Hvað er að gerast:

laugardagur, september 30, 2006

"that women have smaller brain then men"

yndislega fyndinn þessi Borat, sjá myndir og vídeo hjá Sky. Kazakhstan er svolítið stórt land! samkvæmt andrésar andarblöðunum sem ég las í æsku eru grannríki þess Úzbékistan, Fjarzkistan og Langtíburtistan. 2 myndir:









***
annars var ég að bæta mér á facebook, sem er svona myspace fyrir fullorðna. ég hlýt að vera orðinn rosalega mikið gamalmenni því mér hefur alltaf fundist útlit og innihald myspace vera svakalega gelgjulegt. "takk fyrir addið 'skan ú'rt svo æðisler hehe"
á facebook er hægt að hlaða inn ógrynni af myndum, komast í samband við fólk og allt það blabla. það er að mér skilst gert fyrir háskólafólk, og ég held maður þurfi háskólaaddressu til að skrá sig inn á þetta og sjá aðra. voða sniðugt allt. íslensku háskólarnir eru nýkomnir inná síðuna.

***
deiglu/auðvalds Ásgeir er verðugur fulltrúi "hins háskólans" í Rvk hér í kóngsins KU, og hann býður senn í innflutningspartý. skál/prost/nazdraví fyrir því!

föstudagur, september 29, 2006

stúbbid Dato

sá þessa ýkt fyndnu mynd í fríblaði Berlinske, Dato. drasl blaðið er ekki á netinu og ég get því ekki deilt henni með ykkur :::edit 1. okt., Lilja lagði til að ég tæki bara mynd af henni, vesgú::

myndin sem er eftir Annette Carlsen sýnir 3 stalla. á þeim fyrsta er höfuðið af Jesú Kristi, á næsta er höfuðuð af Búdda og á þeim þriða: Andrés Önd. svaka flott mynd með blóði lekandi niður frá höfðunum.
standandi við stallana er kona sem er að segja við mann sem er djúpt hugsi: "Kunne vi gøre sådan? - så er der da ingen der kan blive sure"

Anette teiknaði þessa mynd þegar Múhammeðsmálið stóð sem hæst:

fimmtudagur, september 28, 2006

Sabrina Harman


















alltaf leiðinlegt þegar ungt fallegt fólk fremur siðlaus og andstyggilegt verk (ég veit, maður á ekki að hugsa svona..).

þetta eru að vísu frekar gamlar fréttir sem ég er að fjalla um, en myndir af Sabrinu byrjuðu að poppa upp þegar ég googlaði 'palestinian hanging', sem er pyntingaraðferð sem Tyrkland var dæmt fyrir af ECHR 1997, og maðurinn í pokanum á einni myndinni dó af 2003, nokkrum klst. eftir að hann hafði verið handtekinn í Írak.

hún vann á Papa John's Pizza áður en sveitin hennar var send til Írak, og sagðist við réttarhöldin sín ekki hafa vitað að það væru 'reglur um meðhöndlun fanga'!
hún mun hafa verið ein af vingjarnlegustu lögreglumönnunum í Abu Ghraib fangelsinu, 'eins og systir manns þótt hún hafi verið hvít kona' er haft eftir einum fanganna.
með svona svakalega hryllilega vondan húmor og vantar virðingu fyrir öðrum manneskjum (pabbi hennar er svona CSI-coroner gæi eða hvað það er kallað). hún fékk 6 mánaða fangelsi fyrir fávitaskapinn.

miðvikudagur, september 27, 2006

marzenia

prufaði áðan að slá inn "draumar" inn í Google-myndaleit, á nokkrum tungumálum











: )


það er víst búið að "krakka" brosið á Mónu Lísu (Móna er víst stytting á orðinu madonna = mæ leidí)
stúlkan var semsagt ófrísk eða nýbúin að fæða. hver man ekki eftir glottinu á Dezu og Valborgu um og eftir fæðingu litlu krúsímýslnanna þeirra. eða Einari þegar hann varð "karl ekki einsamall", og Jóa þegar hann varð ekki tvísamall?
ég þykist líka vita að ónefnd stúlka gangi nú um ganga Lb með þetta sama glott ^_^

frétt BBC hér. frétt með auka-info um Mónu hér.

mánudagur, september 25, 2006

Wilkes, og Magnús og Eyjólfur

nokkur spakmæli sem ég hef verið að skoða (hvað er best af þessu?):

mér finnst að leggja ætti niður Lýðheilsustöð, og leyfa ætti bjór í matvörubúðum:
Think for yourself, and let others enjoy the privilege of doing so too. Voltaire.

mín reynsla líka (my expíríens exekly):
Good judgement comes from experience, and experience - well, that comes from poor judgement. A. A. Milne.

ofsatrúarmenn, róttæklingar, (*hóst* fólk sem enn reynir að hindra Kárahnjúkastíflu*hóst*), fólk allra lengst til hægri/vinstri í stjórnmálum:
The whole problem with the world is that fools and fanatics are always so certain of themselves, and wiser people so full of doubts. Bertrand Russell.

og síðasta línan, eftir mann, sem sumir segja að hafi verið einn þeirra sem lagði grunninn að tjáningarfrelsinu sem við njótum í dag, en hann t.d. las þetta upp í House of Lords - lífið sjálft(?):
...life can little more supply than just a few good fucks, and then we die. John Wilkes.

þegar Jarlinn af Samloku (Earl of Sandwich) sagði við Wilkes að hann myndi deyja annaðhvort í snörunni eða úr sárasótt, svaraði kallinn að bragði: That depends on whether I embrace your lordship’s principles or your mistress.













*************

Magnús og Eyjólfur, úr skaupinu '85 (takk f. nöfnin Hrannar), er ekki hægt að gefa út svona best-of með þeim?

aahhh, hausinn


radikale venstre (vinstri grænir?), sem hafa rúm 9% þingsæta á Fólksþinginu voru að leggja það til að tekin verði upp skylda til að vera með hjálm. vilja þeir að byrjað verði á 0-15 ára hjólreiðamönnum, og svo séð til.
ég er svosem jafn hrifinn af forsjárhyggju og næsti maður, en gangi þetta í gegn hjá R þá er ég þeirrar skoðunar að þetta ætti ekki að gilda um fólk eldra en 12 ára. ef maður er að hjóla mjög hratt þá auðvitað fær maður sér hjálm, en við sem dúllumst bara áfram á hjólreiðastígunum erum ekki á slíkri ferð að þetta geri nokkuð gagn - jafnvel þótt við lendum á bíl (eins og einn ónefndur skiptinemi í lagadeildinni komst að raun um)

reyndar las ég um daginn að ef maður keyrir á götunni með hjálm, keyri bílar 8,5 cm nær manni heldur en ef maður er hjálmlaus. líklega eitthvað í undirmeðvitundinni hjá ökumönnum - á sama hátt og maður keyrir varlegar þegar maður keyrir framhjá barni eða gamalmenni á hjóli heldur en ef um frískan ungan mann er að ræða.










náði í dag í sjónvarpskortið - gat leyst það út á pósthúsinu þótt á miðanum sem ég fékk heim stæði H. Steinersson. sá á pakkanum að tölvan sem prentaði miðann hafði ekki skilið skrítnu stafina 'þó' og nafnið á pakkanum var þessvegna 'Haraldur Stein rsson'. nokkuð rökrétt hjá þeim sem skrifaði miðann heim til mín að þarna vantaði 'e' á milli.
lofaði nú ekki góðu þegar ég byrjaði að horfa á TVið áðan, að é gat valið milli BeverlyHills, tónlistarmyndbanda og umræðuþáttar um ástandið í miðausturlöndum. en nú var friends að byrja, vúhú!

er búinn að horfa á hinar tvær dönsku myndirnar sem ég keypti nýverið, ad klappe med een hand (sem ég hélt semsagt að væri sænsk út af þessu 'een') og lad de små börn.
:: sú fyrri er einkar skemmtileg og fyndin, og ég komst líka að því að ég get klappað með einni! mjög gott þegar maður er með drykk í annarri og þarf að klappa fyrir e-u.
:: sú seinni var obboslega átakanleg öll, mikið grátið og mikil geðveila! slatti af eldra fólki að stunda kynlíf, ekta danskt - reyndar bara mjög ósmekkleg kynlífssena í lokin, þar sem fólkið grét á meðan .. segi ekki meira .. bæði í þeirri mynd og fyrstu myndinni sem ég horfði á, Rembrandt, lék hinn frægi Sören Pilmark - greinilega Ingvar E. Sigurðsson þeirra (okkar?) dana.


en jæja, Dharma og Greg er að byrja, best að fara að glápa! pa

sunnudagur, september 24, 2006

Björgólfur, ertu að lesa þetta?

ef ég ætti nokkra milljarða sem ég vissi ekki hvað ég ætti að gera við, myndi ég gefa landinu mínu segullestarkerfi, sem myndi ganga frá Vatnsmýrinni til Keflavíkurflugvallar, með viðkomu í Breiðholti, Garðabæ, Hafnarfirði og Keflavík, að ógleymdri nýju byggðinni á Miðnesheiði (þar sem ég væri alveg til í að búa eftir að búið er að losa svæðið við flesta kakkalakkana).





svipað og A.P. Møller og Chastine Mc-Kinney Møller sjóðurinn gerðu, þegar þeir gáfu dönum óperuhúsið fræga

ég veit að ég er ekki eini áhugamaðurinn um lestarsamgöngur á Íslandi.

frægasta fatlaða rokkstjarnan, fötluð smáauglýsing

má til að deila með ykkur laginu "what a waste" eftir Ian Dury, þann mikla snilling sem gaf upp öndina um aldamótin síðustu.

:::::þessi dreifing á höfundarréttarvörðu efni er í kynningarskyni og í anda markmiðs höfundaréttarlaga, þ.e. að stuðla að menningarstarfsemi og listsköpun, með því að kynna þá sem hingað villast fyrir lítt þekktum og illfáanlegum lögum manns sem þrátt fyrir að hafa verið með mænusótt/lömunarveiki lagði mikið af mörkum til rokkheimsins:::::::::

smá trivia af wikipediu:
His 1981 song "Spasticus Autisticus," intended to mark the International Year of the Disabled, was banned by the BBC despite having been written by a disabled person. The lyrics were uncompromising:

So place your hard-earned peanuts in my tin
And thank the Creator you're not in the state I'm in
So long have I been languished on the shelf
I must give all proceedings to myself

fleiri frí lög eftir Durarann hér; lög og myndbönd hér og kallinn er líka á youtube - þar má m.a. finna 2 frægustu lögin hans sex and drugs and rock and roll og hit me with your rythm stick, auk áðurnefnds spasstikus autistikus.

*************
mikil snilld þessi hrekkur Leibbans - smáauglýsing í fréttablaðinu:
18. September
Tek að mér ýmiskonar smáaðgerðir t.d draga endajaxla, fjarlægja hálskirtla og fjarlægja tvíburabróðir. Er með ágætis aðstöðu. Upplýsingar gefur Helgi Valberg í síma 895 8479
sagt er að jafnvel Landlæknir hafi fallið fyrir þessu djóki! fjarlægja tvíburabróður? haha ... kannski takmarkað fyndið fyrir Valberginnahh?

laugardagur, september 23, 2006

ridin' nerdy



rosa skemmtilegt nýja myndbandið með Weird Al, White & Nerdy, þar sem gert er grín að geingster laginu 'ridin' dirty'.