Hvað er að gerast:

miðvikudagur, júlí 18, 2007

róandi sjávardýr

nýlega var ég svo heppinn að fá að passa tvo gullfiska í vinnunni, þá Loft og Stubb.

það er alveg rétt sem stóð í mogganum um daginn, lifandi fiskar róa mann niður og draga úr stressi, syndandi um áhyggjulausir og ánægðir með sitt litla líf.

það er ekki laust við að ég sakni þessara fiskikumpána, en til þess að bæta upp fyrir missinn hef ég notast við hvalahljóð frá ferðaþjónustunni Gentle Giants á Húsavík. algjört hvalanammi.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er nú dálítil synd að íbúðin okkar standi auð í heilan mánuð í sumar... Getum við ekki leigt einhverjum hana? (...með peningaglit í auga.)