Hvað er að gerast:

fimmtudagur, nóvember 02, 2006

umferðarmenn og annað fólk

held það yrði nokkuð áhrifaríkt að smíða nokkra svona umferðarkarla og setja þá upp við gangbrautir og umferðarljós. leiðbeiningar hér.

en auðvitað eru þetta ekki karlar, heldur menn. þetta eru kynlausir fullorðnir menn - hugsanlega blökkumenn - en blökkumenn sjást betur á ljósum grunni heldur en menn af öðrum kynþáttum.

ef breyta á einhverjum af þessum mönnum í kynverur þá verður að sjálfsögðu að gera þá að bæði konum og körlum. en hvernig? eru konur alltaf í pilsum og karlar alltaf með stutt hár? eru konur alltaf með stórar mjaðmir og búbbinga og karlar með skegg? hvaða skilaboð eru það til okkar að konur á skiltum séu alltaf í kjól og karlar stuttklipptir? væri þá ekki betra að skrifa bara "kona" undir kræna karlinn (manninn) og "karl" undir þann rauða, en halda kynlausu útliti þeirra?

það góða við þessa ísafoldar-hugmynd er að hún skapaði umræðu sem leitt hefur í ljós hversu brenglaða mynd af samfélaginu sumt fólk hefur. fyrir flestum eru þessar kynlausu verur, sem þó eru kallaðir karlar, eingöngu merki um rétta háttsemi við gönguljós og -brautir, en einhverjir virðast líta upp og sjá birtingarmynd hins "karllæga" þjóðfélags sem við búum í.

þetta er bara bull!
mér finnst svo ljótt þegar fólk þarf alltaf að setja upp kynjagleraugu vegna allra skapaðra hluta.
:: maður pissar á mann - skiptir ekki máli hvers kyns þessir menn eru, þetta eru bara vitleysingar með skrítnar hugmyndir í kollinum.
:: 20 manns bjóða sig fram í prófkjör og 50% þeirra eru kosnir af félagsmönnum - þetta eru 10 manns sem höfðu vilja til að bjóða sig fram og fólkinu sem kaus þá fannst þeir hafa eitthvað framyfir hina 10. það er hreinn hryllingur að skipta þeim í flokka eftir matarvenjum eða líkamsþyngd, kyni göngulagi eða hárvexti.

:: 100 manns læra hjúkrun, þar af útskrifast 70 sem hjúkrunarfræðingar. það þarf ekki og á ekki að halda aukanámskeið og kynningar fyrir örvhenta - "hjúkrunarskóli örvhentra", þótt hlutfall örvhentra hjúkrunarfræðinga endurspegli ekki hlutfall örvhentra í samfélaginu. með því er verið að segja að rétthentir hjúkrunarfræðingar beri ekki hag rétt- og örvhentra jafnt fyrir brjósti. þannig er illa vegið að rétthentum og fólk sem hugsar með þessum hætti ætti að mínu mati að hugsa sinn gang.


það er sjálfsagt mál að berjast gegn mismunun á grundvelli stærðar, litarháttar, kynhvata og þar frameftir. en það þýðir ekki að við þurfum að reyna að troða hlutföllum samfélagsins inn í alla kima þess.
"jafn réttur grænmetisætna til þingsetu",
"fleiri homma í körfuboltalandsliðið",
"kynjakvóta á starfsfólk ræstingarfyrirtækja",
"gyðingakvóta í félagsvísindadeild",
"fjölgum bindindismönnum í stjórnunarstöður fyrirtækja",
"réttum hlutföll fólk undir meðalhæð í læknanámi",
"fleiri karla í ritarastörf".

fyrir utan að það virðast bara vera sum störf og stöður sem eiga að vera skipuð jöfnum hlutföllum kynjanna, t.a.m. þingmennska, ráðherrastöður og sæti í stjórnum fyrirtækja. ekki störf í verksmiðjum, við aðhlynningu, atvinnubifreiðastjórnun eða símsvörun.
fólk agnúast ekki útí að fleiri karlar en konur vilji starfa við tölvur og pípu- og hellalagningar, og fleiri konur en karlar hafi áhuga á því að hanna föt og vera heimavinnandi. en guð hjálpi okkur ef einhver segði að færri konur en karlar hefðu áhuga á því að verða stjórnmálamenn eða stjórnendur. því það er afleiðing feðraveldisins og karllægra áhrifa!


ef ég væri með breiðar mjaðmir og í kjól, þá væri það ekki mér að kenna að ég hef ekki áhuga á frama í stjórnmálum. ef ég væri maður með brjóst og færi í prófkjör þá myndu sumir kalla það jafnrétti ef ég fengi brautargengi, en ójafnrétti myndi ég lúta í lægra haldi fyrir mönnum með typpi.
þetta viðhorf svo margra myndi naga mig ef ég væri kona í mjög mörgu af því sem ég gerði.
fékk ég þetta starf því yfirmaðurinn vill gæta kynjahlutfalla? er ég á þingi því flokkurinn minn hefur einsett sér að hafa alltaf jafnmarga af hvoru kyni á listunum sínum? er mér boðið í sjónvarpsviðtal vegna þess að þáttastjórnandinn hefur verið gagnrýndur fyrir að bjóða fáum konum?
hef ég eitthvað meira til brunns að bera en að hafa fæðst með pjöllu? ég væri ekki viss.

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

sá sem mígur eða sá sem er migið er yfir


"Ádeila okkar snýst um þetta klassíska dæmi að karlinn mígur, konan 'þiggur'."

ég gerðist áskrifandi að póstlista femínistafélagsins, og það er alger snilld! sumt af þessu fólki er svo úbersúrt, veruleikafirrt og biturt, á meðan aðrir skilja bara hvorki upp né niður í samfélaginu sem það lifir í. einn að tjá sig um þetta sem eitthvað vit virðist í, en það er karl. geðheilbrigðu konurnar virðast ekki vilja skapa fæting.

"Persónulega finnst mér þáð umhugsunarefni ef stúlkunni finnist eðlilegt að vera allsber upp á sviði, láta klippa af sér hár á höfði og sköpum og láta míga á sig að lokum. Sá hugsunarháttur þessara nemenda að þetta sé eðlilegt er það sem ég hef meiri áhyggjur af"

- það eru heitar umræður í gangi um verkefnið fræga í LHÍ, þar sem nemendur áttu að fara ofan í skilin milli ljótleika og listar. sum okkar kunna að líta á þetta sem dæmi um ljótleika, "ljótan gjörning" jafnvel. aðrir sem "klassískt dæmi" um samskipti kynjanna - þetta sé dæmi um hugsunarhátt sem þurfi að laga. einmitt! konur - þið eigið ekki að vera þiggjendur hlands!

það slæma við femínistafélagið er að rugludallar virðast vera þar í meirihluta. t.d. var innan félagsins samþykkt ályktun þess efnis að jafn réttur kynjanna til þingsetu verði tryggður með lögum. það er auðvitað aðallega stórkostlega fyndið.
þurfum líka að tryggja jafnan rétt kynjanna til að krossleggja fætur og kaupa hveiti, klæðast skóm og dansa, lita á sér hárið og drekka pepsi max. setjum þetta allt í lög. Ari Karlsson er með nokkrar tillögur um hvernig má fara að þessu.

sama með grænukonuhugmyndina sem kom fram um daginn. um að gera að hafa sem fjölbreyttasta flóru af fólki í stað græna karlsins, einsog stjörnu-Geiri skrifar um á nýstofnuðu bloggi sínu. mér finnst hugmyndin reyndar alveg stórkostlega fyndin og held að svona ljóskonur, -karlar, og börn af öllum sortum myndu gera lífið í borg óttans skemmtilegra. en auðvitað hefur hún ekkert með jafnréttisbaráttu að gera. styð þessa geðveiki!

mánudagur, október 30, 2006

at du er mere end os?

"*** **** er hómósexúal, hómósexúal ..."

... gott grín sem hefði kannski mátt sleppa á jafn opinberum vettvangi - sjá blogg HR-ings.
- mjög fyndið auðvitað að stela fána frá HR (ekki í fyrsta skiptið), en ömurlegt ef hann var skemmdur. það er ekki í anda hinnar norrænu laganemahefðar (hefðin er sú að stela hlutum og skila þeim aftur, helst þó þannig að það kosti eigandann einhverja fyrirhöfn og álitshnekki), aldrei skemmuleggja!
- í annan stað fyndið að segja að einhver sé samkynhneigður (eins og það sé móðgun?), en ekki ráðlegt þegar ættmenni hans (sem hafa þurft að þola grín af svipuðum toga) eru viðstaddir.
- loks er sjálfsagt að hæðast að samkeppnisaðilanum, en lúalegt ef "kennari" tekur þátt í því eins og þarna er sagt. umræddur "kennari" er líka frekar misheppnaður almennt (þótt hann "kenni" ágætlega), þannig að þetta kemur engum sem hann þekkir á óvart. af hverju ætli honum hafi verið boðið á Orator Oratorum annars, munntóbaks/brúnkukremsskortur?





Villi og Bjartmar koma ofangreindu máli (líklegast) ekki við, heldur eru þeir dæmi um almennan hressleika íslenskra laganema.





úr tillinkuðu bloggi (formanns Lögréttu): "Ég leyfi mér að fullyrða að svona andrúmsloft þekkist ekki í Háskólanum í Reykjavík. Við höfum aldrei efast um ágæti eigin lagadeildar ..." - þetta finnst mér magnað!!! að það skuli aldrei vera slíkur hressleiki í HR að hann fari úr böndunum, og að þeir efist aldrei um ágæti deildarinnar! það held ég að sé alls ekki satt - það eru margir skemmtilegir laganemar í HR og margir sem ekki trúa því að allt sem deildin geri sé yndislegt og frábært.
aldrei myndi ég vilja læra/starfa á stað þar sem aldrei er efi um það sem kemur að ofan (a la skólafélagið á Bifröst þegar gjöldin voru hækkuð á nemendur um daginn?).

***
Nyhedsavisen kom í fyrsta skipti í blokkina mína í dag. ég brosti að því að þar var vitnað í "islandske netavisen visir", vegna fréttar um leitarorð í google (sem eflaust er fengin af erlendri fréttaveitu). þessari frétt missti ég hinsvegar af:

Ekstra-Bladet sakað um kynþáttafordóma gagnvart Íslendingum

- hahahahoho! mér finnst þetta alveg ótrúlega rosalega æðislega fyndið, en litli Íslendingurinn í mér (ekki sá stóri sem ætlar að taka yfir heiminn) heldur með Vilhjálmi í þessu dómsmáli.
asskoti gott ef þetta telst lögbrot, eftir að ljóta múhammeðsteikningin (þar sem Mummi var með sprengju í túrbaninum) taldist ekki refsiverð móðgun við Íslamstrú hér í Baunó.




í sömu andrá og mér var bent á þessa frétt, benti Heiðar mér á útskýringu á þessu viðhorfi sumra dana: Janteloven:
Du skal ikke tro, du er noget.
Du skal ikke tro, at du er lige så meget som os.

Du skal ikke tro, at du er klogere end os.
Du skal ikke bilde dig ind, at du er bedre end os.
Du skal ikke tro, at du ved mere end os.
Du skal ikke tro, at du er mere end os.
Du skal ikke tro, at du duer til
noget.
Du skal ikke le ad os.
Du skal ikke tro, at nogen bryder sig om dig.
Du skal ikke tro, at du kan lære os noget.


útskýrir etv biturð sumra út í allt sem skarar of mikið frammúr (bæði margra dana og margra íslendinga). þessum lögum er beitt jafnmikið innbyrðis eins og gegn öðrum finnst mér, þannig að hér er ekki um neitt sérstakt íslendingahatur að ræða. allir þeir (fáu :P ) danir sem hafa haft fjárfestingaræði íslendinga á orði við mig hafa verið nokkuð sáttir við það (lesist: sléttsama).

mér heyrðist það á honum Heiðari að vænta væri úttektar á Extra-Bladet málinu með vísan til Janteloven á blogginu hans, kommunan.is/heidar (góð umfjöllun um sjúkrahús og háskóla þar núna, mæli með!).

verum í bandi

voip-þjónustan voipbuster.com er með litla Ísland á skrá yfir lönd sem hægt er að hringja frítt til, í 300 mín. á viku í landlínu - eina sem þarf að gera er að skrá emailið sitt hjá þeim. það þýðir að maður getur hringt í allar frænkur og frændur, ömmur og afa og vinina sem eru með vinnusíma, auk þessara örfáu á mínum aldri sem eru með heimasíma (gsms).

eeen! sama fyrirtæki byrjaði á sínum tíma líka með þjónustuna voicecheap, nákvæmlega sama pæling, bara öðruvísi litir á forritinu. þar fær maður líka 300 fríar mínútur á viku.

það eru því samtals 600 fríar mínútur á viku, til um 30 landa sem hægt er að hringja frítt í, flestöll myndu þau flokkast sem "vesturlönd". fyrirtækið virðist gera sér vonir um að einhver fjöldi notenda muni vilja kaupa auka-þjónustu (hringja í gsm etc.).

voicecheap heimasíðan er hætt að virka, en voicecheap forritið mitt virkar enn - og tengist við freecall.com - þar er Ísland ekki skráð sem frítt land, en maður getur samt náð í forritið frá þeim og hringt frítt heim ^_^

til samanburðar kostar 0,025€ pr. mín. að hringja í heimasíma á Íslandi með Skype :o

[öppdeit: svo virðist sem ég geti hringt ótakmarkað með þessum forritum, en nýskráðir notendur geti aðeins hringt í eina mínútu í senn :Þ o jæja - kostar 10€ að hringja ótakmarkað í 120 daga í fastlínusíma, ekki alslæmt]

annars er það að frétta að ég kann núna að baka pizzu "from scratch"! mmm, pizza

sunnudagur, október 29, 2006

blogg-gagnrýni, partur II


rýnin heldur áfram, tæpum 5 mán. seinna og verður þessi partur í styttra lagi. það var verið að skipta yfir í vetrartíma hér í Júróp, þannig að ég get notað hluta af þessum klukkutíma sem ég græddi.

Særún dvergdansari og hugsjónamanneskja -
sariomario.blogspot.com
Særún hefur skemmtilega sýn á lífið og tilveruna, og góðan smekk á tónlist og fólki. hún er einkar dugleg við skrifin en þó ekki svo að neinna leiðinda gæti í þeim. skemmtilegt er að fylgjast með því hvað helst ber uppi hjá Sario - þótt ekki sé gefin innsýn inn í persónulegustu kima lífs hennar. í tónlistar- og kvikmyndagagnrýni tekst henni vel upp, en skemmtilegast finnst mér þó þegar hún missir sig út í að tala um lögfræði eða eitthvað sem fer virkilega í taugarnar á henni, hér er á ferð manneskja sem kann að reiðast á internetinu án þess að tapa virðuleikanum.
virðulegur sprelligosi, uppátækjasamur og með vandaðan en súran húmor.

strumpurinn Þórir - thorir.blog.is
Þórir var einn af þeim fyrstu í heiminum sem byrjuðu að blogga, fyrst á strumpurinn.tripod, en sá svo sóknarfæri í bloggdóti mbl.is, blog.is. hann hefur bloggað um flest það sem hefur skeð í heiminum síðan samband hans við internetið hófst, árið 1992. stuttar og oft fyndnar og hnitmiðaðar færslur, iðulega fylgir eins og einn linkur með. hefur fundið sig betur og betur í pólitík síðan ég hitti drenginn fyrst - á kynningardegi í lagadeild, þar sem hann byrjaði að tala við mig því hann hélt ég hefði unnið með honum á bensínstöð :Þ þótt ég gruni hann um að vera hægrimann í sauðagæru, þá hefur hann notið sín í Röskvu og (surprise) ungum jafnaðarmönnum, og er einn af skrifurum í vinstri-deigluna, vefritid.is. pólitík og popullinn, kvikmyndir og tónlist eiga stærstan skerf í skrifum strumpsins stóra. alltaf minnt mig á Egil Helgason mógúl, spurning hvort löppin á Agli fari í þyrlu þegar hann talar...

Magga rugl - gellfromhell.blogspot.com
Magga er eina manneskjan sem ég held einhverju (örlitlu) sambandi við úr Ölduselsskólaárgangnum mínum. hefur verið á ferð og flugi milli Týskalands og Íslands, milli Kvennó og Berlínar, íslensks Impreza-eiganda og þýsks pulsugerðarmanns. alltaf verið hrifinn af Möggu fyrir að vera mátulega klikkuð og ótrúlega skemmtileg týpa. skil reyndar ekki helminginn af því sem hún skrifar um, þar sem ég er í svo litlu sambandi við hana.

Rannslan - rannslan.blogspot.com
Rannveig er laganemi á hraðferð, og hefur mikið að segja um allt. mjööög hress alltaf hún Rannveig, og fastagestur á lesstofunni síðan HZ hafði hár. skrifar um lífið, lögfræði, langanir sínar og kærastann. hefur smitast svolítið af nördinu í kærastanum hennar - t.d. skrifaði hún færslu um daginn í tvinntölum (!) og hefur nú læst blogginu sínu (nú bíður maður spenntur fyrir því að eitthvað virkilega krassandi og sjokkerandi birtist þar).

Erna EJ - blog.central.is/madamzki
dáin vefdagbók sem fjallaði um dvöl Ernu í Slóveníu síðasta skólaár. þar mátti læra um hve smekklausir, dónalegir og ljótir slóvenar eru. eftir það sem virðist hafa verið vonbrigðum stráð dvöl í þessu skemmtilega landi, með nokkrum skemmtilegum uppákomum og pælingum, hætti Erna að skrá hvað á daga hennar drifi og ætla ég því ekki að eyða frekari orðum í það, enda klukkutíminn að verða búinn.

nokkrar fleiri myndir frá Brno: http://picasaweb.google.com/haraldurs/AfturTilBrno

fimmtudagur, október 26, 2006

Brno, aftur

mikið gaman, mikið grín.

gisti í íbúð vinkonu minnar í einu af skemmtilegri hverfum borgarinnar. drakk eins og tvö þrjú vodkastaup og drakk auðvitað Kofola með.
















hálf feginn því að vera kominn aftur heim til Dansko, í rólegheitin og hjólatúrana :)

annars búa að mér vitandi tveir íslendingar í Brno núna, Haukur í horni og Arna frá Bifröst. hitti Hauk yfir nokkrum bjórum, en Arna fór alveg framhjá mér. annars var búið að skipta um flesta í Vinarska, tveir eftir frá síðustu önn - en lífið þar heldur áfram sinn vanagang og þar var mikið stuð þegar ég kíkti í heimsókn á nýju skiptinemunum.

fimmtudagur, október 19, 2006

sl. 12 mánuðir á flugi

okt 2005
elsa ferð til london, norwich og cambridge með bráðskemmtilegum laganemum úr hr og hí:
kef-stanstead
stanstead-kef

jan 2006
ferð til london með Stebba, svo til tékklands þar sem ég ílengtist örlítið:
kef-stanstead
stanstead-brno











feb

ferð til Heidelberg til að eyða smá qual-tíma með Lilju (sem kom fljúgandi frá kef):

bratislava-frankfurt
frankfurt-bratislava







jún

heim frá Tékkó (Lilja kom og sótti mig):
brno-stanstead
stanstead-kef

sept
flutt til kóngsins:
kef-köben

okt
skemmtiferð til Belgíu:
köben-brussel
brussel-köben

öðruvísi skemmtiferð til Tékkó:
(á morgun) köben-prag
(25. okt) prag-köben


á morgun fer ég upp í himinloftin í 12. sinn á 12 mánuðum - en það er vetrarfrí hér í KU. ætla að tékka inn tóma flugfreyjutösku sem verður fyllt af áfengi áður en heim er haldið - múhaha.
er síðan alvarlega að hugsa um að vera hér um jólin - elda hamborgarahrygg og drekka belgískan bjór, búlgarskt brandý, ungverskt hvítvín og móravískt (tékkneskt) rauðvín.
allt í hófi auðvitað!
mikil eftirvænting í maganum, ætli Brno-borg muni eftir mér eftir allan þennan tíma? ég gisti í þessu hreysi, kannski látið yfirmenn mína í leynilögreglu Íslands vita ef þið heyrið ekkert frá mér aftur - þetta er nefnilega svo leynileg ferð að ekki einu sinni Björn veit af henni.

adíós, vinir!

þriðjudagur, október 17, 2006

bjór í Belgíu

þessi belgíuferð heppnaðist með eindæmum vel!

