báðar stúlkurnar sem ég bý með fengu cpr-nr. (kt.) á föstudaginn. ég fór með þeim í folkregistret og var m.a.s. búinn að sækja um 2 mín. á undan þeim. bíð enn eftir mínu cpr!
hins vegar hef ég fengið símanúmer (enda þarf maður ekki að treysta á hið opinbera upp á það): sonofon númerið mitt er +45 2566 8679.

************
eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, hjóla ég langa leið á hverjum degi - ég er í pólsku í húmanísku fakúltíunni 4 daga í viku, og í lagadeildinni 2 daga í viku. verð kominn með stinnan neðri búk á engum tíma! spurning með hvað verður með ofan mittismáls.
mikið eru röskvustrákarnir á ordid.blog.is miklir fávitar. jújú, það koma mjög skemmtileg skúbb frá þeim, en rólegir á 2 fyrstu færslunum í dag, mánud. 18. sept.
::::sú fyrri er um að framkvæmdastjóri 365 eigi ekki annarra kosta völ en að segja af sér, taki Jón Ásgeir fyrir hendurnar á honum. ég fetti nú bara miðfingurinn út í þessa drengi .!.
::::sú seinni er færsla um hið landsfræga kristilega tímarit Tadds, sem jafnan stendur með frjálshyggjuarmi ungra reykvískra sjálfstæðismanna þegar blásið er til kosninga í Heimdalli. ok, þeir gera lítið úr lesendum sínum með því að segja að þetta sé mjög lókal húmor (lókal - eru þeir þá að meina Rvk / háskólafólk / ...?) það sem slæmt er við fréttina er blörraða myndin sem fylgir með. hvað kemur fram í urlinu, þegar maður hægri smellir á

Jón Bjarnason er þingmaður VG. hvernig getið þið kosið svona fífl? mér finnst bara engir þingmenn neins flokks komast með tærnar þangað sem sést í hælana á þessum snillingum, þótt margir séu þeir vitlausir.
skemmtilegur bútur sem tengist þessu svoldið (veit ekki alveg hvernig samt), af heimasíðu Hallgríms Helgasonar (rifið úr samhengi):
Minnisvarði
mosavaxinn,
að hálfu sokkinn
í sængurjörð
og öllu búinn að gleyma.
************
rosalega er ég langorður þessa dagana. eitt enn, mig langar rosalega mikið að sjá þessa mynd
- mitt innra nörd öskrar.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli