ad bad
Já. Fínt. En mér finnst lélegt að þeir geti ekki hreinsað alla tappana, sígarettustubbana og drukknuðu sígaunastelpurnar sem liggja og fljóta út um allt.
Haraldur
HaraldurS [] gmai1 punktur com
miðvikudagspósturinn að þessu sinni, sem er frá meðvituðum samstarfsmanni, fær mann til að þakka fyrir það sem maður á.
myndaserían er upprunin af heimasíðu TIME.
What is eaten in one week:
Take a good look at the family size and diet of each country, and the availability and cost of what is eaten in one week.
1 - Germany: The Melander family of Bargteheide
Food expenditure for one week: 375.39 Euros or $500.07*
(* evran er hér 1,33 dollari, í dag er hún 1,54)
kallinn er assgoti góður í bjórnum, svo drekka þau rauðvínsflösku á dag, sem er til fyrirmyndar. spurning með allan þennan djús, mjólkina og kolrýrða vatnið ...)
2 - United States: The Revis family of North Carolina
Food expenditure for one week $341.98 
3 - Japan: The Ukita family of Kodaira City
Food expenditure for one week: 37,699 Yen or $317.25
4 - Italy: The Manzo family of Sicily
Food expenditure for one week: 214.36 Euros or $260.11 
5 - Great Britain: The Bainton family of Cllingbourne Ducis
Food expenditure for one week: 155.54 British Pounds or $253.15
6 - Kuwait: The Al Haggan family of Kuwait City
Food expenditure for one week: 63.63 dinar or $221.45
7 - Mexico: The Casales family of Cuernavaca
Food expenditure for one week: 1,862.78 Mexican Pesos or $189.09 
8 - United States: The Caven family of California
Food expenditure for one week: $159.18
9 - China: The Dong family of Beijing
Food expenditure for one week: 1,233.76 Yuan or $155.06
10 - Poland: The Sobczynscy family of Konstancin-Jeziorna
Food expenditure for one week: 582.48 Zlotys or $151.27 
11 - Egypt: The Ahmed family of Cairo
Food expenditure for one week: 387.85 Egyptian Pounds or $68.53
12 - Mongolia: The Batsuuri family of Ulaanbaatar
Food expenditure for one week: 41,985.85 togrogs or $40.02
13 - Ecuador: The Ayme family of Tingo
Food expenditure for one week: $31.55 
14 - Bhutan: The Namgay family of Shingkhey Village
Food expenditure for one week: 224.93 ngultrum or $5.03 
15 - Chad: The Aboubakar family of Breidjing Camp*
Food expenditure for one week: 685 CFA Francs or $1.23
(skv. Wikipediíu er Breidjing Camp: a refugee camp in Chad created in May 2004 for Sudanese refugees from Darfur.)
á Vísindavefnum var í gær svarað spurningu um fæðingarþunglyndi.
í svarinu er greint á milli þrenns konar fæðingarraskana og sagt frá helstu einkennum þeirra:
i) Sængurkvennagrátur - óútreiknanlegar skapsveiflur, önuglyndi, grátköst, almennur kvíði og truflanir á svefni og matarlyst.
ii) Fæðingarþunglyndi - áhugaleysi, þreyta og sektarkennd.
iii) Fæðingarsturlun - eirðarleysi, önuglyndi og svefntruflanir.
ég spyr nú bara hver hefur ekki verið fæðingarsturlaður?
fyrirsögnin á þessari frétt mbl.is var miklu fyndnari fyrst þegar hún var birt:
hún er reyndar enn vitlaus, segir þjóðréttarlega í stað þjóðaréttarlega.
það er ekki við starfsfólkið að sakast, heldur lúsarlaunin sem þetta fremur auðvelda starf borgar - betra fólk mun fást til starfans nú þegar bankarnir eru hættir að ráða.
skrifaði
Halli
kl.
14:44
0
blabla
Merkimiðar: fólk, fréttamiðlar, rembingur
ég er að drusla mér í gegnum 90 bls. word-skjal, hið fyrsta af þremur af þremur sem frændi minn sendi ættingjum sínum um Elínu ljósmóður langömmu og Þórð múrarameistara langafa.
ég er búinn að flýtilesa niður að bls. 68, og þetta er mest um eitthvert svart-hvítt sveitafólk sem ég finn enga tengingu við eða áhuga á.
ég er kominn að "Mynd 98 - Síldarnámskeið á Ísafirði", hún er frábær.
þetta verður örugglega skemmtilegt þegar ég er orðinn 142 ára, en fyrir óþrítugan er þetta alveg bleh (geisladiskur með þessum hafsjó af upplýsingum var búinn til eftir að upp komst að "barnabarn Elínar vissi ekki hver Elín ljósmóðir var").
jú, það er auðvitað ein og ein frásögn sem stökkva manni bros:
Mamma [ömmubróður míns] talaði um að kóngsi hafi komið 1907 og alltaf þegar hún var að strauja söng hún gamanvísu sem ort hafði verið við komu hans til Seyðisfjarðar. Ég man bara viðlagið, það var svona „Kónginum vantar, kónginum vantar, kónginum vantar kopp“.
***
einnig tengt forsetakosningunum - and-femínisti og hæstaréttarlögmaður taka höndum saman í þessu póstkorti gegn Ástþóri 2000:
hluta af mér langar reyndar soldið til að sjá Leoncie og Ástþór saman í Bessastaðahúsinu, en hinn hlutinn fær netta klígju af tilhugsuninni.
skrifaði
Halli
kl.
01:12
0
blabla
Merkimiðar: femínistar, fólk, fréttamiðlar, ljótt og bannað, rembingur
einhverra hluta vegna birtu allir fréttamiðlar eftirminnilegar tilvitnanir eftir þá sem voru í efstu sætunum - ég geri nú ráð fyrir því að fleira hafi verið tínt til þegar hnyttni manna var mæld.
skv. könnuninni er röðun efstu manna svona -Britain's top ten wits (ég fór á stúfana og fann fleiri og betri tilvitnanir en gefnar voru í greininni):
1 Oscar Wilde: "Work is the curse of the drinking classes."
"I am not young enough to know everything."
"Experience is the name everyone gives to their mistakes."
2 Spike Milligan: "A sure cure for seasickness is to sit under a tree."
"All I ask is the chance to prove that money can't make me happy."
eftirskrifin á legsteininum hans: "I told you I was ill."
3 Stephen Fry: "I think animal testing is cruel. They get nervous and get all the answers wrong."
"An original idea. That can't be too hard. The library must be full of them."
4 Jeremy Clarkson: "Speed has never killed anyone, suddenly becoming stationary… That's what gets you,"
5 Sir Winston Churchill: (Accused of being drunk by the MP Bessie Braddock) "Madam, you are ugly. And I shall be sober in the morning."
"History will be kind to me for I intend to write it."
"I am prepared to meet my Maker. Whether my Maker is prepared for the great ordeal of meeting me is another matter."
6 Paul Merton: "My school days were the happiest of my life: which should give you some indication of the misery I've endured over the past twenty five years."
"You can always tell a man by the way he drinks his tea. A man who drinks with the handle facing towards him is necessarily a Liberal. A man who drinks without a cup is obviously mad!"
7 Noel Coward: "Wit ought to be a glorious treat like caviar. Never spread it about like marmalade."
"I have a memory like an elephant. In fact, elephants often consult me."
8 William Shakespeare: "Being born is like being kidnapped. And then sold into slavery."
"Women speak two languages - one of which is verbal. "
9 Brian Clough (Nott. Forr. stjóri): "Don't send me flowers when I'm dead. If you like me, send them while I'm alive. "
"Beckham? His wife can't sing and his barber can't cut hair.'"
10 Liam Gallagher: "She can't even chew gum and walk in a straight line, let alone write a book." (on Victoria Beckham)
"I was walking along and this chair came flying past me, and another,and another, and I thought, man, is this gonna be a good night."
í dag var það Metz, klukkutíma í burtu.
það var skref 2 í því að reyna að sættast við íbúa Frakklands, það fyrsta var eiginlega stigið við það að koma hingað til Lúx, því hér talar hver maður og hundurinn hans frönsku.
borgin kom ágætlega á óvart - þótt þar hafi verið lítið að sjá nema verzlunargötur og frakkar, og þessi venjulega íburðarmikla kirkja sem allsstaðar er að finna.
margir af þeim sem ég talaði við voru hins vegar mjög almennilegir - ýmist sættu sig við frönskubullið mitt, eða áttuðu sig á því að ég væri þýskur(!) (ein kona hélt reyndar að við værum englendingar og fannst það alveg rosalegt).
