


við tókum líka eftir því á Norðurbrú að þar höfðu margar götur verið merktar upp á nýtt, af svo mikilli natni að maður lét næstum platast.
ég veit ekki hvort göturnar á Norðurbrú voru merktar upp á nýtt áður en allt fór til fjandans.
hins vegar beittu tékkóslóvakar svipuðum aðferðum við að afvegleiða liðsauka Varsjárbandalagsins frá Póllandi þegar rússar bældu niður vorið í Prag 1968. að sumra sögn enduðu margar hersveitirnar aftur á pólsku landamærunum eftir að hafa þvælst um Slóvakíu, þar sem skilti höfðu verið tekin niður og á þeim skipt víða.
í Tékkóslóvakíu mátti jafnframt víða finna skilti, plaköt og graffítí sem mótmæltu valdtökunni. ekki ósvipað og hér.
það er kannski ósmekklegt að líkja þessum tveim atburðum saman.
þetta er í það minnsta svakalega flott leið til að vekja athygli á baráttunni og óréttlætinu sem krökkunum finnst þeir verða fyrir. síðasta myndin er úr fyrstu heimsstyrjöldinni og heitir mikil barátta er að hefjast, eftir V. Spassky.

Ég hef líka séd Jagtvejinn vída, lét blekkjast af fyrsta gøtuskiltinu (fannst bara heimskulegt ad 2 gøtur í Kbh hétu Jagtvej) en lagdi svo saman 2 og 2 vid skilti nr. 2.... Ég vil kenna gódu handbragdi listmálaranna um en ekki undirliggjandi ljósu hári... ;)
SvaraEyðaeins og sagt var um Klepp, þá er Jagtvej víða :)
SvaraEyðaþað eru eflaust margir túristarnir sem furða sig á því hvað Jagtvegur er illa skipulagður og útum allt í borginni :P