
það er skítsæmilegt að búa í Kópavogi.
skv.
fjárhagsáætlun fyrir árið 2008 lækka leikskólagjöld um 15% úr 2100 krónum í 1788 krónur á klst. og vatnsskatturinn lækkar um 10%, úr 0,13% af heildarfasteignamati í 0,117%, þökk sé Vatnsveitu Kópavogs og nýja vatnsbólinu (verst með trén sem þurfti að farga í Heiðmörkinni)

leiðinlegast í áætluninni eru fréttir um að sorphirðugjald hækki úr 11.600 í 14.000 krónur á tunnu. en sorphirðumenn verða að hafa efni á plasmasjónvörpum, píramýdasvindlum og utanlandsferðum eins og allir aðrir.

fólk sem lætur bjóða sér að borga tæpar 4 þúsund krónur fyrir skitna herraklippingu getur ekki kvartað yfir þessu, vonandi fær þetta einhvern til þess að endurvinna meiri pappír.

(þ
egar ég hugsa til þess, verð ég mjög svekktur út í millistéttarhugsunargang og menntasnobb í íslenskum klippurum. í Tékklandi kostaði fancy klipping 250 Kc (um 750 íkr.), í fínu hverfi í Köben kostaði hvít (ss. ekki araba-) klipping 150 dkr. (næstum 2000 íkr.) og í Lúxemborg, þessari hástéttarsnobb borg, borgaði ég 29 evrur fyrir klippingu í miðbænum (um 2600 íkr.), þrátt fyrir að geta tekið 2 tíma lest til Trier fyrir 8 evrur og fengið þar klippíklipp á 13 €!)
mér líst líka drulluvel á 20 hæða turninn hans Jákubs Jacobsens á Smáratorgi.
í gær fékk ég spark í rassinn í heilsumálum og það er aldrei að vita nema ég kaupi mér kort í WorldClass stöðina sem opna á 2. febrúar á 15. hæðinni, en hún
"verður 700fm að stærð með fullkomnustu tækjasal."
Engin ummæli:
Skrifa ummæli