í gangi var fést de la Octobre í Metz, einhvers konar bjórdrykkjuhátíð. á dauða mínum átti ég von, en ekki því að drekka eins líters bjór í stóru bjórdrykkju-tónleikatjaldi í Frakklandi.
ég varð svolítið hugfanginn af skyndibitamenningunni þarna. fyrir utan öll paníníin og bagúettin, má helst nefna O'kebab - kebab McD's style, og ítalskan stað sem seldi þessa fínu pastarétti, ódýrt, snyrtilegt og fljótlegt í litlum boxum.
ég væri alveg til í að geta keypt mér kebab á jafnódýru verði og á jafn snyrtilegan hátt og McDonalds (þá er ég að tala um útlenskt McD's verð) og snögglegan 3 fromage pastarétt eftir djammið á Íslandi.
***
síðasta helgi tókum við dag í Trier - elstu borg Þýskalands, þar sem stór hluti vinnandi manna í Lúx býr (restin verslar í matinn þar - korter í burtu).
þýskarar eru alltaf elskulegir, brosa og segja tsjúts, drekka ekki bjór úr litlum glösum, og eru ekki jafn mikið fyrir málalengingar og kurteisishjal og frakkarar. ahh, gaman að alhæfa.
semsagt, lífleg borg með ágætlega fallegum húsum og tiltölulega rólegum þjóðverjum (ekki of svissneskir).
annars erum við búin að fá fleiri heimsóknir hingað en maður átti von á. hingað flykkjast gamlir Erasmusfélagar úr Tékklandinu (heilir tveir hingað til) og auk þess hafa hingað komið 3 íslenskir októberfestarar úr lagadeildinni og ein uppkomin bankalögfræðigella, í bankalögfræðiferð.
***
það sem ég mun seint jafna mig á er þessi helvítis lokunartími á öllu í Evrópu. á morgun verður ekkert opið.
Lilja keypti hins vegar krossjant í niðursuðudós sem maður getur bakað sjálfur, 6 stk. á € 2,2.
sunnudeginum bjargað! 
Heilablóðfall: ÞRJÚ atriði (eða þar um bil)
Hvernig þekkir maður heilablóðfall (án þess að sjá inn í heilann á fólki eins og á þessari mynd)
Vinkona einhvers einhversstaðar sem var að fá heilablóðfall hrasaði við og datt. Hún sannfærði viðstadda um að það væri allt í lagi með sig, hún hefði bara hrasað út af nýju skónum sínum. Síðar um kvöldið hringdi eiginmaður hennar og sagði að hún hefði látist og dánarorsökin væri heilablóðfall (ekki sáttur). Hefðu þeir sem voru með henni þekkt einkenni heilablóðfalls þá hefði kannski verið hægt að bjarga henni.
(Ef þú trúir ekki þessari sögu þá eru miklar líkur á að þú verðir étinn af ljóni eða annars konar ljósu kattardýri.)
Heilablóðfall dregur suma til dauða en lamar aðra. Taugasérfræðingur ku geta snúið við afleiðingum heilablóðfalls ef hann fær sjúklinginn nógu fljótt, galdurinn sé að greina blóðfallið og koma sjúklingnum á sjúkrahús innan þriggja klukkustunda.
HVERNIG HÆGT ER AÐ ÞEKKJA HEILABLÓÐFALL – ca. þrjú mikilvæg atriði sem gott er að miða við:
1. Biddu viðkomandi að BROSA.
2. Biddu manneskjuna að TALA, SEGJA EINFALDA SETNINGU Í SAMHENGI (sólin skín í dag en í gær var rigning)
3. Biddu hana að LYFTA BÁÐUM HANDLEGGJUM UPP.
[Ath.: enn eitt merkið um heilablóðfall: Biddu viðkomandi að reka út úr sér tunguna og ef hún (tungan) er bogin til annarrar hliðarinnar getur það líka verið merki um heilablóðfall.]
Ef viðkomandi á í vandræðum með eitt eða fleiri af þessum fyrirmælum hringdu þá í 112 og lýstu einkennunum.
skrifaði
Halli
kl.
14:35
1 blabla
Merkimiðar: fólk, Landlæknir, smásögur
kannski Egill Helgason?
þetta var altént á þeim árum er hann drakk bjór í stykkjatali og angraði okkur hin á Austurvelli.
Egill hélt eflaust þá eins og nú að miðbærinn væri upphaf og endir alls og að þeir og það sem hann skildi ekki væri bara afbrigðilegt. Íslendingar væru einstakur hópur, sem kynni ekki að drekka eða gera neitt, og hann væri einn þeira. hann er það ekki lengur heldur hangir á hóteli innanum hina plebbana London og heldur að hann sé sérstakur.
gaman væri að vita hvort barnið, sem nú er 12 ára, gangi enn um án þess að vita deili á líffræðilegum föður sínum? ... eins og Egill gengur um glórulaus, en það er annað mál. vei okkur að vera að fara að borga nefskatt til að púkka upp á þennan smásálarrúnkara.
Lilja Sól says:
til að hressa þig við http://www.youtube.com/watch?v=RzkEsSHOxQU
(The funniest videoclips)
... svona myndbönd minna mig alltaf á Americas funniest heimavídjó, sem aftur minnir mig á Bob Saget, sem minnir mig á The Aristocrats. sjúkur skítur.
í nótt dreymdi mig að ég væri í einhverri endurmenntun, ásamt stofnanda reglugerð.is.
samkvæmt samtali mínu við hann byrjaði þetta bara sem áhugamál hjá honum og félaga hans, á simnet.is/reglugerdir.
þeir væru nú forstöðumenn hinnar miklu stofnunar reglugerð.is, en hann þyrfti að ná sér í menntun sem hæfði titlinum.
það versta við drauminn var þó þessi mikla gleði sem helltist yfir mig þegar maðurinn tjáði mér að til stæði að gera stórtækar endurbætur á reglugerð.is, setja þangað inn auglýsingar og reglur, umburðarbréf og almennilegar reglugerðir með breytingum.
nú væri gott að hafa eitthvað stórt og viðamikið verkefni fyrir höndum, til að dreifa huganum frá lögfræðum.
mæli með textanum við lagið "Thou Shalt always Kill" með dan le sac VS scroobius pip:
Thall shalt not stop liking a band just because they’ve become popular.
Thou shalt not question Stephen Fry.
Thou shalt not judge a book by it’s cover.
Thou shalt not judge Lethal Weapon by Danny Glover.
Thou shalt not use poetry, art or music to get into girls’ pants. Use it to get into their heads.
Thou shalt not put musicians and recording artists on ridiculous pedestals no matter how great they are or were.
The Beatles - Were just a band.
Led Zepplin - Just a band.
The Sex Pistols - Just a band.
The Clash - Just a band.
Crass - Just a band.
The Cure - Just a band.
The Smiths - Just a band.
Nirvana - Just a band.
The Pixies - Just a band.
Oasis - Just a band.
Radiohead - Just a band.
Bloc Party - Just a band.
The Arctic Monkeys - Just a band.
The next big thing - JUST A BAND.
það er erfitt að harma júróvísjón árangur Íslands. svolítið eins og íþróttir fatlaðra -> ótrúlega gaman hjá keppendunum örugglega, en þeir eru samt þroskaheftir flestir (sumir eru reyndar bara að feika það) og manni er nokk sama hver vinnur.
ég er aftur á móti hægt og hægt að taka Frakkland í sátt. tungumálið þ.e.a.s., ekki fólkið almennt eða menninguna. aftur, svolítið eins og fatlaðir -> alveg krúttlegir og þeir gera sitt besta, en eru samt yfirhöfuð greindarskertir (ekki illa meint gagnvart fötluðum, margir minna bestu vina eru fávitar!).
enska með franskri röddu er nefnilega svolítið flott. verst hversu fáir frakkar geta talað hana. nýja uppáhalds 'get real' /' ég er bara svona', útúrsjúskaða sækó franska söngkonan mín er sú sem fer fyrir Soko.
það sem verra er - ég er líka að fíla svolítið þessa Kelis með lagið hennar lil'star:
There is nothing special about mehún er ekta svona sæt pródúseruð dúkka, fjöldaframleidd og fljótframreidd, mmm.. eins og tyggjó með kóla-bragði.
I am just a little star
If it seems like I'm shining it's probably
It's probably a reflection of something you already are
skrifaði
Halli
kl.