piwo
kolféll fyrir Belgískum bjór, þó ekki fyrir Stellu - við erum enn bara kunningjar. Chimay, Duvel, Corsendonk og fleiri eðalbjórar af svipuðum gæðum - það eru vinir sem eru mér að skapi. bæði Stella og belgískt súkkulaði eru ekki að gera sig fyrir mig. ég sit reyndar núna heima í Holsteinsgötu og drekk þennan eina Stellubjór sem ég tók með mér heim, og reyni að mana mig til að klára súkkulaðimola sem Lilja gaf mér. sama með uppáhald Belga, pommes frittes - ég er ekki að ná því hvað er málið með þá áráttu. þarna eru frönskustaðir (frituur) útum allt og ef ég skildi pabba hennar Jódíar rétt þá voru amerísku hermennirnir í Belgíu þegar þeir kynntust frönskum kartöflum, þeir föttuðu bara ekki að þeir voru ekki lengur í Frakklandi :o

ferðalög
Antwerpen, Gent og mest af öllu Leuven urðu fyrir valinu í þessari túristaferð, sólin skein og belgar brostu (niður til mín - þetta er mjög stórt fólk - þótt það virðist minnka þegar það eldist ..). gamlar borgir, menning, kirkjur, blabla - þið vitið hvernig þetta er. Jodie vinkona mín sýndi mér um Antwerpen og Gent, en Vala, BogÓlafía, Birkir og Hafdís áttu öll þátt í því að sýna mér hvernig maður skemmtir sér í Leuven - bar-hopp, bjórdrykkja, belgísk ballskák, matarboð og ekta belgískur fjölskyldumatur: gúllas með frönskum.
stefnan var reyndar sett á Brugge í gær, en nei - 59 € hefði það kostað, hrfmp. til samanburðar borguðum við 10 og 12 € til að fara bæði fram og til baka til hinna borganna - með helgarafslætti. lestarkallinn sagði okkur að það væri miklu ódýrara að fara með rútu - en það reyndist ekki alltof auðvelt. samtalið við rútukallinn var e-vegin svona: "Bús? Brús?" "Já, wí wud læk bös tiket to Brús" "Brús? bus to Brús?" "jess, ken ví bæ a tiket tú Brús?" "No no there is not possible Brús with bus!".

fólk
Vala litli gullmoli (gulldvergur?) hýsti okkur og var eflaust frelsinu fegin þegar við loksins héldum aftur heim til Köben. hún býr í risastórri íbúð, sem þó er aðeins eitt herbergi með 2 metra háu rúmi og sturtu á miðju stofu/eldhúsgólfinu :)
svo það komi fram þá er brotthvarf dvergsins úr raf-umheimum ekki (að ég held) mér að kenna, heldur bilaði tölvan hennar. ég afrekaði hinsvegar að stela skeið frá henni (sorry Vala) og brjóta rauðvínsglas heima hjá Boga og Ólafíu - þumalfingrum fjölgar hjá mér í réttu hlutfalli við innbyrta bjóra.

fyrir þá sem vilja eru hér nokkrar myndir sem tala sínu máli.

flug
mikið ótrúlega er Khafnarflugvöllur mikil hörmung. held hann blikni við hlið allra annarra flugvalla hvað varðar þjónustu, hvort sem það er í slóvakíu, tékklandi, þýskalandi, íslandi eða bara annarsstaðar þar sem menn búa ekki í strákofum.
Brusselflugvöllur kom mér aftur á móti mjög skemmtilega á óvart, sem og flugfélagið Virgin Express. röðin að check-ininu var engin í Brussel (ég taldi held ég 7 afgreiðsluborð sem stóðu mér til boða), á móti endalaust langri hörmungsröð í Khöfn. virgin-flugið okkar var í flugvél SN Brussel Airlines, sem þýddi að það var matur og kaffi innifalið - ómetanlegt þegar maður er búinn að vera í flugvallarstressi allan morguninn að fá þessa heitu flugvallarmáltíð - þótt ekki séu þær glæsilegar.

miðvikudagur, október 11, 2006

skál fyrir því!

héraðsd. Rvk. dæmdi í dag mann í sekt, fyrir brot gegn banni á áfengisauglýsingum. af því tilefni hef ég ákveðið að gerast brotlegur við þessi sömu lög - bara smá samt.

maðurinn var dæmdur fyrir að láta birta m.a. auglýsingu fyrir hinn tékkneska Budvar. hér er hinsvegar komin augls. fyrir hinn sanna konung bjórsins, Pilsner Urquell.
Böðvar er góður, en aðallega bruggaður til útflutnings myndi ég segja. helst að maður hafi orðið var við hann í miðbæ Prag - mjög lítið annarsstaðar. hitti bara einn mann sem sagðist vera frá Budovice (þaðan sem Budweiser / Budvar nafnið er komið), og vorum við þá báðir með Pilsner í hönd. hann sagðist ekki drekka annað.

Starobrno er líka mjög góður "meðalklassa"bjór. hann er einmitt frá Brno, eins og Milan Kundera og rifflarnir frægu. yfirleitt drakk ég Starobrno eða Gambrinus (litla bróði Pilsners) - báðir temmilega ódýrir (svona meðaldýrir) og mjög góðir en ekki kannski wúhúúú.
hef enn ekki fundið svipaðan bjór hér. fyrir mér er t.d. Tuborg classic gylltur mjög góður bjór, en hann kostar eiginlega það sama og venjulegur Tuborg - of mikið. neðst á verðskalanum eru Harbroe og Luxus, en þeir eru líka algjört krapp. Luxus gylltur er kannski í lagi, en ekki samt góður.
bjór á að vera ódýr og góður - enda lúxus fátæka fólksins.

hér er mjög lítil og stutt video-auglýsing frá Starobrno. veit ekki, held þetta sé svona ekta slavneskur húmor eins og maður sér í bíómyndunum - eða bara evrópskur - kannski svipað grín og Egill Gull auglýsingarnar með Úlfi?



en... á föst. kl. 9.20 flýg ég til Belgíu. hef heyrt að þar sé seldur bjór. kannski ég taki Stellu loks fyllilega í sátt - ég er nú að fara að gista þar sem hann er bruggaður :P

þriðjudagur, október 10, 2006

Raunveruleikabilun

var að lesa um konu sem fannst hún vera ógeðslega ljót. henni fannst hún svo ömurlega ljót að hún hafði hætt snemma í skóla og fengið heimakennslu. ofaná það harðneitaði hún að vera með á fjölskyldumyndum, og reif þær sem hún náði í.

líf hennar var þó ekki svo slæmt, hún átti eiginmann, sem hún var viss um að sæi hennar innri fegurð, og 2 börn. einnig hafði fjölskyldan hennar alltaf staðið við bakið á henni.

samt var hún alltaf hundfúl fyrir útliti sínu. hún var því ótrúlega ánægð þegar framleiðendur sjónvarpsþáttarins Extrím Meikóver samþykktu að "tak'ana í gegn".

sjónvarpsfólkið kom í heimsókn og konan, sem heitir Deleese, hlustaði í næsta herbergi á systur sína tala um "ljótu Deleese", og eiginmanninn segja hvað konan sín væri ófríð (if you wanna be happy for the rest of your life ... ?). tengdamamma var líka fengin til að segja álit sitt á Deleese, sem sá að þetta var ekki bara í hausnum á henni - hún var drulluljót - öllum fannst það!

eftir nokkra vikna pródúsjón rann upp fyrir framleiðendunum að Deleese væri með svo afskræmda beinabyggingu í andliti (hefði þurft að brjóta í henni kjálkann m.a.), að þeir myndu aldrei ná að laga hana á þeim tíma sem þeir höfðu áður en sýna átti þáttinn.
hún var því rekin úr Extrím Meikóver fyrir að vera of ljót! hún var send heim frá LA með skottið á milli lappanna, vitandi hvað fólkinu sem henni þótti svo vænt um virkilega þótti um útlit sitt.

systir hennar skammaðist sín svo mikið fyrir hvað hún hafði sagt, að hún drap sig (reyndar 4 mánuðum eftir að Deleese kom aftur heim til Texas). Deleese fékk um daginn greiddar 35 ísl. millur í skaðabætur frá framleiðendum Extrím Meikóver, sem hún fór í mál við vegna samningsbrots og fyrir að valda sér tilfinningalegum skaða. það fylgdi sögunni að Deleese hefur tekið að sér uppheldi hinnar orðljótu systur.

"henni fannst ég ógsla ljót, og núna er hún dáin :( !!!"

... maður á ekki alltaf að segja það sem manni finnst.

************
talandi um heimskt fólk:

Mom arranged for sex for 13-year-old daughter

þessi kona var svo umhyggjusöm að þegar hún var í fríi með 13 ára dóttur sinni og 14 ára vinkonu hennar, fann hún 2 myndarpilta, 18 og 19 ára, til að gera það með þeim. best að ljúka þessu af hugsaði hún. hún bauð strákunum því upp á mótel, keypti bjór og límonaði handa krökkunum, og horfið þvínæst uppá öll herlegheitin - hefur viljað vera viss um að ekkert óeðlilegt ætti sér stað :S

.