Hvað er að gerast:

miðvikudagur, nóvember 22, 2006

fer að verða orðið gott


þá fer að líða að síðustu almennu prófunum í langan tíma.það er að sjálfsögðu regla í próftíð að kaffidrykkja eykst og klósettferðum fjölgar.(Díza á þó alltaf metið)muna:- hafa trú á sjálfum sér, en varast dramb,
- vera á tánum, en muna að slaka á á milli,

- sofa vel, en sofa ekki yfir sig,

- borða orkuríkan mat, þó ekki þannig að maður verði þreyttur,

- taka pásur, en gleyma sér ekki í þeim,- kynlíf,

- lesa hratt, en þó þannig að eitthvað sitji eftir,

- læra aðalatriðin, en passa að gera þó ekki aðalatriði úr aukaatriðum.
ég er að súrna - það hljóta að vera að koma próf.
- vera súr, en halda geðheilsunni.
(afsakið, þarf að bregða mér á klósettið)


***
enga semíta hér?!?
það eru ekkert alltof strangar reglur í Jurahuset, t.d. eru tölvurnar opnar öllum - þótt reyndar eigi maður að sýna skilríki ef maður er beðinn um það.

í UCLA er líka svona kortasystem, þar var maður, 23 ára Íransk-ættaður 4. árs heimspekistúdent, beðinn að fara af bókasafninu því hann var ekki með kortið á sér, og þegar hann var ekki nógu snöggur að koma sér burt, var hann teisaður með rafmagnssjokktæki 5 sinnum af campus-löggunni. myndbandið er á youtube.
ef ég ætti aukatekin orð þá væru þau: "hrottar, fávitar og wannabe-löggu-fífl!" - ég er ekki frá því að maður myndi vaða í svona glæpamenn ef maður yrði vitni að þessu.

þriðjudagur, nóvember 21, 2006

regnbylur

* það er allt á kafi hérna - í rigningu.

* enn er góður slatti af trjám sem ekki vill viðurkenna ósigur sinn gagnvart haustinu. það er reyndar komið þannig veður núna að hægt er að kæla bjórinn út'á svölum.
* þarf að prufa þetta tyrkjakóla sem Magga sagði mér að fengist á betri kebabstöðum.

***
jólin mín byrja ekki í desember, með fullri virðingu fyrir vælukjóunum sem sett hafa upp þennan bjánalega borða á bloggið sitt. dönsk jól virðast reyndar vera látlausari en þau íslensku - kannski meira verið að fagna fæðingu frelsarans hér en heima.
***

stúlkurnar hérna á lesstofunni eru furðu huggulegar margar hverjar. Geiri var að segja mér að þær stunduðu margar fylgdarþjónustu til að halda uppi háum lífsstandard lagastúdína - ég er ekki frá því að þær séu hér bæði í lærdómi og atvinnuleit.

mánudagur, nóvember 20, 2006

umferðarmenning og mystería

það blæs svolítið mikið þessa dagana -> sérstaklega er mótvindur á leiðinni í Júrahúsið (Júgurberg?) - sem er ágætt fyrir menn eins og mig sem vilja hafa hárið blásið.

ég hef lofað sjálfum mér því að nota helst ekki þetta okur-lestarkerfi nema til að ferðast með gestum og út á flugvöll. menn eru hér að spá í að gefa frítt í almenningssamgöngur á álagstímum, en ég verð líklega á bak og burt þegar það gengur í gegn.

samerðarmenn mínir í Kjöbén, ónefndir, hafa margir orðið fyrir hjólreiðarmenningarslysum - dottið á rassinn, rekist í bíla, flogið yfir bíla, keyrt aftan á bíla, látið stela af sér hnakk.
.. og í dag lenti ég í því!
ónýtu framljós-díóðunni var stolið af stýri hjólsins þar sem það lá í hlýrri hjólageymslu Júrahússins. ég var að vonast til að einhver myndi losa mig við hana - og hló á leiðinni heim við tilhugsunina um vonbrigðin og frústreringuna sem hljóta að hafa hellst yfir mannfýluna sem stal af mér.

***
rit-schnilld
annað markvert er að ég kláraði sæmilega ritgerð áðan í Media Law. gaf henni hið einfalda nafn "Public Interest" um afmarkaðar jákvæðar skyldur ríkisins þegar kemur að 8. gr. mse, með hliðsjón af rétti manna til að láta í ljós og móttaka skoðanir skv. 10. gr. sáttmálans. hún var 11.665 orð án bila, rétt slapp eftir mikinn niðurskurð.

næst? "Closed-shop agreements" í ECHR fyrir næsta þriðjudag - það verður sýnópsa ársins við 54. besta úniversitas heimsins. er kominn með 9.090 stafi og þarf því að skrifa mjööög varlega svo ég fari ekki yfir 11.700 stafa hámarkið og verði rekinn.

***

Mystery!
Árni - sem varð frægur vegna starfa sinna við Sigtið, Börn, Guy X og Voksne Mennesker, Hreinn - sem varð frægur að endemum fyrir Levi's auglýsinguna á Skólavörðustíg og Sigtið og Davíð - sem fékk Edduverðlaun í gær og rataði á söguspjöld fyrir The Last Winter og A Little Trip to Heaven hafa verið að "Biðja vegfarendur að mála ást" út um allan heim - sniðugt framtak.

sunnudagur, nóvember 19, 2006

"þessar" vampírur

"Fyrir tveimur dögum var hreytt í mig af manni úti á götu að ég væri blóðsuga, blóðsuga á íslensku hagkerfi. Ég spurði á móti hvernig í ósköpunum stæði á því. „Þið Pólverjarnir! Komið hingað til þess að vinna, græða smá monní, skapið vandræði, og hverfið svo aftur austur fyrir tjald. Þið eruð að ræna frá okkur peningunum!“"

- þetta segir " Vlad Tepes, doktor í bókmenntafræði og Múraðdáandi" í lesendabréfi á Murinn.is.