22:22
0
blabla
Merkimiðar: fólk, happy talk, tónlist
ég er með auðvelda lausn á ótta S-Kóreumanna eftir skotárásina: segjast bara vera frá N-Kóreu.
sjálfur segist ég reglulega vera frá Svíþjóð eða Færeyjum. þó kemur oftar fyrir að ég þurfi að taka fyrir að vera frá Svíþjóð.
reyndar má ætla að N-Kóreumenn hafi drepið fleiri kana heldur en nágrannar þeirra fyrir sunnan, en það er nú flestum gleymt væntanlega. S-Kórea er annars þekkt fyrir mjög nýjungagjarnt gamalt fólk.
Síðast uppfært: 18.04.2007 09:08Árásin í BNA: S-Kóreumenn óttast andúð
skv. fréttinni óttast sumir að S-Kóreumenn kunni "að verða litnir hornauga í Bandaríkjunum og jafnvel verða fyrir árásum eftir að upplýst var að árásarmaðurinn var af suður kóreskum ættum."

alveg er ég áhyggjulaus yfir fegurðarsamkeppnum. ég hef jafn gaman af fegurð kvenna og næsti maður. ég er líka áhugamaður um fallega myndlist og byggingar, skemmtilegar bíómyndir og bækur.
ef fólk hefur þörf á því að láta horfa á sig eins og hvern annan sýningargrip, má það gera það.
stelpurnar sem taka þátt í þessu fá hins vegar ekki háa einkunn frá mér fyrir gáfnafar. ég veit það best sjálfur að gaman er að vera fallegur, og enn skemmtilegra að sýna öðrum það. en að þurfa að fara í keppni við aðrar manneskjur til þess að fá viðurkenningu á því - er ekki í lagi heima hjá fólki?
en, mér er sama hvaðan gott kemur. stelpur sem taka þátt í fegurðarsamkeppnum hafa væntanlega ekki vitsmunalegan þroska til að skemmast að neinu marki af þessu. kannski verst með ljósabekjaböðin - rosalega er þetta ristabrauðslúkk orðið þreytt.
ég vil þó viðra þá hugmynd að setja á fót keppni um flottasta rassinn. hún gæti jafnvel verið nafnlaus. keppendur gæti gengið um með poka á efri hluta líkamans og sýnt á sér afturendann í nær ósýnilegum þveng. ekkert áhugamála- og framtíðarplanayfirvarp, bara hreint og beint hver er með mest aðlaðandi rass.
fyrst menn vilja hafa gripasýningar á mönnum, af hverju ekki að ganga alla leið?
Kylie þarf engar viðurkenningar á aldraðri fegurð sinni, en er óhrædd við að græða á henni með aðstoð H&M:
það er alveg ægilegt að sitja inni í þessu sumarveðri, börnin hlæja, fuglarnir syngja og kvenfólkið tekur út stuttu pilsin.
þá er gott að kæta sig með nokkrum bröndurum:
úr meintum slysaskýrslum eftir umferðaróhöpp:
The guy was all over the road. I had to swerve a number of times before I hit him.I. Tveir eigendur fyrirtækis í Austurríki kvörtuðu yfir meintu broti gegn 6. gr. sáttmálans (réttlát málsmeðferð), á þeim grundvelli m.a. að þeir hafi þurft að fá sér lögmann er þeir fóru með mál fyrir stjórnskipunardómstólinn í Austurríki, þeir hafi ekki fengið greiddan málskostnað þar og meðferð málsins hafi dregist úr hófi.
ekkert að því, en síðan byrjar grínið:
II. Kærendurnir báru, auk ofangreinds, fyrir sig brot gegn:
- 3. gr. (bann við pyndingum), þar sem óréttlætið sem fólst í ofangreindu hafi verið svo mikið að jafna mætti því við pyndingar;
- 4. gr. (bann við nauðungarvinnu), þar sem þeir hafi neyðst til þess að fara með málið fyrir MDE;
- 8. gr. (friðhelgi einkalífs), þar sem vinna við málið hafi bitnað á einka- og fjölskyldulífi þeirra;
- 10. gr. (tjáningarfrelsi) og 11. gr. (félagafrelsi), þar sem kvöðin um að fá sér lögmann væri brot gegn frelsi þeirra til að safnast saman.