... þá fyllist ég um leið svolítilli eigingjarnri gleði við tilhugsunina um annarra manna heimsku - því mér finnst ég svo frábær í samanburðinum við þetta heimska og vonda fólk.
en margur heldur líka mig sig.
***


lögþvingun til bílbeltanotkunar, bann við því að heimskingjar nefni börnin sín Drullupussa, jafnvel bann við notkun transfitusýru í skyndibitamat og jákvæð mismunun - þetta getur allt verið OK, málefnalegt, réttlætanlegt og hipp og kúl.
en hóf, eins og almenn skynsemi, virðist vera hverfandi kostur víða í heiminum (og hefur verið frá örófi alda). e.t.v. er þetta sérstaklega hættulegt í litlu samfélagi eins og á Íslandi, þar sem einstaka manneskjur geta stundum tekið ákvarðanir

Lýðheilsustöð hlýtur að vera lang lang besta dæmið um þennan hófskort.
- berjast fyrir afnámi sykurskatts af vatni?
- leita leiða til að gera nikótínlyf ódýrari en sígarettur?
- hvetja til drykkju á sykurlausum drykkjum?
- beita raunverulegri fræðslu um kynlíf í stað forvarna?
- hvetja til skynsamlegrar, í stað minni notkunar á áfengi?
fólk sem hefur það hlutverk að hugsa fyrir okkur hin sem erum of heimsk, hefur tilhneigingu til að vera jafnvel heimskara.
***

ef maður er ekki sammála einhverju, þá er maður ósammála.
ef manni er ekki sama um eitthvað, þá er manni ósama!?!
helvítið hann BinLaden eyðilagði það orð. er það ekki óbein atlaga að íslenskri tungu? málfræðihryðjuverk?
Hverjir eru þess umkomnir að hafa vit á réttu og röngu fyrir okkur hin, hvað sé okkur hollt og hvað ekki?
SvaraEyðaBannfæring Kvikmyndaeftirlitsins fer fram *eftir* skoðun efnisins, bannfæring kaþólsku kirkjunnar á grundvelli trúar og fávísisfeldi um innihald, boðskap og efni þess, sem bannfært er.
Er hægt að greina á milli?
h.
lýðræðið virkar a.m.k. ekki til að ákvarða hvað sé gott og hvað slæmt fyrir okkur lýðinn.
SvaraEyða... en þó, ef þessir aðilar á borð við þá sem eyða RÚV-framlögunum, Lýðheilsustöð, Byrgið og aðrir kúka á sig og okkur trekk í trekk...
þá ættum við kannski að geta haft svona sms-kosningu einu sinni á ári þar sem fólkið getur kosið burt verstu af þeim verstu?
hmm... getum við ekki gert eitthvað svipað þessu með reglulegu millibili eða svona ca. á 4ra ára fresti?
SvaraEyðah.
jú, það mætti kjósa fólk af framkvæmdarvaldsarmi ríkisins burt með beinum hætti á 4 ára fresti.
SvaraEyðagætum gert það um leið og kosið er inn á löggjafarsamkunduna ...
... hey, sms kosningar til Alþingis - brilliant!
En að láta mig bara fá alræðisvald?
SvaraEyðaMundi koma þessu á öllu á hreint í einum grænum hvelli.
Kveðjur :)