
bjórdrykkja hefur verið nokkur og við skötuhjúin erum búin að fara með þeim skötuhjúunum á 2 afbragðs veitingastaði, Spiseloppen (stolt Stínu) og Peder Oxe í miðbænum. jólabjórs-, hvítvíns-, rauðvíns- og fjallagrasaáfengis-legin helgi, og er það vel.
þau hafa verið að þræða söfn og sögufræga staði bæjarins á daginn, á meðan undirritaður hefur hangið heima mestmegnis og þóst verið að skrifa ritgerð í ECHR - þetta verður grundvallaryfirlit yfir eitt af mest spennandi álitaefnum mannréttindaréttar, á 5-7 bls.!
annars virðist öruggt að við Lilja komum ekki heim um jólin, heldur kíkjum í staðinn í heimsókn á Klakann um eða eftir áramót. auk dansks jólamatar og undirbúning lokaritgerðarskrifa sé ég fyrr mér að við látum verða af því að skoða þessa blessuðu borg almennilega og kíkjum kannski yfir sundið til Svíþjóðar. það verður áhugavert að sjá hvort við ráðum við að halda jólin alein í úglandinu.

Sniðugt hjá ykkur að prófa eitthvað nýtt um jólin. Þín verður samt saknað yfir kalkúninum á aðfangadag Halli minn! :)
SvaraEyðamun sakna ykkur líka, og kalkúnsins með Palla-fyllingunni.
SvaraEyðasakna ykkur miklu meira en fuglsins að sjálfsögðu ...