Vlad Tepes er fyrir þá sem ekki vita annað nafn á Drakúla!


... bréfið er annars fín lesning ...









Vlad Tepes var í 3. sæti fyrir VG í Kópavogi í bæjarstjórnarkosningunum 2006

laugardagur, nóvember 18, 2006

föstudagur, nóvember 17, 2006

skrifiskrif

I) flott hjá mér að koma í ECHR-tíma í morgun og vera sagt að það hafi verið auka tími í gær.
"The session on art. 11 and partly on art. 10 will be rescheduled together with the class on Thursday and will be held asap."

- þetta skildum við íslendingarnir (nema einn) sem svo að
a) tími um 10. og 11. gr.,
b) ásamt tímanum sem vera átti á fimmtudegi
=> yrðu settir á dagskrá síðar, og það asap!

en neiiii...
bara 10. og 11. gr. tíminn verður seinna, tíminn á fimmtudegi var óhreyfður.
ég segi nú bara eins og Vala: stúbbid f*'in bel^^bean!

II) seinna um daginn mætti ég í tíma í MediaLaw og var þá minntur á að skila ætti blessaðri synopsisinni 21. nóv, ekki 27. eins og mig hafði minnt.

en varðandi þessar blessuðu sínópsur hér við deildina, þá er engin lin-kind sýnd...



úr leiðbeiningum f. synopsis við lagadeild KÚ:

Sub-clause 4: According to the Curriculum clause 20, sub-clause 2, no. 3, a written synopsis cannot exceed more than:

1 (one) student: Maximum 11.700 characters (space bar not included)
[...]

Sub-clause 5: If the mentioned page maximum exceeds the given curriculum standards for a written thesis and written papers presented as substitution for part of an examination, the Law School Administration may turn down the paper[!!!]. Furthermore, the examiner may turn down the student from the oral examination if the synopsis exceeds the given standards.


ps. fínt veður hérna í Evrópu, 11°C, aðeins farið að hausta ... vona að það sé jafngott veður heima. ^-^ djók!

fimmtudagur, nóvember 16, 2006

vandi hinna Nordurlandatjodanna


... holdi klaeddur:

tad vantar folk i byggingaridnadinn her i DK og Ministeriet for Flygtninge, Indvandrere og Integration er asamt Dansk Byggeri ad fara af stad med HERFERD til ad fa fleiri danska nybua til ad stela vinnu fra lötum dönum.

Byggeriet mangler arbejdskraft. Samtidig har mange unge med anden etnisk baggrund end dansk svært ved at få fodfæste på det danske arbejdsmarked. Derfor samarbejder Integrationsministeriet og Dansk Byggeri om en kampagne, der skal lokke flere unge til byggebranchen.

tad vantar spytur og tad vantar søg .. tad vantar polverja og fjørug løg (myndin er af polskum tjod-dönsurum)

olifnadur?

"...i sambandi vid afengisneyslu, djamm og olifnad annan."
er afengisneysla og djamm flokkad sem olifnadur nu til dags?


(kaera fyrir sidanefnd Haskolans a Bifrost)

þriðjudagur, nóvember 14, 2006

norskur húmor

hahh! fyrirsögnin er auðvitað háfyndin þversögn.

en hér eru 2 vídjó þar sem þeir a.m.k. reyna:

a) norðmenn (Uti vår hage) að gera grín að dönsku:


b) fleiri norðmenn, að gera grín að múslimum (það má er þaggi?)

sumt fólk!

mér finnst:

... að allir ættu að nálgast snilldarþáttinn Sigtið annaðhvort á skjarinn.is eða podcast.is (fyrsti þátturinn er reyndar horfinn af skjarinn.is og podcast.is vill ekki virka í Firefox og getur því átt sig).

... að menn ættu að taka eftir því hverjir eru a) aðaltökumaður og b) aðstoðartökumaður í Sigtinu. að öðrum þátttakendum í þáttunum ólöstuðum þá eru þetta bestu mennirnir þar - mjög góðir vinir mínir og stabílir gæjar. þeir heita líka bara 2 nöfnum.

... eitthvað stabílt og traustvekjandi við það að heita bara 2 nöfnum. sjáið bara allt fólkið sem heitir 3 nöfnum: Georg W., Magnús Þór, Davíð Þór, Jón Ásgeir, Jón Steinar, Kim Jong-il.

... Davíð Þór radíusbró, sem er rísandi stjarna á internetinu (veii), minna mig á blöndu af eldri útgáfu af Sindra Eldon og Frímanni Gunnarssyni (úr sigtinu) -semsagt brekka full manvits.

... SigmarG nettur, en sennilega bara vegna þess að hann var svalur með Þossa á X-inu einu sinni. líka af því hann hjólar.

... athyglisvert að bera saman bút úr lagi Frankie goes to Hollywood frá 1983, Relax, sem var bannað á BBC um tíma* og bút úr laginu Hit me with your rythm stick e. Ian Dury frá 1979:
Scheme those schemes /// Hit me with your rhythm stick
Got to hit me (hit me) /// Hit me, hit me
Hit me (hit me) /// Hit me with your rhythm stick
Hit me with those laser beams /// Hit me, hit me, hit me

sjáum hversu fljótt tæknin breytist, eina stundina er það stuðpinni og þá næstu leysergeysli. ætli það væri ekki megabiti í dag.


* "Relax, don't do it, when you want to suck it to it, Relax don't do it, when you want to come."