Hvað er að gerast:

fimmtudagur, júlí 31, 2008

þriðjudagur, júlí 29, 2008

svo ætla ég að sofa hjá þér

í Færeyjum hafa menn fundið þá eðlilegu skýringu á hinum mikla fjölda getnaða sem eiga sér stað á meðan á Ólafsvöku stendur (og þeirri sprengingu í barnsfæðingum sem verður 9 mánuðum seinna), að á hátíðinni gefist fólki einfaldlega tækifæri til þess að kynnast einstaklingum úr öðrum bæjarfélögum og velja út þá sem eru best fallnir til undaneldis.

þetta er ekkert annað en ómeðviðtuð viðleitni til þess að viðhalda heilbrigðum kynstofni - Íslendingar hafa stundað þetta um árhundruðir.

fimmtudagur, júlí 24, 2008

einmanna sirkússafn

Túren går til birti nýlega lista yfir óvinsælustu ferðamannastaði Danmerkur, fyrir þá sem vilja eyða frítima sínum í einsemd og sleppa við skarkalann í (hinum) túristunum.

meðal þeirra er Sirkússafnið í Kaupmannahöfn, en þangað lögðu rétt rúmlega 5.000 manns leið sína árið 2007 (samanborið við yfir 350.000 sem árlega heimsækja hið fræga Louisiana safn).safnið er í 10 km fjarlægð frá Hovedbanegård, framhjá Fiskitorvet og Valby, sjá kort.

það er alveg á hreinu hvert ég er að fara sunnudaginn 24. ágúst næstkomandi.

miðvikudagur, júlí 23, 2008

Cansei de Ser Sexy



lagið Alala með CSS.

ad bad

Já. Fínt. En mér finnst lélegt að þeir geti ekki hreinsað alla tappana, sígarettustubbana og drukknuðu sígaunastelpurnar sem liggja og fljóta út um allt.
Villhjálmur! Þú mátt ekki taka þetta upp. Þetta er ógeð!
(SF)

þriðjudagur, júlí 15, 2008

Óli á rós, Óli á rólu

6 eða 7 ára íslensk ritgerð sem nýlega fannst við tiltekt.
LIM LIM MAMMA SEJIR LIMLIM
HALLi se se HALLi
MAMMA seiir se se
ÓÓ MEiddir au ÞIG




25 ára franskur bjór, teiknaður af tölvu.


mánudagur, júlí 14, 2008

fail


fail: the state or condition of not meeting a desirable or intended objective - it may be viewed as the opposite of success.