Hvað er að gerast:

fimmtudagur, maí 08, 2008

aldrei of mikill Halli

í "ástandinu" eins og það er kallað í dag er gjarnan talað með neikvæðum hætti um Halla.

þessvegna var ánægjulegt að lesa eftirfarandi línu á landbunadur.is:

"Halli á heilum gólfum eykur hreinlæti, ..."

reyndar sagði neðar á sömu síðu:
"Minnt skal á að gólf eiga ekki að vera með meiri halla en 6%."


þetta minnti mig á eftirfarandi orð Árna Johnsens úr ræðustól Alþingis:

"... sérfræðingar í kynlífsspeki á Íslandi höfðu forgang um að stýra skoðanakönnun hérlendis varðandi fjölda þeirra sem teldu sig vera kynvilltir. Þetta var 1.500 manna úrtak, þar sem 7% töldu sig haldna kynvillu. Það að mínu mati er innan eðlilegra skekkjumarka sem er í hverjum og einum manni"
ég held að 6% Halli sé á sama hátt hæfilegt magn fyrir hvern og einn.

(myndir af ja.is og keli.blog.is)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hallalaus fjárlög... gott? slæmt?

Halli sagði...

fer svolítið eftir því hvernig á það er litið ...

Marta Margr� sagði...

ha ha ha. Þú ert svo fyndinn.

Svona færslur og orðaleikir gleðja mitt gamla hjarta.

xxx

Marta