
"Allt almennilegt fólk getur verið sammála um að

"Til Íslands koma klámkóngar. Og þjóðin lætur sig ekki muna um að setja upp vandlætingasvip og fordæmingarviðlagið fer að óma. Börnum er nauðgað. Það heitir klám. Konur eru seldar mansali og látnar leika í klámi. Hingað er að koma fólk með tengsl við klám. Það er því augljóst að börn og þrælar koma á einhvern hátt við sögu."
- Mengella.
"Í réttlátri reiði sinni vegna ófagurra örlaga fjölda kvenna innan klámsins blása nú hin ýmsu samtök í fordæmingarlúðra. Í leiðinni henda þau inn algerlega óstaðfestum sögum, sennilega hreinum ósannindum, eins og að þetta fólk framleiði eða selji barnaklám og kaupi eða flytji stúlkur milli landa gegn vilja sínum." - Ingó. (restin af pistili hans er reyndar grautfúll

Ég er samt ekki alveg að kaupa þetta með Sjálfstæðisflokkinn og klámið. Harma að þingið sé haldið, finnst það rosalega leiðinlegt og ósmekklegt og hvetja lögguna til að skoða málið, en hvað svo? Hvað segir Geir...þá meina ég Geir Hilmar?
- Nágranni minn Rósa Erlingsdóttir, skarpasti hnífurinn í skúffunni?
auðvitað á að hengja liðið við komuna til landsins - skoða málið fyrst? til hvers? ... ég held að ég og nágranni minn yrðum góð saman í stjórn alræðisríkis.
annars bíð ég enn eftir að einhver fari að tala um þetta af viti alltsaman.
biðst afsökunar á neðstu myndinni í þessari færslu - ósmekklegt mannætuklám!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli