
í júrópartýi helgarinnar í Brussel hitti ég sænska stelpu sem starfar fyrir EUobserver.com.
hún sagðist hafa fengið það verkefni að fara til Íslands í sumar og sjá hvernig íslensk stjórnvöld hefðu varið peningunum sem frúin í Brussel hefur ánafnað íslenskum kúltúr og listum.
sérstaklega sagðist hún hrifin af íslenskum aumingjabókmenntum, sem hefðu verið áberandi í íslenskri bókaflóru undanfarin ár - ólíkt hinum Norðurlöndunum þar sem allt ritað mál væri keimlíkt og litlítið.

ég varð eiginlega orðlaus - man ekki eftir neinum þvílíkum bókum síðan 101 kom út '96.
jú, Nói Albínói var auðvitað aumingji, en hann var bíómynd - hann var líka álíka mikill "slacker" og Bert í sænsku unglingabókunum.


í partýinu hitti ég líka finnskan ungan tónlistarmann, en unnusta hans skipaði honum að yfirgefa svæðið einkum vegna þess að hann gat ekki hætt að spila lúftgítar.
Ég mundi einmitt ekki eftir neinni bók nema 101, kannski íslendingar segi ad thad séu mikill gróska í thessu en adeins 101 hafi verid thýdd!
SvaraEyðaVar ekki sá Finnski rekinn út eftir ad hafa migid í stigaganginn?
hann var rekinn út úr íbúðinni fyrir lúftgítaræfingar, en komst ekki lengra en á stigaganginn.
SvaraEyðakærastan var ekki sátt, han tissede på gangen!