka almennt.

sunnudagur, júlí 29, 2007

um þetta vildi ég ekkert sagt hafa ...

nýju umferðarskiltin:
Svartur sunnudagur
Óhugnalegt...
Svartur Sólarhringur
Morð í Reykjavík
Óhugnanlegt!!
Hroðalegt atvik
Morð
Skotárás.
Hræðilegar fréttir
Hræðilegt
SVÖRT HELGI
Mín dýpsta samúð
Stórborgin Reykjavík
Ömurlegar...
Sorgleg endalok.
Samúðarkveðjur.
Hvað getur maður sagt ?
Óhugnarlegt
Sorglegt
- mbl.is

ætla stjórnvöld að horfa aðgerðarlaus á?

er ekkert heilagt fyrir þessu fólki utan af landi?

getur maður ekki lengur gengið óhultur um borgina og keypt sér dóp?

hefðu mislæg gatnamót komið í veg fyrir morðið?

hvenær á að stöðva tölvuleikjaofbeldisvæðingu unglinga?

eins og ein á mbl.is sagði: Hærðilegt, bara hærðilegt

þriðjudagur, júlí 24, 2007

Sparisjóður Íslands

mér fyndist Iceland Savings betra nafn á þessum mótmælendahippabanka.


... ég myndi örugglega treysta þeim betur en þeimbankastofnunum sem nú er völ á, þau myndu kennar mér að hætta að leggja ekkert inn og taka bara út og hjálpa mér að leysa út tékkann í Gleðibankanum.

mánudagur, apríl 23, 2007

Oko Yono, no ho yo!

fullt að gera. vakna, borða, hella upp á, hjóla á bókasafnið.

helsta spennan í mínu lífi þessa dagana felst í að velja hvernig Pickwick te ég á að taka með mér, og fara yfir á einstaka rauðu ljósi á hjólinu.þess vegna má ég til með að brydda aðeins upp á Yoko Ono, sækó-kvendinu sem plataði okkur (ykkur) til að reisa ljósa-böll í Viðey. fyrir frið í heiminum, að sjálfsögðu.


meðal stuttmyndabræðinga Yokoar má nefna myndina No. 4* (sem einnig er þekkt sem Bottoms og var sýnd við misjafnar undirtektir í MR á 7. áratug síðustu aldar), en hún sýnir nakta afturenda 365 sjálfboðaliða.
Up Your Legs Forever var líka eflaust ágæt, en þar fylgir myndavél eftir nöktum fótum fólks. "We asked everybody to donate their legs for peace" sagði Jókó um hana (hljómar kunnuglega?) - ahh, þvílík hugsjónarmanneskja.

Flugan er stuttmynd sem nálgast má á netinu, þar sem fylgt er eftir ferðalagi nokkurra flugna eftir líkama naktrar konu. hljómar kannski ekki svo illa, þar til í ljós kemur að um er að ræða alveg böns af flugum. ojjbara.
ég reyndist ekki nógu þolinmóður / listhneigður til að horfa á mikið af henni.


Frelsi er mjög réttnefnd mynd, en þar reynir Yoko sjálf að losa sig úr brjósthaldara (sem hún er í einum fata) án árangurs.

sunnudagur, apríl 22, 2007

hetjukverúlantinn Þorgeirson

[...] illu heilli var Hæstiréttur Íslands stofnaður tveim árum síðar, árið 1920. Þá lokaðist íslensk lögfræði inni í Háskóla Íslands. Prófessorarnir ykkar sitja í hæstarétti líka svo þið laganemar haldið áfram að vera í prófum hjá þeim, líka eftir að þið eruð orðnir hrl. Íslensk lögfræði er hvergi kennd nema í Reykjavík. Gagnrýnin hugsun á þar ekki upp á pallborðið. Þetta er sams konar fagleg einokun og hrjáði allar greinar vísinda í sovétkerfinu.
[...]
Síðasti sigur hans [yfir íslenskum stjórnvöldum] vannst þegar hann fékk að sleppa eignarfallsessinu í föurnafni sínu, enda kveðst hann einskis eign vera. Þorgeir er því Þorgeirson. Þorgeir Þorgeirson er maður sem stendur fast á rétti sínum.

- heimasíða Þorgeirs Þorgeirsonar rithöfundar og athafnakverúlants*, sem m.a. er frægur fyrir að hafa unnið mál gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu, er um margt fróðleg.

* kverúlant (lat. querulus) er maður sem er gjarn á að telja sig beittan órétti af öðrum og leitar allra leiða til að berjast gegn því.

þar kemur m.a. fram að hann hafi eytt 3000 klukkutímum í gerð síðunnar, sem heitir leshús.

einnig er þar að finna margskonar skjöl, dóma, ákvarðanir og viðtöl sem tengjast baráttu hans við stjórnvöld og dómstóla vegna greinaskrifa hans í Mbl. 1983. þar ræddi hann um það vandamál sem heimskir dyraverðir og lögreglumenn voru í Reykjavík á þeim tíma og sagði hann að sumir lögreglumenn væru "einkennisklædd villidýr".

ég held að fullyrða megi að dyraverðir hafi almennt lítið batnað síðan þá, en lögreglumenn trúi ég að hafi skánað. fyrir utan suma.

málið sem hann fór með til Mannréttindadómstólsins varð til þess að ákveðið var að lögfesta Mannréttindasáttmála Evrópu, árið 1994, og í framhaldinu var stjórnarskráin uppfærð til samræmis við (þá) nútímann.

ánægðastur held ég samt að hann hafi verið þegar hann fékk boð frá Davíð Oddssyni sjálfum (ráðherra Hagstofunnar), daginn fyrir alþingiskosningar 1999, um að eignarfallsessið í nafninu hans væri niður fallið. enda hafði hann náð því í gegn að vera nefndur Þorgeirson í málsmeðferðinni í Strassborg.

Þorgeir fæddist árið 1933 og lést sjötugur að aldri. hann lifir þó áfram í gegnum heimasíðuna sína, ráðamönnum fyrr og nú til ama.

föstudagur, apríl 20, 2007

sannleikurinn um Pravda / nepravda


hérna er myndin sem ég tók af gamla lessalnum í gær. hún er ekki alveg jafn stór og sú svarthvíta, en sýnir vel hvernig salurinn hefur fengið að halda sér. annað en Austurstræti 22, sem var gjörbreytt frá því sem það var upphaflega. krókódílatár yfir þeirri aumu byggingu.


svo var ég að finna fréttir frá 23. ágúst 1969, frá því þegar Tékkóslóvakar söfnuðust saman til að minnast ársafmælis vorsins í Prag. einn drepinn í minni gömlu heimaborg Brno. þetta hefur verið alveg ægilegt.

þriðjudagur, mars 27, 2007

Chocolate Stout og Franziskaner

stundum kaupir maður kött í sekk. bjórinn Black Chocolate Stout frá Brooklyn NY er dæmi um slíkan kött. hann fékk ég í einhverskonar bland-í-kassa díl hjá Netto, ásamt belgískum og tékkneskum ofjörlum hans.
duftkennt súkkulaðibragðið og rammsterkt og ale-legt eftirbragð skora ekki hátt hjá undirrituðum. mér liggur við að úrskurða hann ódrekkandi, en ég er nú einu sinni Íslendingur og áfengi verður að bragðast andskoti illa svo ég klári ekki það sem ég byrja á.hins vegar er aldrei öll nótt úti, eigi maður flösku af vini mínum frá Munchen, honum Franziskaner (Franzi).
þessi bjór er tilvalinn fyrir okkur sem erum að boycott-a belgíska Hoegaarden hveitibjórinn. jafnvel bara miklu betri (hef ekki smakkað Hórugarð í smá tíma).

fyrir þá sem ekki vita keypti hið illa alþjóðlega auðveldi InBev (áður InterBrew) í Leuven Hoegaarden framleiðsluna, og færði bruggun bjórsins til Jupille árið 2006. þar með misstu Hoegaarden-búar tákn hins rúmlega 6000 manna bæjar, hjarta hans og stærsta vinnuveitanda.
til að gera þetta ennþá verra, er Jupille í frönskumælandi hluta Belgíu, þar sem "franskir" aumingjar og auðnuleysingjar búa. ímyndið ykkur til samanburðar að mjólkurframleiðsla á Íslandi væri færð til Danmerkur.

ákvörðunin um að flytja bruggunina til aumingjalands kemur vinsældum Hoegaarden ekkert við, hann hefur selst eins og heitar ömmur undanfarin ár.

InBev á jafnframt Stellu, Beck's og Leffe - sem eru allt bjórar sem ég get verið án (þótt sárt sé að missa Leffe). en Hoegaarden snerti ég ekki, sem ég er meðvitaður neytandi!

mánudagur, mars 19, 2007

100% eðlislægt


***

ég gafst upp á þessari auglýsingu á msn. bæði Björgúlfsbanki og Kalli kókómjólk voru farnir að bögga mig með hreyfimyndum sem skáru mig í augu og særðu fegurðarskyn mitt og sálarró.

þótt ég væri með msn á dönsku, í Danmörku og skráður með heimili í Þýskalandi á msn.com, fékk ég samt áfram þessar íslensku óværur.
þannig að ég bara fjarlægði óþverrann endanlega, með litlu sniðugu forriti sem heitir A-patch, mjög auðvelt, mæli með því.
leiðbeiningar: kveikir á því, next, next, remove ad, next, close
ég hafði hingað til umborið þessar auglýsingar, en með því að bjóða mér upp á svona yfirgengilegar hreyfi-flash-myndir yfirgaf messenger mig.

auglýsingar þurfa ekki að hreyfa sig eins og flogaveik börn eða öskra á mig til þess að ég veiti þeim athygli. mætti ég þá frekar biðja um femínista-taugaveikjandi kók Zero auglýsingu.

***

þessi mynd af Ungeren-mótmælunum finnst mér flott. hún er úr myndbandi á jútjúb.

miðvikudagur, mars 14, 2007

hvar erum við?

ennþá á Jagtvegi sýnist mér.
einhverjir óróaseggir hafa tekið sig til og endurnefnt Frúartorg og Fjólustræti eins og sést á þessum myndum. af þriðju myndinni að ráða virðast þeir hafa verið truflaðir þegar þeir byrjuðu á Dyrköb götu.

við tókum líka eftir því á Norðurbrú að þar höfðu margar götur verið merktar upp á nýtt, af svo mikilli natni að maður lét næstum platast.

ég veit ekki hvort göturnar á Norðurbrú voru merktar upp á nýtt áður en allt fór til fjandans.

hins vegar beittu tékkóslóvakar svipuðum aðferðum við að afvegleiða liðsauka Varsjárbandalagsins frá Póllandi þegar rússar bældu niður vorið í Prag 1968. að sumra sögn enduðu margar hersveitirnar aftur á pólsku landamærunum eftir að hafa þvælst um Slóvakíu, þar sem skilti höfðu verið tekin niður og á þeim skipt víða.
í Tékkóslóvakíu mátti jafnframt víða finna skilti, plaköt og graffítí sem mótmæltu valdtökunni. ekki ósvipað og hér.

það er kannski ósmekklegt að líkja þessum tveim atburðum saman.

þetta er í það minnsta svakalega flott leið til að vekja athygli á baráttunni og óréttlætinu sem krökkunum finnst þeir verða fyrir. síðasta myndin er úr fyrstu heimsstyrjöldinni og heitir mikil barátta er að hefjast, eftir V. Spassky.

sunnudagur, mars 11, 2007

husk altid Ungeren

fórum loksins og skoðuðum stríðshrjáðu svæðin á Norðurbrú, tókum myndir og keyptum okkur svo ís. Jagtvegur 69 var horfinn með öllu sínu hyski.

