norskur húmor
hahh! fyrirsögnin er auðvitað háfyndin þversögn.
en hér eru 2 vídjó þar sem þeir a.m.k. reyna:
a) norðmenn (Uti vår hage) að gera grín að dönsku:
b) fleiri norðmenn, að gera grín að múslimum (það má er þaggi?)
Haraldur
HaraldurS [] gmai1 punktur com
hahh! fyrirsögnin er auðvitað háfyndin þversögn.
en hér eru 2 vídjó þar sem þeir a.m.k. reyna:
a) norðmenn (Uti vår hage) að gera grín að dönsku:
b) fleiri norðmenn, að gera grín að múslimum (það má er þaggi?)
skrifaði
Halli
kl.
22:40
0
blabla
Merkimiðar: happy talk
mér finnst:
... að allir ættu að nálgast snilldarþáttinn Sigtið annaðhvort á skjarinn.is eða podcast.is (fyrsti þátturinn er reyndar horfinn af skjarinn.is og podcast.is vill ekki virka í Firefox og getur því átt sig).
... að menn ættu að taka eftir því hverjir eru a) aðaltökumaður og b) aðstoðartökumaður í Sigtinu. að öðrum þátttakendum í þáttunum ólöstuðum þá eru þetta bestu mennirnir þar - mjög góðir vinir mínir og stabílir gæjar. þeir heita líka bara 2 nöfnum.
... eitthvað stabílt og traustvekjandi við það að heita bara 2 nöfnum. sjáið bara allt fólkið sem heitir 3 nöfnum: Georg W., Magnús Þór, Davíð Þór, Jón Ásgeir, Jón Steinar, Kim Jong-il.
... Davíð Þór radíusbró, sem er rísandi stjarna á internetinu (veii), minna mig á blöndu af eldri útgáfu af Sindra Eldon og Frímanni Gunnarssyni (úr sigtinu) -semsagt brekka full manvits.
... SigmarG nettur, en sennilega bara vegna þess að hann var svalur með Þossa á X-inu einu sinni. líka af því hann hjólar.
... athyglisvert að bera saman bút úr lagi Frankie goes to Hollywood frá 1983, Relax, sem var bannað á BBC um tíma* og bút úr laginu Hit me with your rythm stick e. Ian Dury frá 1979:
Scheme those schemes /// Hit me with your rhythm stick
Got to hit me (hit me) /// Hit me, hit me
Hit me (hit me) /// Hit me with your rhythm stick
Hit me with those laser beams /// Hit me, hit me, hit me
sjáum hversu fljótt tæknin breytist, eina stundina er það stuðpinni og þá næstu leysergeysli. ætli það væri ekki megabiti í dag.
... óóó óó ... stelpur dansa ...
það er búið að því. andfættir vísindamenn hafa fundið upp bol sem gerir loftgítaristum kleyft að spila alvöru músík sjá frétt.
í hvorri ermi er nemi sem nemur og túlkar hreyfingar lúftgítaristans - strengirnir eru valdir með annarri á meðan maður lemur á þá með hinni. tölva tekur svo við sendingum frá nemunum þráðlaust og spilar tónlistina sem ma'r býr til.
gagngerður tengill á sýningarmyndbandið.
***
svartagullið frá Carlsberg er hreint ágætur! 5,8% og lüftgítarinn því skemur undan en með venjulegum bjór. [með rámri röddu:] jóóóla-hvað?
***
Rún og Hrannar hafa verið hér í heimsókn og við höfum náð að mála lítinn part af Khöfn rauðan, hvítan og bláan. veðrið er að vísu búið að vera kalt, vindasamt og með skúrum á milli, en það er e.t.v. ekkert til að skammast sín yfir, ef þessi mynd af Vísi.is af íslenska nóvemberveðrinu er eitthvað til að dæma eftir.
bjórdrykkja hefur verið nokkur og við skötuhjúin erum búin að fara með þeim skötuhjúunum á 2 afbragðs veitingastaði, Spiseloppen (stolt Stínu) og Peder Oxe í miðbænum. jólabjórs-, hvítvíns-, rauðvíns- og fjallagrasaáfengis-legin helgi, og er það vel.
þau hafa verið að þræða söfn og sögufræga staði bæjarins á daginn, á meðan undirritaður hefur hangið heima mestmegnis og þóst verið að skrifa ritgerð í ECHR - þetta verður grundvallaryfirlit yfir eitt af mest spennandi álitaefnum mannréttindaréttar, á 5-7 bls.!
annars virðist öruggt að við Lilja komum ekki heim um jólin, heldur kíkjum í staðinn í heimsókn á Klakann um eða eftir áramót. auk dansks jólamatar og undirbúning lokaritgerðarskrifa sé ég fyrr mér að við látum verða af því að skoða þessa blessuðu borg almennilega og kíkjum kannski yfir sundið til Svíþjóðar. það verður áhugavert að sjá hvort við ráðum við að halda jólin alein í úglandinu.

hvad sem lidur edlilegum umraedum um innflytjendamal, ta er Magnus Ras og fylgismenn fullir af fordomum og heimsku.
og tad er mikill sannleikur i tessum pistli: \Tu veist ad tu ert rasisti tegar ...\
skrifaði
Halli
kl.
14:33
0
blabla
Merkimiðar: andrés önd
átak í gangi gegn vændi - Köben gegn hórdómi [linkur dauður, hér er afrit].
1 af hverju 7 dönum hefur e-tíman borgað fyrir kynlíf, annar hver þeirra (1 af 14) er í sambúð / giftur.
nú á semsagt að höfða til okkar karlmannanna með auglýsingum líkt og þessari. það á að eyða hugmynd hins danska húsföðurs um hamingjusömu hóruna.
ég veit ekki, þarf meðalgóð vændiskona að taka svo marga á dag? ekki myndi ég gera það - tæki tvær í mesta lagi og myndi rukka um 40-70K á skiptið.
Hrannar og Rún koma á morgun í heimsókn og ég hafði nú hugsað mér að fara með þau á hóruhús. ... eeen fyrst allir eru á móti þessu þá kannski læt ég það vera?
hengjum'ann!1 af hverjum 5 dönum fylgjandi dauðarefsingum - las ég áðan í MetroX. flottir!
en svo las ég áfram: týpískur fylgismaður dauðarefsinga er meðlimur í Fólkeparti (hvers ungliðar máluðu myndir af drekkandi kameldýrinu Múhammeð) og les Extra Bladet.
greinilega beittustu tólin í verkfræðikassa þjóðarinnar á ferð.
***
hjólamenning
það er byrjað aðeins að hausta hérna og blæs svolítið á hjólarúntinum. hárið á manni blásið sem aldrei fyrr.
í dag prufaði ég að fara í Jurahuset á læsestuen að læra. ef Lögberg væri í Köben þá væri risastór hjólageymsla þar sem bóksalan er - hjólamenning í stórborgum er svo krúttleg.
annars er bara tímaspursmál hvenær ég fer að fordæmi samferðarmanna minna frá Íslandi og lendi í hjólreiðarslysi.
***
hæst bylur í tómri tunnu sem pissar upp í vindinn
var að finna síðu með tilvitnunum og þvíumlíku (klikkið á random ef þið viljið leik'ykkur). hér eru nokkur slóvakísk orðtiltæki í gamni:
Bald man get head washed fast. Plešivému chytro hlavu umyješ.
No work - no cake. Bez práce nie sú koláče.
No use in urinating against the wind. Proti vetru sa močiť nedá.
One wiseman better than thousand morons. Jeden múdry lepší ako tisíc hlúpych.
Eyes don't see, hearts don't hurt. Čo oči nevidia, srdce nebolí.
Empty barrel rumbles the most. Prázdny sud najviac duní.
tek undir með mörgum öðrum á inter-netinu og segi: stöðvum frjálst flæði Magga rasista. fólk mun koma til Íslands á meðan vinnu er að fá fyrir það og það er gott, svo lengi sem enginn kemst upp með að svindla á fólkinu.
aftur á móti hef ég mikið á móti óupplýstum og fordómafullum lýðnum sem hópar sig í kringum manninn og flokkinn hans. svo virðist vera sem einhverjir þeirra kunni á tölvur og séu að tjá sig á blogsíðum, jafnvel undir nafni! þeir virðast flestir illa skrifandi og gengur illa að koma orði fyrir sig (sjá t.d. hér í kommentakerfi), vonandi eru þeir of heimskir/latir til að kjósa líka.
nei annars, öfgamenn hafa rétt á að vera hérna, jafnt Magnús sem trúaroftækismenn hverskonar. af hverju ætti t.d. klikkaður múslimaklerkur ekki að fá að bera út boðskap sinn hér á landi rétt eins og Gunnar í Krossinum? við þurfum bara að vernda annað fólk fyrir þeim!
Ísland fyrir fólk!
bækur fyrir "Frjálslynda" flokkinn!
fræðsluefni fyrir fábjána!
skrifaði
Halli
kl.
22:14
1 blabla
Merkimiðar: fólk, fréttamiðlar
hvað kóngulærnar gera þegar kólna fer. herinn sem gætt hefur litlu íbúðarinnar við Löngulínu er óðum að hverfa.
svo virðist sem kóngulær séu með kalt blóð í æðum, sumar þeirra deyja þegar hausta fer og skilja eggin sín eftir, aðrar ekki. þær sem ekki deyja búa oft um sig í litlu silkihreiðri í steina- eða laufblaðahrúgum.
ef ég væri örlítið gáfaðari myndi ég búa til kóngulóarstjórnunarbúnað sem myndi virka þannig að maður tekur venjulega kónguló og setur lítinn stjórnunarbúnað á hana - sem síðan er hægt að nota til að láta kóngulóna spinna vef á ákveðnum stöðum í kringum heimili manns og ekki annarsstaðar.
hohoho:
How does a man take a bubble bath? He eats beans for dinner.
What is a man's idea of foreplay? A half hour of begging.
What do men and beer bottles have in common? They are both empty from the neck up.
How is a man like linoleum? If you lay him right the first time, you can walk all over him for the next twenty years.
What do you call a woman who knows where her husband is every night? A widow.
Why does it take 1 million sperm cells to fertilize one egg? They won't stop to ask for directions.
En til að gæta jafnræðis - why men have all the luck:
1. A guy's butt is never a factor in a job interview.
2. A guy's orgasms are real. Always.
3. Wedding plans take care of themselves.
4. Chocolate is just another snack.
5. Foreplay is optional.
6. The world is his urinal.
7. Same work......more pay.
8. Wrinkles add character.
9. He doesn't have to leave the room to make emergency crotch adjustments.
10. Not liking a person does not preclude having great sex with them.
"A Space-Age Habitat For Antkind"
hversu svalt er þetta maurabú. en þarf ekki að gefa helvítunum að éta? gæti einhver spurt. nei nefnilega ekki, þeir borða bláa NASA-gelið og grafa göng um leið - kúl sjitt!
jule-tuborg kom í gær og hann er alltílagi. ekkert það spes samt, miðað við hæpið í kringum hann.
*********
stundum finnst mér að fáfræði, á borð við þá sem sumt fólkið sem kommentar hér býr yfir, ætti að vera refsiverð.
*********
þessum letilega laugardegi hefur verið varið í að horfa á sjónvarpsþætti á peekvid.com - er að reyna að komast í gegnum 2 seríur af meðalgóðu spennuþáttunum Supernatural, sem eru fullir af draugum og yfirnáttúrulegum illa innrættum fyrirbærum - bara of scary fyrir svona litla sál (t.d. var brjálaður hindúískur trúðakall í s2e2!). en ég fann ráð við þessu - that 70's show eru svo sætir að ég skipti bara yfir í þá þegar ég verð of tense. báðir þættirnir eiga það reyndar sammerkt að vera frekar slæmt sjónvarpsefni.
horfði reyndar líka á ScaryMovie4 á peekvid, hún vakti hjá mér vorkunn fyrir fólkinu sem borgað hefur pening fyrir að sjá hana, en samt ágætis valkostur við að sitja á stól og stara út í loftið.
þarf að fara að kaupa mér fleiri bækur ...