
föstudaginn 25. júní 1982 (ár aldraðra) sagði á forsíðunni að Halli væri á togaraútgerð í Noregi. á þeim tíma var ekki vitað að Halli væri einnig á Landspítalanum við Hringbraut - enda hafði ég ekki fengið nafn ennþá.
innar í blaðinu er frétt um skólaslit Stýrimannaskólans og fylgdi með mynd af ungum
í einu sérblaðanna mátti sjá auglýsingu í lit fyrir það nýjasta á markaðnum þá dagana, sykurlaust TAB (sem við sem ekki ólumst upp við DuranDuran þekkjum helst úr Stellu í orlofi).
enginn Velvakandi var í föstudagsmogganum 25. júní, en daginn eftir birtist þar bréf frá Maríönnu nokkurri, sem sagðist vinna í
í sama blaði má finna frétt um að á fæðingardaginn minn hafi fylking grasmaðka stöðvað lest á Mið-Ítalíu. ég prufaði að leita að þessu á Netinu en fann ekkert. mig grunar að þetta hafi verið þaggað niður af

í bíóhúsunum mátti velja milli margra stórkostlegra kvikmyndalistaverka, og má þar nefna Jón Odd og Jón Bjarna, Hold Geira (Flesh Gordon - einnig þýtt sem Hvell Geiri), Ránið á týndu örkinni (Raiders of the lost ark), Geðveika morðingjann (Lady, stay dead) og Valkyrjurnar í Norðurstræti (North Avenue Irregulars).
hmm... bara til að hafa það rétt, þá var myndin Flash Gordon þýdd Hvell-Geiri, en Flesh Gordon, sem var ljósblá grínmynd, þar sem gert var grín að þeirri fyrr, sem var frekar vinsæl, var svo þýdd Hold-Geiri - þetta voru s.s. tvær myndir. Sú síðari fengist e.t.v. aldrei sýnd í bíóhúsunum í dag ...
SvaraEyða