árekstrar rekast á
þetta hefur verið rosalegt:
Vísir, 01. feb. 2008 08:43
Þriggja og sex bíla árekstur rákust á í Ártúnsbrekku
Haraldur
HaraldurS [] gmai1 punktur com
þetta hefur verið rosalegt:
Vísir, 01. feb. 2008 08:43
Þriggja og sex bíla árekstur rákust á í Ártúnsbrekku
skrifaði
Halli
kl.
09:24
0
blabla
Merkimiðar: fréttamiðlar
obbosí, ung kona klædd í skólapils ... nú er fjandinn laus.
siðvandir kvarta hástöfum yfir skólastúlkuauglýsingu, flugfreyjur yfir auglýsingum með fáklæddum starfssystrum og Sarkozý nú yfir mynd af sér og betri helmingnum.
PR-gaurinn hjá þessu flugfélagi hlýtur að hlæja alla leið í bankann yfir þessu, ef einhver vissi ekki hvað RyanAir væri, eða var búinn að gleyma félaginu, þá er þetta leiðin til að lagfæra það.
skrifaði
Halli
kl.
09:09
0
blabla
Merkimiðar: auglýsingar, flug
Matstofa Kópavogs sér um matseldina á mínum vinnustað.
það er í sjálfur sér ekkert svo slæmt, þótt ég hafi oftar fengið mér skinkusamloku þar heldur en matinn sem borinn er fram.
nema hvað að það er hrossakjöt í matinn í dag, annan fimmtudaginn í röð (síðast var folalda'snilli').
það er í sjálfu sér ekkert svo slæmt, þótt það hljóti að teljast aðför að þeim kristnu gildum sem þjóðfélagið byggir á að borða svona kasmagn af hrossum.
nema hvað það er alltof kalt til þess að sækja mat út fyrir vinnustaðinn, og ég er kominn með þvílíka leið á skinkusamlokum.
í dag fór ég í prufutíma í Kuggi (Nautilus) - og ég get svo sem ekki kvartað.
miðaldra konan í afgreiðslunni í Sundlaug Kópavogs var reyndar ekkert vingjarnleg, þótt ég hafi brosað mínu krúttlegasta og látið vel í ljós hversu áttavilltur og grunlaus ég var um húsakynnin og það sem ég var að fara út í.
karlaklefann fann ég nokkuð auðveldlega niðri í kjallara, enda húsakynnin ekki mjög stór. klefinn er þröngur og alveg við hliðina á sturtunum þar sem miðaldra karlar földu sprellann á sér með varadekkinu.
búningsaðstaðan var svolítið eins og afgreiðslukonan, fín til síns brúks og látlaus, gleðivana en lífseig og ekkert bráðnauðsynlegt að skipta út fyrir eitthvað flottara.í æfingasalnum, sem e.t.v. nær 100 fm, var nokkuð um manninn en þó engin bið eftir tækjum. salurinn er í kjallara og sjónvörp fyrir framan 'upphitunartækin' svokölluðu.
á móti mér tók vinalegur starfsmaður sem útbjó staðlað æfingaprógramm með 9 tækjum - kenndi mér á þau og skráði fyrir mig hvaða stærðir og þyngdir væru góðar fyrir mig að byrja á.
þetta tók fljótt af en skildi mig eftir vel móðann og áreyndann. þá var ekki annað eftir en að fara í sturtu þar sem ég reyndi að nota aukakílóin til að fela sprellann fyrir þeim sem voru að skipta um föt við hliðina.
ég er kannski spéhræddur...
þegar á heildina er litið fannst mér aðstaðan vera eins og í lítilli sundlaug úti á landi - og fólkið líka. enda er skólasundkrökkunum og heitapottsliðinu att saman við þá sem nota líkamsræktina í skiptiaðstöðunni, allir í mikilli nánd við hvern annan, í aðstöðu sem verður að teljast hrörleg en þó boðleg.
ég fékk ekki á tilfinninguna að neinn vildi vera þarna - svolítið eins og í skólasundi í gamla daga.
ég komst ekki í mjög mikla stemmningu yfir staðnum, en var þó alls ekki ósáttur við neitt eitt - heldur ekkert über-sáttur við neitt, en gæjinn sem sýndi mér á tækin var nettur á því.
þá er bara spurning hvort maður eigi að asnast til þess að kaupa vikupassa í plebbapleisinu WC, til að prufa. þar er líka boðið upp á alls kyns sprikltíma sem "Hentra öllum aldurshópum" - kannski það hentri á mig.
mest kitlar þó nýja stöðin í Kópavogi, sem verður á 15. hæð og "með fullkomnustu tækjasal", hún er svo nálægt - opnun hennar hefur verið frestað til 11. feb.
ég held að það gæti verið skemmtilegra að horfa yfir höfuðborgarsvæðið úr aðstöðinni þar en að reyna að finna sætar stelpur til að góna á í kjallara Sundlaugar Kópavogs.
skrifaði
Halli
kl.
21:00
0
blabla
Merkimiðar: blóðsugur, líkamsrækt
ég var að hugsa um að hætta með þágufallssýkina (þgf.fjörið eins og ég kalla það) og taka upp flámæli.
"Það meiga aller heyra er samþekkja mett líflát að jég ir saklaus maðör, rangliga til döjða dæmdör af óréttvisöm dómara ir ikki gitur forsvarað verk sett ferir göðs hátegnarhásæte sim við mönöm báðer koma fram ferir, annar ferr en annar seinna, og mön okkar öppskera þá næsta mjög ólik virða."
(svo mælti Valtýr á grænni treyju)
skrifaði
Halli
kl.
10:03
0
blabla
Merkimiðar: happy talk, stuð
ég hef ekki hugmynd um hvað verið er að reyna að selja mér í bréfunum sem streyma í tilboðshólfið í tölvupóstinum mínum.
en úr þeim ég tíndi saman þetta nýtísku ljóð:
Women laugh at you...
Solve this problem now
dont lose your girls.
Dont warry man.
Everything can happen.
A breakthrough in herbal Science, N o Exe \rcises
Strong man power. Prepare for winter!
At present it is your turn to change your sexual life.
Amazing, PERMANENT RESULTS that will last.Great device has much more advantages,
always wanted a simple, safe solution.
The world is mine
when they see my crazy sized little brother in my pants
... and to think I did it in just weeks.
Don't get hard without it.
Live it up by making a monster in your pants
Thanks
Jennifer Anniston
skrifaði
Halli
kl.
08:39
0
blabla
Merkimiðar: auglýsingar, ljóð, netið
á Vísindavefnum var í gær svarað spurningu um fæðingarþunglyndi.
í svarinu er greint á milli þrenns konar fæðingarraskana og sagt frá helstu einkennum þeirra:
i) Sængurkvennagrátur - óútreiknanlegar skapsveiflur, önuglyndi, grátköst, almennur kvíði og truflanir á svefni og matarlyst.
ii) Fæðingarþunglyndi - áhugaleysi, þreyta og sektarkennd.
iii) Fæðingarsturlun - eirðarleysi, önuglyndi og svefntruflanir.
ég spyr nú bara hver hefur ekki verið fæðingarsturlaður?
nú eru bráðum 10 ár síðan ég hætti að æfa fótbolta með Víking, 6 ár síðan ég hætti í framhaldsskólaleikfimi, 3 ár síðan ég og hundurinn fórum síðast út að hlaupa og 1 ár frá því ég fór að taka eftir smávegis aukaþyngd um mig miðjan.á þessum tímamótum liggur fyrir manni að velja líkamsræktarstöð til þess að kaupa árskort hjá, stunda í mánuð eða svo og hætta svo fljótlega að hafa tíma til þess að fara í ræktina.
í nágrenni við mig eru tvær Nautilus stöðvar, í Sundlaug Kópavogs og í sundlauginni Versölum í Salahverfi - árskort hjá þeim kostar þessa dagana 28 þúsund kall.
í Kórahverfi er nýopnuð heilsuræktarstöðin H10, en hún er því miður aðeins úr leið, alveg lengst upp á Vatnsenda.
Sporthúsið er á Breiðablikssvæðinu, það fer misjöfnum sögum af því, en mér hefur sýnst það vera alveg ágætt - ég þarf að gera það upp við mig hvort það sé 45 þúsund króna virði að svitna þar.
11. febrúar opnar svo World Class nýja stöð á 15. hæði í Smárastórhýsinu, það er eiginlega næst mér ef frá er talin dekurstöðin MeccaSpa á Nýbýlavegi (79 þúsund fyrir að láta stjana við sig þar).
World Class er 'the place to be' skilst mér.
á dögunum fór ég í vettvangsferð í WC Laugum - þeir bjóða ekki upp á prufutíma og því lét ég mér nægja að kíkja inn í sal úr kaffiteríunni.
mér er alls ekki illa við að vera eins og maur í risasal eins og þar var, en lyktin sem var alltumlykjandi bæði í afgreiðslunni og kaffistofunni var hreinn viðbjóður, ég er ekki frá því að ég finni hana enn þegar ég loka nefinu.
þegar á allt er litið sé ég hreinlega ekki hvað maður fær aukalega fyrir þennan 55 þúsund kall sem kostar að vera óvirkur meðlimur í WC, er þessi augnskanni svona æðislegur? annars sýnist mér verðið á WC-kortum hafa komist næst því að vera mér boðlegt fyrir sex árum síðan, sjá verðþróun í WC:World Class rukkar mann um 1500 krónur fyrir að prófa pleisið, og þar með eru þeir búnir að stimpla sig úr leik hjá mér - það er prinsippmál að láta ekki gera sig svona að fífli, og skiptir þá engu hversu hipp og svalur staðurinn er.
skrifaði
Halli
kl.
18:14
1 blabla
Merkimiðar: draumar, líkamsrækt