Hvað er að gerast:

Sýnir færslur með efnisorðinu jólin. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu jólin. Sýna allar færslur

sunnudagur, nóvember 16, 2008

á íslensku má alltaf finna svar

í tilefni af degi íslenskrar tungu, fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar.

þetta finnst mér vera hin íslenska jólaauglýsing, sýning hennar og kóka-kóla auglýsingarinnar (I'd like to buy the world a Coke!) hringja inn sjónvarpsjólin.

Á íslensku má alltaf finna svar

Á íslensku má alltaf finna svar
og orða stórt og smátt sem er og var,
og hún á orð sem geyma gleði og sorg,
um gamalt líf og nýtt í sveit og borg.

Á vörum okkar verður tungan þjál,
þar vex og grær og dafnar okkar mál.
Að gæta hennar gildir hér og nú,
það gerir enginn nema ég og þú. 

Lag:  Atli Heimir Sveinsson, texti: Þórarinn Eldjárn

laugardagur, október 25, 2008

án gefins tilefnis:

miðvikudagur, október 01, 2008

hlakka alltaf svo til...

þessa dagana er hálf lamað fyrir fullorðið fólk að lifa í núinu.sjálfur hef ég brugðið á það ráð að hlakka til ýmissa hluta sem eru í vændum með betri tíð.

... hlakka til jólanna með því að syngja jólalög í hljóði og gleðjast yfir borgarljósunum á jólalegan hátt.
... hlakka til þess að 5. sería af Klóvn fari í loftið úti ... það eru ekki alltaf jólin en stundum Klóvn.

fimmtudagur, október 25, 2007

stöðvið sumartímann

það er þessi tími ársins, nú færist maður einum tíma nær íslenska klukkutalinu (bezt í heimi).

það er mjög viðeigandi, því fyrir um viku síðan skall veturinn á, alltíeinu (búmm!), og flöktir nú í 0-10°C.

held ég fagni með því með poka af Ungpigebryster:

fimmtudagur, janúar 04, 2007

heja heja

ferðin til Svíþjóðar heppnaðist jyttevel.

Skánverjar tala mun betri útgáfu af íslensku en K'hafnarbúar, og svo er að finna Subway í Malmö. ég er miklu mun hrifnari af Subway heldur en fallafel.
Steina vinkona tók á móti okkur í Ystad með glæsibrag og við skemmtum okkur vel við að skoða gömul sæt hús, Grábræðraklaustur (sbr. torg kennt við sömu bræður hér í K'ben) og líta í búðir. sáum þó ekki ströndina í Ystad, enda var ekki alveg veðrið til þess.

eftir 6 daga, 10. jan, verður haldið í vikuferð til Reykjavíkur - þangað hefur mig alltaf langað að koma.

***

sá í fréttum fyrir nokkru að Akureyrarbær hefur ákveðið að gera almenningssamgöngur fríar innan bæjarins.
mér finnst þetta yndisleg hugmynd. þetta var rætt í blöðunum hér í K'höfn fyrir nokkru, en snögglega komu upp gagnrýnisraddir, hvers handreipi var rannsókn sem benti til þess að slíkar aðgerðir hefðu m.a. þær afleiðingar að hjólreiðafólk hætti að nota hjólin sín, en minni áhrifa myndi gæta meðal þeirra sem kjósa að nota bílinn sinn.

á Íslandi hjólar auðvitað enginn, vegna veðurs og brösótts landslags. fólk sem myndi kjósa að nýta sér hjólhesta, væri landið flatt og veðrið þolanlegt, notar því einkabílinn.
í Rvk er risastór ónýttur markaður af fólki sem myndi leggja bílnum ef til væri raunverulegur valkostur. frír strætó í nokkur ár myndi leysa hænu/egg vandamálið (of fáir farþegar -> of fáar ferðir -> of fáir farþegar ...) og álagið á vegakerfið myndi snaaaarminnka.

ókeypis almenningssamgöngur fara líka einkar vel saman við hugmyndir mínar um lestarkerfi á allstór-höfuðborgarsvæðinu, með viðkomu í Herstöðvarbæ og á Leifsstöð.

***

mæli með snjómannagallerýi Kalvins og Hobbes, fyrir þá sem hafa góðan húmorkirtil.

fimmtudagur, desember 28, 2006

konungsbók, HumptyDumpty

var að klára lestur á Konungsbók e. Arnald Indriða.

bókin fannst mér mjög viðeigandi jólagjöf til mín, þar sem hún segir frá ungum og óreyndum íslenskum dreng sem fer til náms við Kaupmannahafnarháskóla og lendir þar í ýmsum ævintýrum. þessvegna sá ég mig fyrir mér sem aðalsögupersónuna, en drykkfelldur há- og grannvaxinn gráhærður prófessorinn með 3 daga skeggið birtist mér sem gamall H. Zimsen af einhverjum ástæðum.

Arnaldur gerir sér mat úr ýmsum pælingum í bókinni, t.d. þeirri hugmynd að íslenskir verkfræðingar hafi á árum áður viljað virkja landið eins og það leggur sig (einhverjir þeirra hafa eflaust viljað það), að nasistar hafi sótt mikinn innblástur í Íslendingasögurnar og að Köben hafi á árum áður verið undursamleg borg töfra og menningar fyrir sauðsvarta íslendinga.

það er sérstaklega gaman að lesa þessa bók hér í Mörkinni þar sem langstærstur hluti hennar gerist í miðborginni - aðalsöguhetjan býr ekki langt frá mér, sækir skóla á svipuðum slóðum, og sagan gerist að miklum hluta til á stöðum sem ég hef verið að lesa um og heimsækja að undanförnu, t.d. á Asíuplássi þaðan sem Gullfoss lagðist að bryggju, í mötuneyti háskólans sem nefnt var Kannibalinn, á bókasafninu þar sem Árnastofnun var o.s.frv.
ég gæti jafnvel trúað því að Arnaldur hafi notað bókina "Kaupmannahöfn - ekki bara strikið" við skriftirnar því margar frásagnirnar virðast beint upp úr henni (ég er einmitt að lesa hana núna). stakk mig svolítið þegar ein persónan sá sig knúna, þrátt fyrir naum fjárráð, til að taka leigubíl að skrifstofu í Kanúkastræti "ekki langt frá bókasafninu" frá Litla Apótekinu, sem er ca. 20 m frá bókasafninu. einhver er þar eitthvað að misskelja.

söguþráðurinn var e.t.v. aðeins of ótrúverðugur, en skemmtilegt að fylgja honum þrátt fyrir það. endirinn var eilítið klúðurslegur reyndar og aðeins of miklum hasar troðið í hann til þess að fá út "rétta" niðurstöðu á söguna.

[og allt þetta fjaðrafok út af þessari gömlu bók, hvers "óbærilegur léttleiki" getur leitt mann í sannleikann um "hvað bók er" - er það?]

***

næst er það The fourth bear, eftir Jasper Fforde - þar sem Sætabrauðsdrengurinn og HumptyDumpty koma m.a. við sögu.





***



"Því að eitt er að skrifa framúrstefnu eða „pastiche“ en sjálf yfirborðssagan, þrátt fyrir alla íróníska fjarlægð, verður líka að vera þannig að maður elti hana gegnum síðurnar. Og það er hún í þessari sögu, þó að það sé samræðan við hefðina sem víkkar merkinguna þannig að sagan er ekki aðeins léleg stæling."
rakst á þennan ritdómarbút á netinu, finnst hann svolítið óskiljan- og uppgerðarlegur, og ekki bara vegna þess að ég þurfti að fletta upp orðinu pastiche.


wikipedia:
a) Pastiche as hodge-podge
a work is called pastiche if it was cobbled together in imitation of several original works.


b) Pastiche as imitation
a literary technique employing a generally light-hearted tongue-in-cheek imitation of another's style; although jocular, it is usually respectful (as opposed to parody, which is not)


hverjum ætli hafi dottið í hug að þýða orðið pastiche sem framúrstefnu? eftir því sem ég fæ best séð er ekkert framúrstefnulegt við að skrifa í pastiche stíl. en hvað veit ég ...


[Lilja er að horfa á Friends og ég var að átta mig á því að ónefnd vinkona mín hefur hugsanlega nefnt barnið sitt eftir barninu hennar Rachel... pfft hahahoho]

mánudagur, desember 25, 2006

your own, personal ... havfrue

var plataður í Skt. Páls kirkjuna hér rétt hjá kl. 13 í dag, í messu hjá íslenska söfnuðinum hér. um 100 manns, flestir komnir á eða yfir besta aldur.

athöfnin var öll fremur leiðinleg og langdregin. formfestan svolítið að fara með prestinn, en kórinn stóð sig ágætlega, sérstaklega þegar smellirnir Í betlehem er barn oss fætt og Heims um ból voru sungnir.
öllu áhugaverðari var hjólatúrinn eftir Löngulínu eftir kirkju. við fundum loksins hina hafmeyjuna. hún er reyndar alveg örstutt frá okkur í Holsteinsgötunni.


sunnudagur, desember 24, 2006

hohoho

you better watch out - " Gonna find out who's naughty or nice "


mjúkir pakkar
the halogen-nosed reindeer

laugardagur, desember 23, 2006

how to care for a donkey?

á síðunni wikiHow má finna ýmsar gagnlegar leiðbeiningar - á borð við how to:
Get out of Quicksand,
Cheat a Polygraph Test
Be Photogenic
Sweep a Girl off Her Feet
Exercise an Open Mind


héðan er ekki mikið að frétta. danskur hamborgarahryggur, kartöflur og PallaPabbaWalddorfsalat í aðfangadagsmat á morgun. óska ykkur gleðilegra jóla.


þrátt fyrir fólksfjöldafælni og valkvíða tókst mér að kaupa þessar örfáu jólagjafir sem ég mun gefa. prinsippmál að klára það fyrir aðfangadag þótt þær verði ekki afhentar fyrr en 10. jan þegar ég sný aftur til rokafturenda norðursins (fyrir utan gjafir til foreldra, þær voru sendar með tengdasystursexpress).
hafði þann háttinn á við kaup á gjöfum að ég valdi eitthvað sem ég myndi vilja sjálfur, væri ég viðkomandi manneskja með öllum hennar kostum og göllum.


e.s. Lyngbær, skólabærinn hennar Lilju sem við heimsóttum í gær, er ekki the place to be.

fimmtudagur, desember 21, 2006

ekta elefant

fyndin auglýsing frá VR þar sem Eirik Sördal fer með leiksigur í hlutverki áhyggjufulla unnustans.

***

í dag var túrhestast meira - en fyrst gáfum við svönunum við Söen. þurftum reyndar að játa okkur sigruð fyrir mávageri sem gerði atlögu að maísbrauðinu sem ég hélt á. Gísli Marteinn, ef þú lest þetta þá mættirðu kíkja hingað með haglarann.

fórum leið hanans úr bók Guðlaugs Arasonar - "Kaupmannahöfn, ekki bara strikið" - bókin fæst m.a. í Magasin fyrir þá sem vilja.
  • Borgardómur - með lögum skal land byggja,
  • latínuhverfið - þar sem við íslendingarnir gengum menntaveginn liðna mánuði,
  • Strikið - þar sem við sáum 2 indverska fíla (sjá myndir), kom svosem ekkert á óvart,
  • Skítastræti sem nú heitir Krystalstræti því þar rennur ekki lengur saur um göturennurnar,
  • Nörregade, þar sem bakarinn bjó og bakaði kringler og julekage,
  • Háskólabókasafnið í Den Indre By, þar sem enn eru geymdar lögfræði- og hagfræðiskruddur (sjá mynd) - las þar örlítið í vetur en mun væntanlega festa rætur á einu borðanna á næstu önn.
  • Ísraelsplads, þar sem var grænmetismarkaður þar til "Pakistanar og Tyrkir yfirtóku grænmetissöluna með öllum sínum sváverslunum" svo vitnað sé í Guðlaug. þarna var reyndar enn grænmetis- og ávaxtamarkaður þannig að hryðjuverkamennirnir hafa ekki sigrað enn,
  • Sænska hverfið sem var álíka skemmtilegt og Svíþjóð - þar sáum við m.a. stærsta hólinn í Austurbrú (sjá dökka mynd)






"If you see someone without a smile, give them one of yours." 

föstudagur, desember 08, 2006

there won't be snow in Africa this christmas time ...

... og ekki heldur hér í Evrópu.


blessuð rigningin ætlar ekki að breytast í snjó. það er þó snjór í Tívolí, þaðan sem þessi mynd er tekin.





þessi færsla er aðallega til að síðasta blogg blasi ekki við fólki þegar það slysast hingað inn, enda er hún ósmekkleg með eindæmum.
hér er mynd af skyri.dk - það er verra en íslenskt skyr.

jólapróf áðan, meðaleinkunn - grét aðeins inní mér því ég var farinn að halda að ég væri svo klár. neibb, minn innri meðalmaður er greinilega enn öflugur - vildi bara að ég hefði eytt minni tíma í að læra fyrir það ... dúdúdú
fyrsti tyrkneski neminn sem komið hefur í skiptinám hingað við deildina var felldur í prófinu. menn eru vanalega ekki felldir í svona Erasmus nema málefnaleg ástæða sé fyrir hendi, t.d. ef menn svindla, kunna ekkkkkert, eða eru frá Tyrklandi. æ hún er frekar heimsk greyið - og talaði svo lélega ensku að við héldum að hún væri Frakki. hún tók þessu með miklu jafnaðargeði - ég var eiginlega leiðari yfir þessu en hún - en ég er hræddur um að hún hafi bara ekki fattað þetta.

við skötuhjúin verðum túristar hér yfir hátíðarnar - munum vera í hygge. ég kem heim 10. jan og fer aftur út stuttu seinna. ritgerðarsmíð í Danmörku ... mmm ...

prufaði að drekka aðeins af koníakinu sem Hrannar gaf mér hér um árið fyrir prófið áðan, en það virkaði ekki. þannig að fyrir næsta próf: læra lítið, drekka ennþá minna, hlakka til prófloka.



jólaOratoría Kaupmannahafnadeildar verður haldin 19. des. á NASA - þó ekki við Austurvöll heldur í litlum hafnarbæ kendum við Kaup.
hver kemur með?




Muscatel hvítvín frá Ungverjalandi er einkar milt fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í drykkju. það mætti fást á Íslandi. mætti líka fást í Danmörku.
ég á eina flösku eftir frá Tékklandsförinni í október - verð greinilega að fara þangað aftur.

fimmtudagur, nóvember 23, 2006

ad detta i drykk

tetta byrjadi vodalega saklaust. var maettur um trjuleytid i gaer til ad laera. gekk ovart framhja kaffistofunni og tar var i gangi "kvedjuathofn" fyrir okkur skiptinemana - i bodi var raudvin og megasvalir lagadeildarbolir.

eitt raudvinsglas leiddi af odru, og tegar Asgeir birtist a lesstofunni neyddumst vid til ad fa okkur kinverskt hladbord, og fylgja tvi svo eftir med ferd a Studenthuset, tar sem bjorinn var ymist billegur eda gefins.
komumst ad tvi ad hinir skiptinemarnir eru sumir agaetir, flestir to bara vitleysingar.

Geiri var ad fara ad hitta gaur. seinna kom i ljos ad gaurinn var vidskiptajofurinn Hordur, fyrrverandi verzlobrodir ur 3. bekk B.
tad var ekki haegt ad hanga a Studenthuset an tessa ad bleyta sig adeins innvortis, og tad var ekki haegt ad hitta Hodda an tess ad prufukeyra nokkra Mojhito.


tetta hafdi taer afleidingar ad mer lidur ekkert alltof vel i dag. uti var hellidemba tegar eg vaknadi, og eg akvad tvi ad sitja vedrid af mer.

for af stad tegar rigningunni hafdi sluttad, en ta hafdi henni ekkert sluttad. tad var tvi blautur og leidur ungur madur sem fekk ser saeti a lesstofunni a 1. sal um 3 leytid i dag, las eina leidinlega grein um TV without frontier directive og sofnadi fram a bordid.

einbeitingin engin, folkid i kringum mig allt bjanar (danir og adrir nybuar), treyta og temmileg svartsyni a framtidina.

svoldid glaer, svoldid mikill kalhaus - en tetta reddast alveg.

þriðjudagur, nóvember 21, 2006

regnbylur

* það er allt á kafi hérna - í rigningu.

* enn er góður slatti af trjám sem ekki vill viðurkenna ósigur sinn gagnvart haustinu. það er reyndar komið þannig veður núna að hægt er að kæla bjórinn út'á svölum.
* þarf að prufa þetta tyrkjakóla sem Magga sagði mér að fengist á betri kebabstöðum.

***
jólin mín byrja ekki í desember, með fullri virðingu fyrir vælukjóunum sem sett hafa upp þennan bjánalega borða á bloggið sitt. dönsk jól virðast reyndar vera látlausari en þau íslensku - kannski meira verið að fagna fæðingu frelsarans hér en heima.
***

stúlkurnar hérna á lesstofunni eru furðu huggulegar margar hverjar. Geiri var að segja mér að þær stunduðu margar fylgdarþjónustu til að halda uppi háum lífsstandard lagastúdína - ég er ekki frá því að þær séu hér bæði í lærdómi og atvinnuleit.

miðvikudagur, október 04, 2006

happy talk keep talkin' happy talk

ég er með þetta happy talk á heilanum, og sé alltaf fyrir mér stjórnmálagaurinn að syngja þetta fyrir víetnamana á tjaldstæðinu í Nýtt Líf.

***
ég stoppaði aðeins á leiðinni í skólann í morgun og færði mig út í kant og þegar ég leit upp sá ég hana Evu, sem margir kannast við úr lögbergi, hjóla framhjá.
heimilisfangið er á bloggsíðunni hennar (sem ég uppgvötaði í dag) og við búum í svona 50 sekúndna fjarlægð frá hvort öðru, og hjólum greinilega bæði Classensgade og meðfram Søen þegar við förum dáwntán.

***

jólatónlist finnst mér leiðinleg í kringum jólin, en skemmtileg á sumrin, sérstaklega í ágúst. sama með jóla-erótík, það er gaman að henni á öllum öðrum tímum en jólunum.