Hvað er að gerast:

þriðjudagur, nóvember 28, 2006

óbærilegt hversdagsleysi próftíðar

þegar maður les undir próf þá gerist ekki margt áhugavert á meðan. þessvegna er nauðsynlegt að detta í drykk, eða í mat eins og ég lenti í áðan - æðislegt að vera rifinn úr dómi læris yfir í kássu.

ég fékk einu sinni að sjá hjá fyrrum rekstraraðila central.is hvernig traffík á bloggsíðum eykst rooohoosalega þegar líður að prófum. það er einfaldlega vegna þess að allt verður athyglisvert og skemmtilegt þegar maður er límdur við bækurnar.

í dag í Júrahúsinu:

- bananar sem hafa fengið að sitja of lengi geta farið að gerjast - það sveif á mig af bananaáti í dag.

- gamall grískur (?) maður sem situr oft á lesstofunni en horfir aðallega út í loftið. fer stundum í tölvustofuna og það kemur fyrir að konan hans sé með honum og þau tala og tala á grísku (?). mig grunar ekki gvend.

- hommalegi (metro?) gæjinn sem er alltaf að líta til mín. hvað á maður að gera - líta illilega á hann? heldur hann þá að ég sé að spila hard tú get? taka með sér klámblöð í skólann? óþægilegt!
... Gústi? (ekki orð frá þér Hrannar!)


súrleikinn að éta mann:
* peanut butter? penisbutter and jelly (hoho fyndið);
* the death row phenomenom? something like a phenomonem ...
* ban against torture? turtles! teenage mutant ninja torture! (vissuði að það kæmi Turtles mynd í mars? trailer)

- símafyrirtækið mitt (Sonofone - so-no-fón-4-u) rukkar mig fyrir að hringja þótt það svari ekki! þarf að betala fyrir 30 sek. símtal án þess að segja stakt orð!
svo ég tali ekki um þessa konu sem segir: dú har nú minna en fimm og túve króner tilbage på din kontor áður en símtalið byrjar - so what? f**in bids.

- hér er hjólaljósaskylda frá 16:00-7:49, sharp! ekkert múður. ég er með drulluflott hjólaljós - ætli það sé jólahjól, damm damm damm?

- jafnvel ruslpóstshólfið mitt er áhugavert þessa dagana. það hefur lengi verið í kringum 700 stk. (póstar eldri en 30 dagar eyðast sjálfkrafa) - en jólaspamið er komið upp í 1302 and counting. það eru 43 á dag! æðislegt!.
verst að þetta er mestallt sama draslið, og mér langar ekki í neitt af því, og þó:
Don't let your partner leave you because of being unhappy with the duration of your acts. She won't want to get out of your bedroom, hoping other girls don't find out about you.



það er alltaf eitt hvað að gerast
- tengdó nýfarin - tívolí, tívolílílí (ágætt)
- mamm'og pabbi koma á morgun í 2 nætur - maður reynir að finna tíma til að gera e-ð skemmtilegt með þeim.
- systir mín kom líka líka um daginn, gleymdi að þakka heimsóknina.
- mér skilst það sé brauðrist á leiðinni... mmm brauðrist.


ps. það er hér með staðfest, það er til heimilistækjaklám: kynlíf með brauðrist (varúð, myndin inniheldur typpi).

Engin ummæli: