það er reyndar gamalmennablokk á milli blokkarinnar sem ég bý í og kollegísins, ég vona að gamla fólkið hafi munað að slökkva á heyrnartækjunum.
ég myndi krassa partýið ef ég væri ekki að fínpússa íslenskar dómareifanir í ritgerðinni minni. hún mun auðvitað marka þáttaskil, eins og flest annað sem ég skrifa.

***
í framtíðinni ætla ég að tala um að berja á bakkafullnum læknum. það er alveg jafn mikil geðveiki að berja á honum eins og að bera (vatn?) í hann.
***
ég ætla nú ekki að ganga svo langt að segja að íslenskir lögfræðistórlaxar séu eins og risaeðlurnar forðum, vel vopnum gæddir en með of lítinn heila. en myndin er góð.

Hnykkjast mjaðir ekki og vöðvar hnyklast??? Nei veit ekki ég skít alltaf á mig þegar ég ætla að slá um mig með oratiltæki.
SvaraEyðahahahaha þarna sérðu oratiltæki átti að vera orðatiltæki.
SvaraEyðaJesús!
Ora-tiltæki eru líka til.
SvaraEyðaþú opnar Ora dós, og gæðin ...
Ora baunir - eftir erfiðan dag.
niðursoðnir Ora sveppir - ástríða í matargerð.
eigi eru sopnar Ora fiskibollurnar ...