maður er orðinn svo samdauna sjúkdóms-, kapítalista- og klámvæðingunni að þetta tók lítið á mann. hvað er fólk að eyða peningum í öll þessi blóm? hugsaði ég. og hver kveikir í hjóli til að mótmæla, litli smáborgaraanarkistinn?



hvað ætli Scarlett myndi segja um þetta?
sjá myndband (langdregið en flott).

föstudagur, mars 09, 2007

sumt verður seint ofmetið

baráttudegi kvenna var fagnað í gær í Jónshúsi. fróðlegt og skemmtilegt. húsið þar sem hugmyndin um þennan dag fæddist hjá Clöru Zetkin 1910 var jafnað við jörðu fyrir stuttu, af kapítalískum pjúritönum. það stóð við Jagtvej

svoleiðis pjúrítanar eru jafn slæmir eða verri en kapítalískir klámhundar.***

Samhengið er augljóst

Siggi minn, við verðum því miður að taka öndunarvélina þína úr samhengi. Hann Eiður Smári er bara ekki alveg að standa sig. Svona er það bara.

- ánægður með þessa nafnlausu hugleysingja. vonast til þess að sjá fleiri slíka skríða úr fylgsnum sínum.
að binda góðgerðir við markaskor, eða samstarf um víðtækt samkomulag um styrki eins og eitthvert gáfnaljósið ákvað að nefna það- þetta fólk er bæði úr sambandi og samhengi við manngæsku og mannlega skynsemi.

ég hugsaði það sama og þessi nafnlausi nonni og hef í mótmælaskyni ákveðið að gefa 30 þús. kall til heimilislausra grænlendinga ef Ísland vinnur Júrovísjón.

***

íslenska kaffitár-kaffið frá mömmu og pabba er búið. nú er bara drukkið Gevalíasull og
árangurinn er eftir því.

Magga snillingur (Khöfn) sendi mér þetta skemmtilega X-factor myndband. hún notaði líka tækifærið í gær þegar ég var kominn aðeins í glas til að sannfæra mig um að ganga í kirkjukórinn. tjah...
Magga megalúf (Berlín) sendi mér upplífgandi stafræna blaðaúrklippu - menn virðast ekki geta gert upp hug sinn um hvort ég sé mikill, fari vaxandi, sé ofmetinn eða hvað og hvað.

miðvikudagur, desember 27, 2006

sjálfhverft en sögulegt

mamma skannaði inn þessa blaðagrein og sendi mér úr Þjóðviljanum - þri. 9. júlí 1985 bls. 7.

ég hafði alltaf staðið í þeirri trú að ég hafi verið að hjálpa til þegar ég með tárin í augunum málaði Kvennahúsið / Hlaðvarpann þennan dag, en í blaðagreininni segir að "krakkarnir hafi fengið að mála að vild sinni á veggi hússins"... eins og þetta hafi bara verið eitthvað grín.



"Um miðjan 9. áratuginn tók sig saman fjöldi kvenna[*] og keypti húsin að Vesturgötu 3. Markmiðið var að forða húsunum frá niðurrifi og koma þar á fót aðstöðu fyrir konur til menningar- og félagsstarfsemi auk húsnæðis fyrir kvennafyrirtæki. [...]
Í Hlaðvarpanum er til húsa eftirfarandi starfsemi: Kaffileikhúsið (stofnað 1994)
Fríða frænka, antikverslun. Stígamót, upplýsinga- og ráðgjafarmiðstöð um afleiðingar af kynferðisofbeldi. Vera, tímarit. Bríet - félag ungra femínista. - og fleira."
- af upplýsingavef um myndlist og myndhöfunda (umm.is), ódagsett
(ég held samt að Stígamót séu alfarið flutt í Strætóbílstjórahúsið á Hverfisgötu - netið er tvísaga í þessu, og ég hef aldrei elt Lilju þangað).
* þ. á m. móðir mín.

miðvikudagur, desember 13, 2006

það vaxa bláber á húsinu mínu


... og þau eru risastór! rugl töff* að það sé gríðarinnar bláberjalyng** utan á blokk. ég held að þetta sé evrópskt sósíalistalyng - berin eru fyrir alla en þau letja mann til vinnu og eru því eitruð.




þynnkan í dag er afrakstur prófloka og er þess valdandi að mér langar í feitan kebab og ódýra klippingu - af hverju bý ég ekki á Nörrebro. ætli fjallið verði ekki að koma til Múhammeðs***.


allir meðlimir Kaupmannahafnardeildar Orators hafa lokið prófum í dag og af því tilefni ætlum við í ekta danskt hlaðborð á víetnömskum veitingastað. Ásgeir Reykfjörð hefur verið gerður að heiðursfélaga og mun vígsluathöfnin fara fram í DIB**** í kvöld.


Gúglemail býður manni að skoða viðhengi sem html. kemur stundum skemmtilega út:




Svoviðóskumeftirsvarisemfyrst,hafiðþiðáhugaáaðhaldajólaballoghvorndaginn?



ES. prófið í gær gekk bara alltílagi, nía var svarið en ég veit ekki hver spurningin var. eftir prófið var ég allt að því sakaður um að hafa ekki vitað að reglugerðin í Sigurjónsson v. Iceland hafði ekki lagastoð. "HALLÓ veistu ekki hver ég er? ég FANN UPP Framadóminn!" sagði ég við sjálfan mig þegar ég hjólaði heim að prófi loknu.
en þetta er búið, aldrei nokkurntíman***** fleiri próf - héðan í frá verð ég eingöngu fræðimaður.



* það mun vera í tísku að nota orðið
rugl til að lýsa því yfir að eitthvað sé mjög - skv. Írisi, sem fylgist rugl vel með.

**
(lyng/ling? komið af löngun, langt eða Ling il Chong?) Google sagði lyng, með epsiloni. umræddar plöntur eru samt meira í áttina að trjám.

*** If the mountain won't go to Muhammad ...:
This expression is based on a tale that Muhammad once sought proof of his teachings by ordering a mountain to come to him. When it did not move, he maintained that God had been merciful, for if it had indeed moved they all would have been crushed by it. - Wikipedia




**** um er að ræða skammstöfun.

***** í bili

laugardagur, nóvember 18, 2006

laugardagur, september 16, 2006

Mbl., Fbl., vísir, sæðingarmenn ungliðar og ganga-sjón

*******fjölmiðlar:
halló?

efni síðustu færslu varð að forsíðufrétt hjá Fréttablaðinu 2 dögum seinna, þ.e. í gær (auðvitað var ekki vitnað í mig, melirnir). færslan fékk hinsvegar ekki eitt einasta komment hjá ykkur (meintum) lesendum, eruði svona fáir, eða bara ill-sjokkeraðir?
í dag er sagt frá því í blöðunum að í gang sé að fara samnorræn samvinna í því að gera kynlíf við dýr ólöglegt. eins og á Íslandi virðist hér aðeins mega refsa fyrir að meiða dýrin líkamlega, en viðbjóðsháttur virðist geta viðgengist svo lengi sem þau eru ekki limlest. íslensku lögin um dýravernd segja að óheimilt sé "að hrekkja dýr eða meiða" - og ef ekki er hægt að sýna fram á að dýrin fái meiddi, þá þarf að sanna að kynlíf manna við dýr sé hrekkur. eru dýr ekki leidd saman af bændum á hverjum degi? er dýrum af báðum kynjum ekki nauðgað á hverjum degi af sæðingameisturum? er sæðingarmaður ekki að stunda kynlíf með dýri, nema hann fái eitthvað kynferðislegt útúr vinnu sinni? er þessi danski 'Peter' nokkuð annað en "frjótæknisóbermi" (-s h. óhræsis sæðingarmaður) ... pæling ...

muna: fólk er til að stunda kynlíf með, dýr eru til að drepa og borða.
samfélagið leyfir ekki að maður snúi þessu við og borði annað fólk eða stundi kynlíf með dýrum.


(** smá tónlist:
í samræmi við 11. gr. höfundalaga vil ég dreifa til þeirra (augljóslega) örfáu sem lesa þessa síðu, til einkanota, laginu blú velvett í skemmtilegri framsetningu slóvakíska stúlknabandsins
Tornádo Lue.)

Mogginn sagði í dag frá því að systir Litlu Hafmeyjunnar hafi nýverið verið sett upp rétt hjá þeirri gömlu (í 2 mínútna hjólatúrsfjarlægð frá okkur hér á Holsteinsgötu). fyrirsögnin og textinn eru beinar þýðingar úr dönskum fjölmiðlum, en samt náði náunginnn sem þýddi fréttina að breyta nafni myndlistamannsins sem skapaði þessa styttu úr Bjørn Nørgaard í Bjørn Nør
regaard.
fyrir neðan hverja frétt á mbl. eru tenglar á borð "prenta frétt", "blogga frétt" og "senda frétt". ég held að það þyrfti að bæta þar við "leiðrétta frétt", því fólkinu sem skrifar fréttinar á síðuna er bara ekki nógu vel treystandi. það er kannski á svona lágum launum eða undir miklu álagi?
eru þetta ekki allt laganemar annars?







myndir teknar héð
an. á sömu síðu er listi yfir svívirðingar sem litla haffrúin hefur mátt þola í gegnum tíðina.












reyndar er nýja lúkkið á fréttablaðinu á visir.is bara ótrúlega flott, miðað við að þetta er Vísir - nú er spennandi að sjá hvort þeir taki ekki veftívíið í gegn, það er eitthvert mesta rusl sem maður hefur komist í kynni við, ég man ekki hvenær ég gat síðast horft á fréttir 365 miðla í gegnum netið. annað en rúv, sem stendur alltaf fyrir sínu, og skjár einn stendur sig m.a.s. betur en vísir.
þeir sem stjórna vísi eru nefnilega ótrúlega slungnir í að breyta öllu sem þeir snerta í hrossatað. hvort sem það eru vefblöðin (sem maður hefur aldrei getað dánlódað beint, eins og mogganum, heldur þarf að skoða í vafra), bloggsíður (fólk.is var fyrst, síðan keyptu þeir blog.central af Edda og gjörsamlega drápu stærsta blogkerfi landsins með auglýsingum og fleiru) eða sjónvarp í gegnum netið.



**********hægri kratar og öfgafólk ýmiskonar:
ótrúlega gaman að sjá að Kletturinn er endanlega kominn út úr skápnum sem dyggur sjálfstæðismaður, og jafnframt að hann er réttu megin skynsemismarka innan ungliðahreyfingar flokksins.
skemmtilegt líka hversu margir laganemar eru með honum Árna í því að reyna að tryggja flokknum farsæla framtíð, greinilega gott fólk sem stundar lögfræðinám, sem vill bæta hag landsins.

ég vil lýsa eftir því að UVG taki núverandi stjórn Heimdallar sér til fyrirmyndar og reyni að stýra VG í meiri skynsemisátt.
ég skil vel að menn geti verið ungir vinstri grænir, því hugmyndin er ágæt. en að kjósa þessa rugluðu dalla sem sitja á þingi fyrir flokkinn hef ég aldrei getað skilið. ég þoli bara ekki menn sem eru með svona "tunnel vision", að vera algerlega á móti öllum iðnaði sem gefur frá sér einhverja mengun, öllu raski á náttúrunni, allri einkavæðingu, öllum her o.s.frv. finnst mér svo ægilega heimskuleg. ekki láta svona menn (takk f. linkinn ÞHG) eyðileggja framtíð þessarar hreyfingar.

við í þögla meirihlutanum erum búnir að fá okkur fullsadda af öfgamönnum beggja megin borðsins, sem öskra og öskra eins hátt og þeir geta. þeir eiga rétt á því að hafa geðveikar skoðanir, en leiðinlegt er þegar þeir láta eins og þær séu samhljóma skoðunum okkar í þögla meirihlutanum.